Frjáls verslun - 01.05.1978, Page 55
Flugfélagið Vængir:
Á hálftíma í Þórsmörk
Það verður um auðugan garð að
gresja hjá Flugfélaginu Vængjum
í sumar. Félagið flýgur til 15 staða
á landinu í áætlunarflugi, og auk
þess sem fjölmargar leiguferðir
eru farnar á ári hverju.
Vængir hafa haldið uppi flug-
samgöngum til Gjögurs á Horn-
ströndum, og sagði Jónas
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Vængja, aö tilvalið væri fyrir
ferðamenn að fljúga þangað til að
njóta sumarleyfis. Á þessum
slóöum kom Eiríkur rauði land-
námsmaður að landi og reisti bú
sitt. Lífríki er mikiö þarna og margt
að sjá. Hægt er að ganga um ná-
grennið, fjarri mannabyggðum og
dvelja við náttúruskoðun. Þessar
ferðir Vængja hafa notið mikilla
vinsælda, en félagið veitir fjöl-
skylduafslátt í ferðir þessar.
Flugferðir í Þórsmörk eru ný-
breytni hjá Vængjum og hafa þær
strax orðið mjög vinsælar. Aðeins
tekur um hálfa klukkustund að
fljúga þangað. Sagði Jónas, að
flugvöllurinn í Þórsmörk væri einn
af þremur bestu, sem Vængir
fljúga á. Bæði er flogið á morgn-
ana og á kvöldin um helgar,
þannig að fólk á þess kost að fara
samdægurs heim, eða gista yfir
nótt í Mörkinni. Náttúran í Þórs-
mörk er stórfengleg hvert sem litið
er. Tilvalið er fyrir starfsfólk fyrir-
tækja að taka sig saman og fara í
slíka ferð. Verði á flugferðum er
stillt í hóf, en farið kostar um 10
þús. kr. fyrirfullorðna.
VÆNGIR
Fioglð með Vængjum í Þórsmörk.
RÁÐSTEFNUR
Eitt af markmiðum Ferðamálaráðs er að fjölga ráðstefnum hér á landi.
Hér er góð aðstaða til að halda ráðstefnur og fjölmenna fundi allan ársins hring. Hérlend hótel bjóða
alla þá þjónustu sem veita þarf við ráðstefnur.
Ferðamálaráð veitir fúslega allar upplýsingar um ráðstcfnuhald, og er reiðubúið til að veita þeim
aðstoð, sem vilja bjóða fjölþjóðlegum félagasamtökum eða stéttarfélögum að halda ráðstefnur hér.
Munið að það er ykkar hciður og okkur öllum til gagns þegar erlendir gestir sækja okkur hcim og
jiinga á landi clds og ísa.
, - Laugavegi 3,
FERÐAMALARAÐ ISLANDS
Telex 2248
ó5