Frjáls verslun - 01.06.1977, Síða 86
AUGLÝSING
HEIMILISTÆKI
HURÐIR OG
ELDHIJSIIMINIRÉTTIIMGAR
VIKURELDHUS HF.:
Vönduð og ódýr
íslensk framleiðsla
Víkur eldhúsinnréttingarnar
eru stöðluð íslensk framleiðsla,
sem samcinar þá kosti að vera
vandaðar og ódýrar. Þær kom-
ast alls staðar fyrir og henta
bæði í ný hús, scm og til end-
urnýjunar á eldri innrétting-
um.
Einingarnar eru margar og í
mismunandi máli. Hægt er að
fá sléttar hurðir á skápana,
rammahurðir, eða boga ramma-
hurðir. Ýmsir kostir eru um
val inn í rammana. Þar kemur
til greina plast, viður, eir, gler
eða blýgler. Innréttingarnar
sjálfar eru framleiddar úr birki
og brúnhnotu.
Með ótrúlegu litavali í plasti
og fjölmörgum möguleikum í
samsetningu er hægt að gera
eldhúsið enm persónulegra.
SÍFELLT VERIÐ AÐ AUKA
HAGRÆÐINGU í SMÍÐINNI
Ótal fylgihluti er hægt að fá
inn í eldhúsinnréttingarnar frá
Víkureldhús, eins og skáp með
straubretti, skáp með útdregn-
um grindum, þurrkuskáp,
hrærivélaskáp, grindur og
plastskúffur í ýmsum stærðum.
Einnig er hægt að fá útdregna
hanka fyrir bolla, útdregið
ruslafötustæði o.fl.
Nú eru einnig fáanlegar
spónlagðar opnar hillur og bit-
ar, sem geta sett mjög mikinn
svip á eldhúsið. Allar hillur í
skápnum eru færanlegar.
Sífellt er verið að auka hag-
ræðinguna í eldhúsinnréttinga-
smíðinni til að hafa verðið sem
hagstæðast og vöruna sem
besta. Eingöngu eru faglærðir
smiðir við smíði Víkur eldhús-
anna.
Auk innréttinganna eru einm-
ig til sölu heimilistæki s.s. elda-
vélar, viftur o.fl. til hagræðis
fyrir kaupendur.
Víkureldhús hf. framleiðir
einnig baðskápa og hillur á
böð. Fyrirtækið tekur einnig að
sér innréttingasmíði fyrir bygg-
ingariðnaðinn.
AFGREIÐSLUFRESTUR iy2—
2 MÁNUÐIR
Veittur er staðgreiðsluaf-
sláttur á Víkur eldhúsinnrétt-
inigunum og um ýmsa valkosti
er að ræða við greiðslu. Venju-
legir greiðsluskilmálar eru, að
greiddur er % hluti við pöntun,
% við afhendingu og % hluti
er lánaður í 4 mánuði. Upp-
setningarkostnaður er u.þ.b.
10% af innréttingaverðinu.
Afgreiðslufrestur er iy2—2
mánuðir. Sýningareldhús er á
framleiðslustað. Ef komið er
með mál af eldhúsi, eða teikn-
ingar getur Víkureldhús hf.
gert fast verðtilboð.
VÍKUR ELDHÚSINNRÉTT-
INGARNAR HANNAÐAR
FYRIR ÍSL. SMEKK
Víkur eldhúsinmréttingarnar
eru hannaðar fyrir íslenskan
smekk, og henta í allar stærðir
eldhúsa, vegna þess að skáp-
arnir eru byggðir í einingum,
sem hægt er að velja úr og
raða saman, og þar með er
hægt að fá eld'hús alveg eftir
eigin vali.
Að lokum má geta (þess, að
Víkureldhús hf. hefur gefið út
vandaðan litprentaðan bækl-
ing, sem í er að finna allar upp-
lýsingar um Víkur eldhúsinm-
réttingarnar.
86
FV 6 1977