Frjáls verslun - 01.04.1978, Page 63
Blaðaútgáfa vestan hafs
Eiga kvennablöðin
rétt á sér?
Sagt frá nokkrum kvenna- og heimilisblöðum, sem náð hafa
útbreiðslu í Bandaríkjunum
Eitt a£ því, sem Rauðsokkur ok aðrar kvenfrelsiskonur á Vestur-
löndum hafa haldið fram, er að kvennablöð stefni að því að nýta
sérstöðu, sem þjóðfélagið hafi skapað konum, sjálfum sér og ýms-
um framleiðendum til framgangs. Þær hafa viljað draga úr áhrif-
um þessara timarita og stofnuðu í þeim tilgangi mörg tímarit
sjálfar. Ekki hafa þær haft erindi sem erfiði og flest þessara
blaða hafa ekki lifað lengi. Það eina sem hefur náð umtalsverðri
útbreiðslu er bandaríska blaðið MS, en ritstjóri þess er Gloria
Steinem.
Fyrir skömmu skýrði New
York Times frá því, að aldrei
hefðu fleiri kvennablöð keppt
um hylli kvenna en nú og færi
fjölgandi. Nokkur blöð hófu
göngu sína á undanförnum
tveimur árum og að minnsta
kosti sex hefja göngu sína í
Bandaríkjunum á þessu ári.
Eitt þessara rita er hætt að
koma út, sem hét Women
Sports. Working Woman er
gjaldþrota, en kemur kannski
út áfram, og Redbook er að inn-
lima American Home.
Time Inc. hefur að undan-
förnu búið sig undir að gefa út
blað sem átti að heita Woman,
en allt bendir til að það komi
aldrei út.
Fyrir fáum árum sögðu spá-
menn að kvennahreyfingin
myndi ganga af kvennablöðun-
um dauðum. Konur hefðu nú
áhuga á háleitara lesefni, en
fegrun, tísku, heimilisþáttum,
matreiðslu og rómantískum
sögum.
Spámennirnir reyndust hafa
rangt fyrir sér. Flest kvenna-
blöð í Bandaríkjunum njóta nú
mikils gengis og auglýsingar
hafa aldrei verið meiri en nú.
Auglýsendur í Bandaríkjunum
snúa nú í vaxandi mæli til
tímarita, vegna síhækkandi
verðs á sjónvarpsauglýsingum.
McCalls er stærst, með 6.5
milljón áskrifendur. Þau næstu
fjögur eru Ladies Home Jour-
nal með 6 milljónir áskrifenda,
Good Housekeeping með 5
milljónir, Redbook með 4,7
milljónir og Cosmopolitan með
2,5 milljónir áskrifenda.
í Bandaríkjunum kemur út
kvennablað, sem nefnist
L’Officiel USA. Þetta glæsi
lega rit með mikið af litmynd-
um einbeitir sér að dýrum
tískufötum, fyrir konur í háum
launaflokki. Blaðið selst í 135
þúsund eintökum og útgefand-
inn segir að hann hafi fengið
hugmyndina, er hann heyrði æ
ofan í æ vel efnaðar konur
kvarta yfir hinum hefðbundnu
kvennablöðum, þær scgðu að
þar væri að finna skrítna tísku,
sem ekki hentaði þeim, og til-
sögn í heimilishaldi og matseld,
sem þær hefðu ekki þörf fyrir.
Annað nýtt rit heitir Ambi-
ance. Það er ætlað fyrir konur
sem hafa mikið að gera og úr
miklu að spila. Meginefni blaðs-
ins er um tísku og snyrtingu,
auk ráðlegginga um heilsu-
gæslu og líkamsæfingar. Út-
gefandi blaðsins segir að bæði
Vogue og Harpers séu orðin
gamaldags. Þau einblíni á
París, en bandarískar konur
vilji fá að vita um þau föt, sem
fást í Bandaríkjunum. Þær
kaupi ekki frá tískuteiknurum í
París, heldur versli þær í dýr-
um búðum í New York og ann-
arsstaðar í Bandaríkjunum.
Þriðja nýja tískublaðið nefn-
ist Rags. Það er skrifað í
mjög léttum tón og má nefna
fyrirsagnir svo sem „Hvernig
þú átt að líta út þegar þú
syndir nakin“ og „Langar þig
raunverulega til að fá hrukk-
ur.“
Enn hafa menn trú á að ástin
selji blöð. Nú er að koma á
markaðinn nýtt vikurit, sem
nefnist „Romance Weekly“. Það
er ætlað sömu konunum og
lesa rómantiskar skáldsögur,
sem seljast í gífurlegum upp-
lögum í Bandaríkjunum.
Svo er að sjá, sem kvenna-
hreyfingin hafi skapað þörf
fyrir nýja tegund af tímaritum.
Þessi rit eru yfirleitt miðuð
við konur, sem starfa utan
heimilis, konur sem þurfa að
taka ákvarðanir um hluti eins
og að kaupa bíl, kaupa íbúð,
hvernig tryggingar þær eigi að
kaupa og margvisleg önnur
mál, sem hafa verið í verka-
hring karlmanna. Að sögn New
York Times hafa þessar sjálf-
stæðu konur eftir sem áður á-
huga á fötum, fegrun og ást, þó
að þær komist ekki hjá að
sinna öðrum málefnum.
FV 4 1978
63