Frjáls verslun - 01.04.1978, Blaðsíða 89
Trésmiðja Björns Olafssonar:
Heldur upp á 30
ára afmæli sitt um
þessar mundir
Eitt af myndarlegri iðnaðarhúsum í nýja iðnaðarhverfinu í Hafn-
arfirði er nýlegt verksmiðjuhús Trésmiðju Björns Ólafssonar.
Húsið er sérkennilega skreytt að utan og ber þess merki að þar
er snyrtimennska í hávegum höfð. Þegar inn er komið fer ekkert
á milli mála að hér er til húsa vel rekið fyrirtæki, enda er þar
líf í tuskunum, — framleitt af fullum krafti. Fyrirtækið er 30 ára
um þessar mundir og í tilefni þess ræddi F.V. við stofnandann
Björn Ólafsson trésmíðameistara og framkvæmdastjóra fyrirtæk-
isins.
arfirði hefur Hamarinn hf. nú
hafist handa við byggingu
fyrsta fjölbýlishússins í Grinda-
vík, en það byggir fyrirtækið á
eigin vegum og selur. í fyrsta
áfanga verða 9 íbúðir en alls
verða 27 íbúðir í þeirri blokk.
4 MENN í STAÐ 8 —
OG AFKÖSTIN SAMT MEIBI
Metriform-mótin eru byggð
upp af stálstoðum og sérstökum
römmum úr vinkilstáli. í
rammana er raðað vatnsheldum
krossviðarplötum þannig að
þær koma kant í kant og mynda
þannig samfellt steypumót.
Krossviðurinn er olíuborinn áð-
ur en stillt er upp og liggur því
laus við steypuna. Vegna mat-
kerfisins er vinnan við móta-
uppsetningu mjög létt og fljót-
leg. Stórt atriði í hagkvæmni
þessara móta er að þau eru rif-
in án þess að stoðum sé haggað
og kemur því aldrei hnykkur á.
Þetta er gert þannig áð bitárn-
ir sem halda uppi römmunum í
loftauppslætti 'eru þannig festir
á stoðirnar að hægt er að
hleypa þeim niður um nokkrar
tommur og lenda þeir þá á sér-
stökum stalli á stoðinni, en
stoðin gengur alveg upp að
steypunni slétt við mótaklæðn-
inguna. Á þennan hátt er hægt
að rífa alla klæðninguna án
þess að stoðunum sé haggað, en
þessi tækni gerir það kleyft
að nýta mótin mun örar auk
þess sem engin hætta er á sigi
þótt mót sér fjarlægð mun fyrr
en tíðkast hefur.
Með Metriform-mótunum
fara 3 iðnarmenn ásamt krana-
manni létt með að byggja 200
fermetra blokkarhæð á 3 vik-
um og jafnvel skemur sé hart
keyrt. Með gömlu aðferðunum
væru, að sögn kunnugra, um 8
menn við verkið og væru auk
þess talsvert lengur með hverja
hæð. Er þá miðað við hefðbund-
inn mótauppslátt úr timbri,
sem merkilegt nokk mun enn
tíðkast við byggingu íbúðar-
blokka.
Pétur Jökull var að lokum
spurður um hvað Metriform-
mótin kostuðu og sagði hann
þau kosta nú í maí 78 á milli 3
og 4 þúsund krónur hver fer-
metri.
F.V. — Nú hafa orðið miklar
breytingar í atvinnulífinu á
ekki lengri tíma en 30 árum.
Hverjar eru þér efst í huga
nú?
Björn: — Aðstæður eru ólík-
ar nú miðað við það sem var
ríkjandi þegar ég byrjaði niðri
á Nönnustíg 8 með einn mann
með mér. Til gamans má nefna
það, að það verkstæði var á
stærð við kaffistofuna sem við
höfum hér nú. Þremur árum
síðar var ég kominn með 4
menn í vinnu.
FÉKK LEYFI TIL AÐ REKA
VERKSTÆÐI EN EKKI TIL
AÐ KAUPA EFNI
Þann tíma sem við vorum á
Nönnustígnum var haftastefnan
í algleymingi. Fjárhagsráð
skammtaði mönnum leyfi tjl
rekstrar og fjárfestinga. Ég
fékk t.d. leyfi til að reka verk-
stæði en ekki til að kaupa efni.
Mér er það minnisstætt að í
fyrstu innréttinguna sem við
smíðuðum þurfti 5 plötur af
krossvið. Á þessum tíma var
viðurinn, eins og svo margt
Trésmiðja Björns Ólafssonar í Hafnarfirði.
FV 4 1978
80