Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1978, Síða 12

Frjáls verslun - 01.05.1978, Síða 12
STIKLAÐ A STORU... • Frjálsi lífeyrissjóðurinn Fjármálaráðuneytið hefur nýlega staðfest reglugerð fyrir nýjan líf- eyrissjóð - FRJÁLSA LÍFEYRIS- SJÓÐINN. Félagar í sjóðnum geta orðið allir einstaklingar, sem leggja stund á atvinnurekstur, eða eru ekki lög- skyldaðir til að vera í öðrum líf- eyrissjóðum. Stjórn sjóðsins er stjórn Fjárfest- ingarfélags Islands h.f., eins og hún er kjörin á aðalfundi félagsins á hverjum tíma. Frjálsi lífeyrissjóðurinn er sér- eignarsjóður. Nettótekjur sjóðsins skiptast milli sjóðfélaga í hlutfalli við eign hvers um sig og færast ár- lega á sérreikning þeirra. Sjóðfélagi, sem orðinn er 60 ára að aldri, fær inneign sína greidda á eigi skemmri tíma en 10 árum. Sama rétt hefur sjóðfélagi, sem verður að hætta störfum vegna heilsubilunar, áður en hann nær 60 ára aldri. Deyi sjóðfélagi, fellur inn- eign hans í sjóðnum til erfingja hans með jöfnum greiðslum á minnst 10 árum. Sjóðurinn hyggst ávaxta eignir sínar með verðtryggðum skulda- bréfakaupum og með fasteigna- veðstryggðum skuldabréfum á viðurkenndu markaðsverði slíkra bréfa, á þeim tíma, sem kaupin fara fram. • Framleiðni sf. stofnuð Hinn 25. maí var haldinn í Reykjavík framhaldsstofnfundur fyrirtækisins Framleiðni sf. Var hann haldinn í tengslum við aðal- fund Félags Sambandsfiskfram- leiðenda. Stofnfundur þessa félags var haldinn á Höfn í Hornafirði hinn 4. nóvember s. I., og voru stofnendur úr hópi frystihúsanna innan Félags Sambandsfiskframleiðenda, auk Sambandsins. Megintilgangur þess er að sinna rekstrarráðgjöf og eftirliti með framleiðni fyrir Sam- bandsfrystihúsin. Hefur það þegar hafið störf, og hefur komið í Ijós, að verkefni á þessum vettvangi eru ærin og orðið tímabært að sinna þeim með skipulegum hætti. Á fundinum í Reykjavík var gengið frá stofnsamþykktum félagsins og kosin stjórn þess. f henni eiga sæti þeir Tryggvi Finns- son, Húsavík, Hermann Hansson, Höfn í Hornafirði, og Aðalsteinn Gottskálksson, Dalvík, sem aðal- menn, og þeirSigurður Markússon, Reykjavík, og Helgi Jónatansson, Patreksfirði, sem varamenn. Fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins er Árni Benediktsson, og hefur það opnað skrifstofu að Suðurlandsbraut 32 í Reykjavík. • Tíðni ferða Eimskips Árið 1977 komu skip E. I. og leiguskip félagsins 1079 sinnum á 51 íslenzka höfn utan Reykjavíkur. Árið 1976 voru hafnirnar 50 og skipakomur 1089. Erlendu hafnirnar, sem sóttar voru heim af skipum í þjónustu E. (., urðu 102 í 22 löndum árið 1977 og þangað komu skipin 1006 sinnum. Árið 1976 voru hafnirnar 85, löndin 18 og skipakomur E. I þar alls 907. Erlendu viðkomunum hefur því fjölgað um 99 á árinu 1977. Árið sem leið reyndist heildar- þyngd fluttrar vöru með skipum E. I 553 þúsund tonn. Er það 30 þúsund tonnum meira en árið 1976. Hér er þyngdin ein talin en vöru- rými ekki, þó að það gefi oft engu síður vísbendingu um magn flutninga en þyngd þeirra ein saman. • Aukning í hrossaútflutningi Búvörudeild Sambandsins flytur eins og kunnugt er árlega út tals- verðan fjölda af hestum á fæti, og eru þeir sendir með flugvélum til kaupenda víðs vegar í nágranna- löndunum. Þessi útflutningur hefur verið með meira móti undanfarið, en frá áramótum til aprílloka voru samtals fluttir úr landi 195 hestar, að heildarverðmæti 67 millj. kr. Á sama tímabili í fyrra voru hins vegar seldir 139 hestar að verðmæti 30 millj. kr., svo að aukningin er veru- leg, jafnt að því er snertir fjölda hestanna og verðið sem fyrir þá fæst. Eftirspurn kaupenda er því ótvírætt mun meiri í ár en oft áður, og gætir þessa ekki hvað sízt í Þýzkalandi, en einnig á Norður- löndum. Þá hefur á vegum búvöru- deildar verið unnið talsvert að því að byggja upp markað fyrir íslenzka hesta í Ameríku, og eru góðar horfur á því að þar geti tekizt að afla traustra viðskiptasambanda á þessu sviði. • Aukinn halli á þjóðleikhúsi Leikárið 1969— 70 voru sýningar þjóðleikhússins 208 og fjöldi áhorfenda 75.958. Leikárið á eftir, 1970—71, varsýningafjöldi 229, og áhorfendur 87.833. Leikárið 1974— 5 voru sýningar hins vegar 397 og áhorfendur 119.363. 1975— 6 voru 394 sýningar og 134.090 áhorfendur og 1976—77 319 sýningar og 121.678 áhorf- endur. Hinn 1. apríl 1978 var tala áhorfenda á yfirstandandi leikári orðin 83.723 og fjöldi sýninga 253. Sýningar lágu þó niðri um þriggja vikna skeið vegna verkfalla. 12
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.