Frjáls verslun - 01.04.1978, Blaðsíða 82
331.037 lítra af Thule öli, sem
var 55,4% af framleiðslunni og
var það nokkurn veginn það
magn sem áætlað hafði verið
að framleiða. Af gosi voru
framleiddir 266.226 lítrar. —
Aðal salan í gosi hjá okkur er
á appelsíni, sagði Gunnar, en
aðrar tegundir sem við fram-
leiðum eru Mix, Læm, Jolly
cola, engifer öl og Vallash. Af
maltöli framleiðum við 11.500
lítra á ári, sem verður að telj-
ast lítið. Þá er alltaf framleitt
nokkuð af ávaxtasafa, sem ein-
faldlega er kallaður Safi og hef-
ur salan á honum verið að
aukast að undanförnu. Fyrir
jólin höfum við verið með sér-
stakt öl, jólaöl, sem hefur orð-
ið geysivinsælt. Við byrjum að
seljá’það svona viku fyrir jól
og fólk kemur þá gjarnan með
brúsa sjálft, en við höfum af-
greitt þetta í 10 lítra mjólkur-
kössum. Fyrir síðustu jól seld-
um við 29.168 lítra af þessu öli.
Það er að vísu ekki allt drukkið
hér á Akureyri. Klúbbar út um
land hafa keypt nokkuð mikið
af þessu og selt aftur til fjár-
öflunar. Fyrir páska erum við
svo með svipaða framleiðslu,
en í miklu minni mæli. Þá er
þetta kallað páskaöl.
TILBÚNIR f STERKA
BJÓRINN
Hér á árum áður var Sana
með framleiðslu á sterku export
öli, en sú framleiðsla féll niður
aftur. — Við höfum verið að
kanna möguleikana á að byrja
aftur, sagði Gunnar, — en það
hefur ekki lukkast. Hins vegar
þurfum við ekki nein önnur
tæki til framleiðslunnar en þau
sem við notum til að framleiða
Thule. Ef leyft yrði að selja
bjór á íslandi værum við til-
búnir að framleiða sterkan
bjór. Persónulega held ég að
tími sé til kominn að leyfa
framleiðslu á sterku öli, þvi
þetta er orðið framleitt í öðru
hvoru húsi og allan útbúnað til
þess er hægt að fá í næstu búð.
Eins og hjá fleiri fyrirtækj-
um úti á landi, er flutnings-
kostnaður mikið vandamál hjá
Sana. — Thule kostar t.d. það
sama í Reykjavík og hér, sagði
Gunnar. — Akureyringar eru
því að borga flutningskostnað-
inn að hluta fyrir Reykvíkinga.
Hins vegar eru okkar gosdrykk-
ir ódýrari hér en gosdrykkir
að sunnan. Ofan á gos og öl sem
flutt er hingað má bæta flutn-
ingskostnaði. Verðlagsyfirvöld
settu þetta sem skilyrði þegar
verðhækkun var leyfð síðast.
Flutningskostnaðurinn er nú
um 10% á hvern kassa, en
flutningana sjáum við alveg um
sjálfir á okkar eigin bíl. Annar
vandi sem fylgir því að vera
með svona verksmiðju á Akur-
eyri, er að markaðurinn er lít-
ill. Aðal markaðssvæðið er á
suð-vestur horninu, en þá þarf
að flytja framleiðsluna þangað.
LÍTIL ENDURNÝJUN VÉLA
í 10 ÁR
— Vélakostur verksmiðjunn-
ar hefur því miður lítið verið
endurnýjaður síðustu 10 árin,
sagði Gunnar. — Hins vegar
erum við að gera átak í því að
lagfæra og endurnýja vélarnar.
Til þess skortir okkur þó bæði
fé og tíma. Það er erfitt að
missa daga úr framleiðslu.
—Það er eins með þetta fyr-
irtæki og önnur, sagði Gunnar.
— Það er hægt að láta það
ganga með nokkru aðhaldi og
með því að standa við það sem
lofað er að afgreiða og ekki síst
með því að hafa framleiðsluna
fyrsta flokks. Við höfum verið
svolitið í vandræðum með
Thule ölið, en það hefur viljað
setjast grugg í botninn á flösk-
unum. En það er bara það sem
gerist með allt öl. Jafnvel
Carlsberg ábyrgist ekki nema
4 mánaða geymslutíma áður en
botnfall fer að koma í flösk-
urnar. Því veikara sem ölið er,
því meiri er áhættan.
Að lokum sagðist Gunnar
vilja taka það fram, að Sana
hefði úrvals starfskrafta í sinni
þjónustu, en hjá verksmiðj-
unni starfa 15 manns.
Sandblástur
og málmhuðun:
Ljósa-
staurar
sorpílát
og frysti-
rammar
meðal
fram-
leiðslu
vara
Til skamms tíma var fyrir-
tækið Sandblástur og málmhúð-
un s.f. á Akureyri eina fyrir-
tækið á landinu sem tók að sér
að galvanisera málmhluti. Til
að heyra nánar af þessu fyrir-
tæki heimsótti Frjáls verslun
framkvæmdastjórann Jóhann
Guðmundsson.
— Við notum tvær aðferðir
við að húða hluti, sagði Jóhann.
— í fyrsta lagi erum við með
kaldhúðun, en það er einfald-
lega sprautun með kaldri zink-
upplausn. í öðru lagi heithúð-
um við, en það er miklu flókn-
ari aðferð. Þá er byrjað á því
að affita hlutinn sem húða á i
100 gráða heitum sápulegi. Síð-
an er hann settur í saltsýru til
enn frekari hreinsunar og þar
á eftir er honum dýft í húðun-
arkerið, en í því er 460 gráða
heitur zinklögur. Ef bera á
saman þessar tvær aðferðir, þá
er enginn vafi á því að heit-
húðunin er miklu endingar-
betri og langsamlega það besta
sem völ er á.
VINNA MIKIÐ FYRIR
SLIPPSTÖÐINA
— Við húðum allt sem nöfn-
um tjáir að nefna, sagði Jó-
hann. — Við erum með járn-
smiðju sjálfir, þar sem við
framleiðum ljósastaura, grinda-
82
FV 4 1978