Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1977, Blaðsíða 98

Frjáls verslun - 01.06.1977, Blaðsíða 98
Frá riisijórn Bankamenn hafa orðið í þessu tölublaði Frjálsrar verzlunar eru samtöl viö tvo bankamenn, þá Loft J. Guð- bjartsson, bankastjóra Útvegsbankans i Kópavogi og Friðjón Sveinbjörnsson, spari- sjóðsstjóra hjá Sparisjóöi Mýrasýslu í Borg- arnesi. Innan bankakerfisins eru stofnan- irnar, sem viðkomandi forráðamenn veita forstöðu af nokkuð ólíkum meiði og þess vegna er áhugavert að kynnast viðhorfum þeirra. Loftur J. Guðbjartsson dregur upp einkar skýra mynd af því hvernig frjáls sparnaður hefur átt æ erfiðara uppdráttar á íslandi á undanfömum árum. Loftur segir: „Verðbólga sú, sem við höf- um átt við að stríða á undanförnum árum, og þó sérstaklega á síðustu þremur árum, hefur haft í för með sér aukna eftirspurn- arþenslu í þjóðfélaginu, sem hefur komið fram í aukinni einkaneyslu og aukinni fjár- munamyndun, þar eð fólk hefur talið að það verði peningum sínum betur þannig en að leggja þá inn í banka. Það er staðreynd að ávöxtunarkjör sparifjár í bönkum hafa verið of rýr á undanförnum árum til þess að laða nýja innlánshafa að bönkunum eða hvetja fyrri innlánshafa að auka innlán sín. Afleiðing þessarar þróunar hefur orðið sú, að ráðstöfunarfé bankakerfisins, reiknað sem hlutfall af þjóðartekjum, hefur farið lækkandi ár frá ári og rýrir það að sjálf- sögðu hæfi bankanna til útlána.“ Eftir að þetta viðtal við Loft átti sér stað hefur verið tilkynnt um hækkun vaxta m.a. af vaxtaaukainnlánum og útlánum. Vextir af sparifé samkvæmt þessu árs- gamla kerfi hafa engan veginn verið í takt við verðbólguþróunina og fólk því séö hag sínum betur borgið með annarri ráðstöfun fjárins en að ávaxta það í banka. Það er hins vegar vafamál hvort sú vaxtahækkun, sem nú hefur verið ákveðin, breyti innlána- þróuninni mikið, þegar séð er fram á miklu hærri verðbólguvöxt en hinum nýju vöxtum nemur. Sennilega nægir þetta skref ekki, en óhjákvæmilegt var að stíga það vegna hins geysilega streymis út af sparifjárreikning- um, sem sagt er að numið hafi milljöröum á aðeins nokkrum vikum eftir gerð kjara- samninga. Mikil eftirspum hefur verið eftir vaxta- aukalánum sl. ár, þótt af þeim skyldi greiða 22,5% ársvexti. Með síðustu hækkun má þó gera ráð fyrir að menn hugsi sig um tvisvar áður en lán eru tekin með þeim kjörum. Telja má víst að lánafyrirgreiðsla bankanna verði í vaxandi mæli í formi vaxtaaukalána og venjuleg víxillán verði mun meira tak- mörkuð en áöur. í heild má því reikna með minni lánaeftirspurn einstaklinga. Aðrir mega þó ganga á undan með góðu fordæmi, minnugir orða bankastjórans: „Aukin um- svif ríkisstofnana, sem eru í útlánaviðskipt- um við bankana kalla svo að sjálfsögðu á aukin útlán, sem oft hafa forgang og erfitt er fyrir bankana að neita um.“ Sparisjóðsstjórinn í Borgarnesi benti á annan þátt málsins og sagði það ískyggi- legt, að bankakerfið hefði á skömmum tíma rýrnað um 30% miðað við þjóðarfram- leiðslu. í staðinn hefðu hins vegar komið opinberir fjárfestingarsjóðir eins og fram- kvæmdasjóður og Byggðasjóður. Frjáls sparnaður almennings hefði líka minnkað en lögboðnar álögur og gjöld á einstakling- ana farið vaxandi. Þannig hefur miðstýringin vaxið hröðum skrefum í fjármálunum, opinberir sjóðir og stofnanir taka sjálfvirkt til sín meira og meira fé á kostnað ríkisbankanna. I þessu miðstýringarkerfi dregur svo stöðugt mátt- inn úr þeim peningastofnunum, sem næst fólkinu sjálfu hafa staðið, sparisjóðunum í byggðum landsins. Talsmenn valddreifing- ar og sjálfstæðis byggðarlaga ættu að gefa gaum að því mikilvæga hlutverki sem spari- sjóðirnir geta gegnt í þágu einstaklingana í þessu samfélagi. 98 FV 6 1977
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.