Frjáls verslun - 01.05.1978, Qupperneq 45
Laxveiðimenn óðnm
að hefia veiði
Lax- og silungsveiði
vaxandi sumar-
leyfissport
landsmanna
Að renna fyrir lax og silung er
vinsælt sport á Islandi, og hefur
sífellt farið í vöxt að fólk noti sum-
arleyfi sitt til að stunda veiðiskap,
enda hin besta heilsubót. Að tjalda
við á eða fallegt stöðuvatn, vera úti
í náttúrunni, að ekki sé talað um,
þegar hinn stóri bítur á, er hin
mesta skemmtun.
Lax- og silungsveiðitíminn er
þegar hafinn, en mest er veitt
sumarmánuðina þrjá, júní, júlí og
ágúst. Laxveiði er heimil þrjá
mánuði á ári og í reynd er laxveiðin
stunduð sumarmánuðina þrjá. Sil-
ungsveiði í stöðuvötnum má
stunda frá 1. febrúar til 27. sept-
ember og sjósilungsveiði frá 1.
apríl til 20. september.
Frjáls verzlun fékk ýmsar upp-
lýsingar varðandi lax- og silungs-
veiði hjá Einari Hannessyni, full-
trúa Veiðimálastofnunarinnar.
Elliðaá laxauðugasta á landsins
I þriðjungi allra áa á landinu er
lax, en þær eru um 200. Sjógeng-
inn silungur er hins vegar í öllum
ám. Heimilt er að stunda stangar-
veiði fyrir lax og göngusilung 12
klukkustundir á dag, á tímabilinu
frá kl. 7 árdegis til kl. 22.00 að
kvöldi.
Laxveiði hefur stóraukist síð-
ustu tvo til þrjá áratugina. Árið
1957 veiddust 24.571 lax, 1967
veiddust 40.503 laxar og á síðasta
ári, 1977, veiddust 64.575 laxar, en
það ár var fjórða besta laxveiðiárið
hér á landi. Langmesta laxveiðin
var árió 1975, en þá veiddust
74.004 laxar.
Veiðimaður í Laxá í Aðaldal. Hún var besta veiðiáin í fyrra.
45