Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1978, Page 21

Frjáls verslun - 01.05.1978, Page 21
Þaö sem af er þessum áratug hafa tekjur af varnarliðinu farið hækk- andi, einkanlega eftir þá samninga sem gerðir voru í október 1974. Þannig voru néttótekjur af varnar- liösviðskiptum 1975 um 5,4 milljarðar kr., um 6,7 milljarðar á árinu 1976 og um 8,9 á síðastliðnu ári, allt miðað við gengi ársins 1977. • Flestir starfsmenn í sept 1953. Þessar tölur út af fyrir sig segja ekki mikla sögu, en ef við lítum á þann mannfjölda sem starfaði hjá varnarliðinu á þessum árum þá kemur í Ijós, að fyrstu tvö árin voru nokkur hundruð manns starfandi hjá liðinu, en hins vegar í septem- ber 1953 fór tala þeirra sem störfuðu hjá því yfir 3000. Hér er átt við varnarliðiö sjálft, verktaka þess og þjónustufyrirtæki starf- andi á vellinum. Starfsmenn varnarliðsins hafa aldrei verið fleiri en í þessum mánuði 1953. Að meðaltali árið 1953 voru um 2500 manns starfandi á flugvellinum hjá þessum aðilum, en frá 1956 að meðaltali um 1000 manns allt fram á þennan áratug. Frá árinu 1974 hefur einnig á þessu sviði orðið töluverð aukning og fyrstu mánuði þessa árs voru starfandi um 16—1700 manns hjá varnarliðinu og verktökum þess. Heildarstarfs- mannafjöldi á flugvellinum er þó meiri eða rúmlega 2000 þegar með eru taldir starfsmenn íslenzka ríkisins, Flugleiða hf. og annara aðila starfandi í flugstöðinni. Ef herinn færi Viö hugsanlega brottför varnar- liðsins félli á Islendinga sjálfa ýmiss og mikill kostnaður við rekstur millilandaflugvallarins. Talið er að þaö myndi kosta um 13 milljónir dollara árlega eða um 2,5—3 milljaröa króna að reka flugvöllinn eingöngu fyrir far- þegaflug. Flugvöllinn sjálfan hafa íslendingar fengiö upp í hendurnar án þess að greiöa neitt fyrir, en bygging sambærilegs flugvallar mundi vafalaust kosta 5—600 milljónir dollara nú, eða yfir 100 milljarða króna. þjónusta í þjóðleió Gistlng ^ Pantanír og upplýsingar Sumarheimilinu Bifröst 93*7102 (simstööin Borgamesí) 21

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.