Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1978, Blaðsíða 22

Frjáls verslun - 01.04.1978, Blaðsíða 22
Advertising Age Frásagnir af fólki sem er áberandi í auglysingum Tímaritið Advertising Age í Bandaríkjunum birti nýlega frásögn af fólki, sem sérstak- lega var áberandi á sviði aug- lýsinga á síðasta ári. Hér fer á eftir endursögð frásögn af sumu af þessu fólki. # Rupert Hfurdoch í fyrra tók Rupert Murdoch við rekstri dagblaðsins New York Post, sem þá átti í al- varlegum fjárhagsörðugleikum. Blaðið hafði hægt og hægt dregist aftur úr í samkeppni við New York Daily News, sem er nú útbreiddasta dag- blað í Bandaríkjunum, með um tveggja milljóna sölu á dag. Murdoch er Ástralíumaður, sem á undanförnum árum hefur safnað blöðum og tímaritum í Evrópu. Menn óttuðust í New York, að hann myndi gera Post að æsifregnablaði og það reynd- ist vissulega rétt. Honum hef- ur tekist að auka útbreiðslu blaðsins um hundrað þúsund eintök og selst það nú í 600 þúsund eintökum á dag. Þá hef- ur honum tekist að auka veru- lega auglýsingar í blaðinu, en keppinautar hans segja, að hann eyði enn meiri peningum í blaðið en það gefi af sér. Murdoch hefur sjálfur tekið mikinn þátt í rekstrinum síð- an hann keypti blaðið og varla farið frá New York síðan. Al- ræmt er orðið, hvernig hann hagaði frásögnum af leitinni að morðingjanum „Son of Sam“. Hann stjórnaði því persónu- lega og varð það til þess að ritstjóri blaðsins og nokkrir blaðamenn sögðu upp störfum sínum. Þeir segja að hann hafi fyrirskipað þeim að hafa æsi- frétt um málið á forsíðu á hverjum degi. Ef engin frétt væri, yrðu þeir að finna hana upp. Leitun mun á öðrum eins sóðaskap í blaðamennsku eins og þar fór fram. Það setti að manni að lesa þetta dag frá degi. # Freddie Laker Óhætt er að segja að enginn einn maður í viðskiptalífinu hafi náð eins langt og Freddie Laker, án þess að þurfa að borga fyrir sínar auglýsingar. Hann segir sjálfur að á þeirn sex árum, sem hann er búinn að berjast við ríkisstjórnir Bretlands og Bandaríkjanna til að fá að fljúga Skytrain yfir hafið, hafi hann eytt um einni milljóri dollara í kynningar- starfsemi. En hvað er það mið- að við það sem hann hefur fengið í staðinn? Er hægt að verðleggja það að vera á for- síðum Time og Newsweek, í sömu vikunni? Þetta byggist mest á því hvernig maður Freddie Laker er. Ég hef hlustað á hann flytja ræðu og það gerir hann af slíku lífi og krafti, að ekki fer fram- hjá neinum, að sérstakur mað- ur er á ferð. Hann segist meðal annars vera eini maðurinn í heiminum, sem hafi rekið flug- félag í 30 ár án þess að tapa peningum í eitt ár. Hann er ófeiminn maður og gerir mik- ið úr sínum auði. Hann segist meðal annars vilja dreifa hon- um með því, að bjóða fólki þægilegar ferðir, í fyrsta flokks flugvélum, fyrir miklu minna fé en stóru flugfélögin vilja gera. Á því leikur heldur eng- inn vafi, að þegar upp er stað- ið, hefur Freddie Laker lækk- að verð á flugfari yfir Atlants- haf um helming. Öll önnur flug- félög verða að bjóða sams kon- ar fargjöld á Atlantshafi, þó að ekki hafi þessi þróun náð til íslands enn. # Billy Carter Bróðir Jimmy Carters Banda- ríkjaforseta, hefur verið í fréttum á árinu. Hann hefur tekið þá stefnu að græða á frægð bróður síns og gengur það svo vel, að hann hafði á síðasta ári um 500 þúsund doll- ara tekjur, sem er meira en helmingi meira en Jimmy hafði í laun. Ýmsum virðist Billy vera feitlagið fífl, sem situr á kassa við bensínstöðina og svolgrar bjór. Það er öðru nær. Billy hefur um nokkurra ára skeið rekið fyrirtæki fjölskyld- unnar, sem ræktar og pakkar hnetum. Honum hefur tekist svo vel við reksturinn, að kunn- ugir segja hann miklu færari mann í viðskiptum en Jimmy. Þá hefur hann notað frægð sína af mikilli skynsemi. Hann kemur ekki fram nema sjald- an opinberlega og tekur þá 5 þúsund dollara fyrir, eða ná- lægt 1,3 milljónir króna, og því aðeins að greitt sé að fullu fyr- irfram. Hann hefur ekki breytt sínum lifnaðarháttum, því að hann segir, að ekki verði Jimmy forseti til eilífðar og því sé um að gera að spara. Hann hefur einnig gætt þess vel að ljá ekki nafn sitt við hvaða vörur sem er. Sennilegt er, að hann eigi eftir að græða hvað mest á bjórtegund, sem heitir eftir honum, ,,Billy“. Þessi bjór er nú kominn á markaðinn í 48 af 50 ríkjum Bandaríkjanna. — Ó. S. 22 FV 4 1978
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.