Frjáls verslun - 01.04.1978, Blaðsíða 25
samningum, þó ekki væri nema
hvað þau græða á heimsverð-
bólgunni, sbr. skuldir þeirra við
vestræn ríki. Á sama hátt má
álykta að aukning samskipia
verði Sovétríkjunum meiri
efnahagslegur ávinningur en
mótherjanum á fjölmörgum
sviðum, því að markaðskerfið á
Vesturlöndum hefur óneitan-
lega þvingað fram gæðavöru
og þekkingarleit sem miðast
meira við þarfir neytandans en
styrkleika út á við. Finnst
mörgum jafnvel alræði neyt-
andans á Vesturlöndum of mik-
ið og vilja beina framleiðslunni
i heppilegri farveg.
1. TAFLA
Áætlaðar skuldir Austantjalds-
ríkja í hörðum gjaldmiðlum
í lok 1976.
Milljarðar Bandaríkjadala.
Búlgaría 2,0
Tékkóslóvakía 1,4
Austur-Þýskaland 3,1
Ungverjaland 3,6
Pólland 9,0
Rúmenía 3,1
Sovétríkin 15,0
Samtals 37,1
Hér er ekki fjallað um þátt
Kína sérstaklega, en þeir hafa
ekki síður en Sovétmenn getið
sér orð fyrir að vera snjallir
samningamenn, ef þeim býður
svo við að horfa.
VERÐBÓLGAN
Ég minnist þess að frá þvi
var greint hér í útvarpsfrétt-
um að verðbólga væri engin í
einhverju austantjaldsríki.
Þetta er eins og þegar sagt var
að á Vopnafirði væri engin
verðbólga því að allt væri skrif-
að. En verðbólga getur lýst sér
í því að vörugæðum fer hrak-
andi, skammtar minnka o.s.frv.
Áætlað hefur verið að verð-
bólga hafi verið 10—15% aust-
an tjalds á sl. ári, sem er ekkl
óáþekkt því sem gerist vestan
tjalds í Evrópu, þótt einstök
lönd skeri sig úr með minni
vei'ðbólgu, eins og Sviss og
Vestur-Þýskaland.
Hins vegar er ekki vafi á því
að sú mikla verðbólgualda sem
i’eis 1973 varð ekki eins há
austan tjalds og menn hafa
jafnvel velt því fyrir sér, hvort
frjálst markaðskerfi hafi staðið
sig betur við þær aðstæður en
miðstýrðu kerfin. Mismunandi
verðbólga endurspeglast lítið í
viðskiptasamningnum, því að
yfirleitt er tekið mið af mark-
aðsverði í vestrænum ríkjum
þegar viðskipti eiga sér stað
milli austurs og vesturs.
ÁRANGUR HAFTASTEFNU
HÆPINN
Þegar á heildina er litið er
freistandi að draga ályktun að
sú haftastefna sem rekin hefur
verið að frumkvæði Bandaríkj-
anna varðandi viðskipti við
lðndin austan tjalds hafði orðið
Vesturlöndum til meira tjóns
en ávinnings. Bann við því að
selja ýmis hráefni o.fl. austur
á bóginn varð til þess að þjappa
austantjaldsríkjunum saman og
réttlæting á viðskiptastefnu
Sovétríkjanna gagnvart ná-
grannaríkjum sínum. Vaxandi
skilningur er á því á Vestur-
löndum að viðskiptin þurfi að
vera frjálsari.
Stundum er ei'fitt að átta sig
á því hver er að plata hvern.
Mér var sögð sú saga af ráð-
stefnu kjarnorkuvísindamanna,
sem Bandaríkjamenn og Rúss-
ar sóttu, að Bandaríkjamönn-
unum var fyrirskipað að segja
ekki frá því, sem Rússar hefðu
sagt á ráðstefnunni, því að það
væri ríkisleyndarmál þar
vestra.
SMARI HF.
Byggingaverktakar
Furuvöllum 3, Akureyri
Sími 96-21234
Byggjuxxx íbúðir til endursölu.
Gerum tilboð í smærri sem stærri verk.
Raflagnir, viðgerðir og cfnissala.
Leigjum út BROYTx2 og jarðýtu T. D. B 9.
SMÁRI HF.
FV 4 1978
25