Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1978, Page 88

Frjáls verslun - 01.04.1978, Page 88
Hamar hf. í Hafnarfirði: IMetriform - mót hafa í reynd lækkað íbúðarverð verulega Ibúðarverðið þannig 3 - 3,5 m. undir ráðandi markaðsverði Hamarinn hf. í Hafnarfirði er verktakafyrirtæki í byggingariðn- aði. Framkvæmdastjórar fyrirtækisins eru þeir Pétur Jökull og Hallgrímur Guðmundsson. Fyrirtækið var stofnað árið 1975, en hafði áður starfað við byggingariðnað í 2 ár. Hamarinn hf. hefur nú í ár fengið úthlutað lóð í Hafnarfirði fyrir eitt stigahús í blokk en hafði áður byggt á lóðum hér og þar í Firðinum, annaðhvort sem byggjandi og seljandi eða sem verktaki. Á undanförnum árum hefur Hamarinn hf. notað sérstök steypumót frá Bretlandi. Þessi mót kallast ,,metriform“ og eru þau mun fullkomnari og hag- kvæmari en flest þau steypu- mót sem hingað til hafa verið notuð. Hamarinn hf. hefur not- að þau í öllum þeim bygging- um sem þeir hafa reist og er vinnusparnaðurinn gífurlegur. Sem dæmi nefndi Pétur Jökull að tvær blokkir sem stæðu hlið við hlið í Hafnarfirði hefðu verið byggðar með sitthvorri aðferðinni, önnur með Metri- form-mótum en hin með venju- legum uppslætti. Sams konar íbúðir væru nú seldar á 10,7 milljónir tilbúnar undir tréverk í því húsinu sem byggt er á hefð- bundinn hátt, en á 10,5 millj- ónir með öllu tréverki í því húsinu sem byggt var með Metriform-mótunum. Pétur sagði að stærsti liður- inn í þessu væri sá vinnusparn- aður sem fælist í þeirri tækni sem uppsetning og niðurtekn- ing Metriform-mótanna byggð- ist á og því hvernig steypan kæmi úr mótunum. Fínpússn- ing væri úr sögunni nema inn- an á útveggjum eftir einangr- un. Þessi mót ásamt þeirri vinnu- hagræðingu sem beitt er sam- hliða notkun þeirra hefur það í för með sér að íbúðarverð er sem næst 3—3,5 milljónum króna undir ráðandi markaðs- verði. Pétur sagði það sýna vel á hvern hátt lækka mætti bygg- ingarkostnað að þeir sem -fengju fjármagnsfyrirgreiðslu til þess að kaupa mót af þessari gerð væru, næstum undantekn- ingarlaust, þeir byggingaraðil- ar hérlendis sem gætu byggt íbúðir töluvert undir bygging- arvísitölu. HAFA SELT FLESTUM BYGGINGAVERKTÖKUM STEYPUMÓT Hamarinn hf. hefur flutt inn og selt Metriform-steypumót um nokkurt skeið. Hafa nú flestir stærri byggingaverk- takanna hérlendis tekið þessi mót í notkun, má þar nefna þann margfræga Smára hf. á Akureyri sem undanfarin ár hefur sýnt, svo ekki verður um villst, hvað hægt er að lækka byggingarkostnað sé rétt að málunum staðið, Pétur Jökull sagðist vilja benda á annað at- riði sem ekki vægi minna i þessu samhengi, en það væri af- staða bæjaryfirvalda á Akur- eyri til byggingariðnaðarins þar. Á Akureyri væru nú byggðar ódýrari íbúðir en víða annars staðar og ástæðan væri, auk mótatækninnar sú, að Ak- ureyrarbær úthlutaði sínum byggingaverktökum lóðum í miklu stærri einingum en víð- ast hvar tíðkast hérlendis. Þeg- ar verktaka í Hafnarfirði sé úthlutað lóðarparti fyrir eitt stigahús í blokk, sé verktaka á Akureyri úthlutað heilu bygg- ingarsvæði eða hverfi til tveggja ára framleiðslu á íbúð- um. Slík vinnubrögð skiluðu neytendum, í þessu tilfelli íbúð- arkaupendum, tugmilljónum króna í lægra íbúðarverði og gögnuðu því fyrst og fremst hagsmunum heildarinnar. í Hafnarfirði er skipulagsvinnan langt á eftir og því allt of fáar lóðir tilbúnar til framkvæmda en ofan á það bætist síðan sú pólitík, að allir skuli fá eitt- hvað en enginn nóg. Vegna skorts á lóðum í Hafn- Pétur Jökull í nýbyggingu, sem Hamarinn hf. er að reisa. «8 FV 4 197S

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.