Frjáls verslun - 01.06.1977, Blaðsíða 22
ar tekjur og olíufurstarmr, sem
sækja klúbbinn í London.
Auk allra þessara spurninga,
sem ósvarað er hjá Playboy á
Hugh Hefner í útistöðum við
Gjaldheimtuna. Auk árslauna
er nema 227 þús. dollurum, tek-
ur fyrirtækið á sig nærri allan
framfærslukostnað Hefners per-
sónulega en hann er um 3 millj-
ónir dollara á ári. Þetta er
byggt á þeirri forsendu að líf-
erni Hefners sé þáttur í aug-
lýsingu og almennri kynningu
á tímaritinu Playboy. Skatta-
yfirvöld settu í fyrra fram
kröfu um 7 milljón króna
greiðslu fyrir vangoldna skatta
á árunum 1970 til 1972 og neit-
uðu þar með að viðurkenna
þessa frádráttaraðferð. Tals-
menn Playboy, sem halda ná-
kvæma skýrslu yfir umtalið og
athyglina, sem kvennafar og
annað hátterni hjá Hefner vek-
ur, benda á að jafnáhrifaríkar
auglýsingar í fjölmiðlum
myndu kosta fyrirtækið miklu
meira en nemur rekstrinum á
Hefner.
Hefner fer nú orðið sjaldan
út fyrir óðal sitt í Beverley
Hills, sem er 29 herbergi á
stærð, og fyrirtæki hans er
smám saman að flytja aðsetur
sitt frá Ohicago til Los Amgeles.
„Leyndardómshulan um mig er
lykillinn að velgengni okkar“,
segir Hefner.
Sjónvarpsþáttur, sem ABC-
stöðvarnar sýndu nýlega, stað-
festir þetta. í maímánuði höfðu
þær á dagskrá sinni þátt er
lýsti því hvemig Hefner velur
eftirlætisstúlkuna sína „Play-
mate of the Year“ fyrir árið
1977. Það var skemmtideild
Playboy-samsteypunnar, sem
seldi ABC þessa dagskrá en
þátturinn var að öllu leyti tek-
inn upp heima hjá Hefner.
General Mills og önnur stór-
fyrirtæki á auglýsingasviðinu í
Bandaríkjunum borguðu 35
þús. dollara fyrir mínútuna í
auglýsingum með þessum þætti,
sem í rauninni var 90 mínútna
auglýsing fyrir Playboy. Nú
hefur Hefner tilkynnt smá-
framhald af þættinum í sept-
ember-hefti Playboy, þar sem
birtar verða myndir úr „partí-
inu eftir þáttinn“.
Á víð og dreif
Yfir 44% allra Svía munu hafa eigin bifreið til
umráða árið 1990 í samanburði við 35% árið
1975, að því er Vegamálastofnunin sænska gerir
ráð fyrir. Þann 1. janúar 1975 áttu Svíar samtals
2.809.000 bíla, þar af 2.639.000 einkabifreiðar og
170.000 vörubíla og almenningsvagna. Árið 1990
verður þcssi tala komin upp í 3.835.000. Á áratugn-
um 1950—1960 fjölgaði bílum í Svíþjóð um 93.000
árlega. Þessi tala komst þó upp í 113.000 á síðasta
áratug en lækkaði síðan í 92.000 á ári fyrri helming
þessa áratugar.
Tímamismunur er ein alvarlegasta streituorsök,
sem sjómenn á norskum farskipum eiga við að
stríða. Á hraðferðum milli Evrópu og fjarlægari
Austurlanda verða sjómenn að stilla úrin sín einn
tíma fram eða tilbaka á hverjum sólarhring á með-
an hið svokallaða líffræðilega tímaskyn er stöðugt.
Þetta veldur því að margir sjómenn þjást af svefn-
leysi og þreytu á vinnuvöktunum. Sjómaður um
borð í skipi á hafi úti er að auki talinm þurfa að
nota 30% meiri orku við vinnu sína en landkrabbi
vegna veltings skipsins. Það var norskur prófessor,
sem gerði grein fyrir þessum rannsóknum sínum á
norskum sjómönnum nýverið. í ljós hefur komið
að þessi vandamál fara vaxandi með hækkuðum líf-
aldri og starfsaldri.
Finnska fyrirtækið Tiklas ætlar að reisa nýja
fataverksmiðju hjá Limerick á frlandi og verja til
þess um 1 milljón sterlingspunda. Verksmiðjan á að
taka til starfa eftir tvö ár og veita 160 manns vinnu.
Tiklas er dótturfyrirtæki Laaila og Tikanoja og á
nýja verksmiðjan í írlandi að sauma. skíðaföt og
anoraka til útflutnings, aðallega á markað í Bret-
Iandi, sem farið hefur vaxandi síðustu ár fyrir
þessar vörur.
Volkswagen verksmiðjurnar eru aftur að ná sér á
strik eftir 300 milljón dollara tap á ári. Sala hjá
VW í Þýzkalandi jókst um 26% í ársbyrjun og nú
er markaðshlutdeildin komin úr 28% í 31%. VW
er þar með komin fram úr Opel og Ford. Framleiðsl-
an á Volkswagen og Audi bílunum er nú um 7
þús. á dag en eftirspurnin er meiri en framleiðslan
þannig að biðlistar hafa myndazt.
V
fj
22
FV 6 1977