Frjáls verslun - 01.04.1978, Blaðsíða 7
Þeir gera það ekki
endasleppt sem fara með
almannafé. Nú fyrir
skönnnu tók Vegagerð
rikisins á leigu mikinn
krana hjá verktakafyrir-
tæki, til að sinna verkefn-
um við Borgarfjarðar-
brúna. Flutningur kran-
ans frá Reykjavík á
vinnustað kostaði um
tvær milljónir króna, en
leiguverð hans var á milli
20 og 30 þúsund krónur á
klukkustund. Þegar þetta
dýra tæki var komið á
vinnustaðinn kom í ljós að
hinir opinberu aðilar voru
ckki tilbúnir með þann
undirbúning, sem nauð-
synlegur var til að kran-
inn gæti hafið störf. Hef-
ur verkfærið því verið
látið standa og þegar síð-
ast var vitað var „vinnu-
tímareikningurinn“ kom-
inn upp í 7 milljónir
króna án þess að bómu
hefði verið sveiflað.
Samgönguráðherra vill
að sjálfsögðu að bygging
Bor garf j arðarbr úarinnar
verði gerð á sem hag-
kvæmastan hátt, enda var
strax í upphafi ákveðið að
bjóða verkið ekki út á
frjálsum markaði. Vega-
gerðin hefur því haft veg
og vanda af byggingunni
samkvæmt „hæfilegri“
kostnaðaráætlun. Fyrir
skömmu tók vegagerðin á
leigu stóra grjótflutnings-
bíla frá verktakafyrirtæk-
inu ístak hf. til flutnings
á grjóti á vinnustað. Þeg-
ar bílarnir voru komnir
langleiðina upp í kjör-
dæmi samgönguráðherra
bárust þeim boð frá
Reykjavík um að snúa án
tafar aftur. Ráðherrann
hafði þá eftir heimsókn
frá vörubílstjórum í kjör-
dæminu, gert nýja hag-
kvæmnisáætlun, sem
sýndi á óyggjandi hátt að
mun hagkvæmara yrði að
nota vörubíla frá Akra-
nesi þó um mun minni
rekstrareiningar væri að
ræða en grjótflutningsbíla
ístaks.
Menn velta mikið fyrir
sér, hverjir helzt komi til
greina í borgarstjóraem-
bætti í Reykjavík undir
vinstri stjórn, eða fram-
kvæmdastjórastöðuna
eins og hún á að heita á
máli hins nýja meiri-
hluta. Nefndir hafa verið:
Ingi R. Helgason, lög-
fræðingur, Þröstur Ólafs-
son, hagfræðingur, Björn
Friðfinnsson, fyrrverandi
bæjarstjóri á Húsavík,
Jón Sigurðsson, forstöðu-
inaður Þjóðhagsstofnunar
og Bjarni Einarsson, fyrr-
verandi bæjarstjóri á Ak-
ureyri.
Heyrst hefur að Flug-
leiðir séu nú í þann mund
að missa eina af sínum
bestu flugleiðum, leiðina
á milli Glasgow og Kaup-
mannahafnar. Flugfélag
íslands hefur flogið þrisv-
ar sinnum í viku á þess-
ari leið á móti SAS og
byggt upp stóran og ör-
uggan markað. Eru það
ekki sízt kaupsýslumenn
sem flogið hafa þessa leið
með FÍ, en brezk flug-
félög hafa ekki sinnt flugi
milli Skotlands og
Skandinaviu. Nú vill Brit-
ish Caledonian hins vegar
taka við flugleiðinni og
liggur þá beint við að
flugfélag frá þriðja landi
verði sett út á kaldan
klakann.
Hermt er að Síldarút-
vegsnefnd hafi sett sig á
móti tillögu Hollendinga
um að reisa síldartunnu-
verksmiðju í Portúgal til
framlciðslu fyrir íslenzk-
an markað. Þetta kom
fram í viðræðum portú-
gölsku viðskiptanefndar-
innar sem var hérlendis í
apríllok. Síldarútvegs-
nefnd kaupir allar tunnur
til landsins frá Norð-
mönnum, sem eru okkar
aðalkcppinautar á salt-
fiskmarkaði í Portúgal,
og munu þau viðskipti
neina hátt í milljarð
króna. Hollenzka fyrir-
tækið sem býðst til að
reisa verksmiðjuna í
Portúgal er vel þekktur
síldartunnuframleiðandi
og hefur einmitt notað
efni frá Portúgal í síldar-
tunnurnar. í álitsgerð frá
Framleiðslueftirliti sjáv-
arafurða og Rannsóknar-
stofnun byggingariðnað-
arins um athuganir á gæð-
um hollensku tunnanna
var niðurstaðan jákvæð.
Það sem vekur athygli er
að svo stórfelld innkaup
skuli gerð án þess að um
útboð sé að ræða. Víðast
hvar hjá hinu opinbera
eru útboð látin ráða inn-
kaupum, allt frá túrbín-
um niður í áklæði. íslend-
ingar þurfa að fara allar
raunhæfar leiðir til að
styrkja markaðsaðstöðu
sína í Portúgal og virðist
hér vera um ágæta leið
til að auka viðskiptin við
það land. Rétt er að
vitna í viðtal sem Sjáv-
arfréttir áttu nýverið við
Eyvind Bolle sjávarút-
vcgsráðherra Noregs þar
sem hann segir beinum
orðum að Norðmenn
greiði niður saltfiskinn til
Portúgals.
FV 4 1978
7