Frjáls verslun - 01.05.1978, Side 63
atriðin á listanum eru dæmi um
þann flokk málefna sem stjórnandi
hefur þegar haft áhrif á og eru
einna viðkvæmust fyrir þann sem í
hlut á. Réttar ákvarðanir eru ein-
mitt það sem starfsmanni á stjórn-
unarsviðinu eru greidd laun fyrir,
ekki síst verkstjórum, og ákvörðun
um að svipta starfsmann valdi og
ábyrgð vegna mistaka hans við
ákvarðanir er yfirleitt fyrsta raun-
hæfa aögerðin af hálfu stjórnar
fyrirtækis. Sú ákvörðun er jafn
óhjákvæmileg og hún er erfið og
oft örlagarík.
Undirbúningur fyrir erfitt viðtal
Reyndu að gera þér einhverja
grein fyrir því hve viðkvæmt mál-
efnið er sem ræöa skal. Það fer
ekkert á milli mála að þetta viðtal
mun færa þeim starfsmanni sem í
hlut á mjög slæmar fréttir. Því er
nauðsynlegt að reyna að gera sér í
hugarlund einhverja mynd af
hugsanlegum viðbrögðum hans,
mynd sem byggist á grundvelli
þess hve vel þú þekkir einstakl-
inginn persónulega. Sem sagt,
hvernig mun hann bregðast við?
Viðkvæm mál geta vakiö mismun-
andi tilfinningaleg viðbrögð eftir
því hvers eðlis málefnið er og
einnig mismunandi tilfinningaleg
viöbrögð eftir því hvaða persóna á
í hlut.
Segjum sem svo að þú þurfir að
gera grein fyrir því að stöðuhækk-
un, sem viðkomandi hafi búist við
aó fá, hafi verið veitt öðrum. Merki
vonbrigða eru eðlileg. En á hvern
hátt bregst starfsmaöurinn viö? Er
hann einn þeirra sem hefur til-
hneigingu til að dylja vonbrigði sín
eða láta þau ekki hafa áhrif á
hegðun sína? Eða er hann sá sem
mun krefjast nánari skýringa
refjalaust? Springur hann í loft
upp? Fer hann að gráta?
Ástæðan fyrir því að nauðsyn-
legt er að kanna væntanleg viö-
brögð starfsmannsins er sú, að
koma í veg fyrir að þú standir
frammi fyrir óvæntri stöðu í mál-
inu, en það gæti orðið til þess að
viðtalið missi algjörlega marks.
Kannaðu þínar eigin tilfinningar.
Gerðu þér grein fyrir því hvaöa
áhrif þínar tilfinningar hafa á lausn
vandamálsins. Ertu, til dæmis
reiður þessum starfsmanni? Hef-
urðu orðið fyrir vonbrigðum með
frammistöðu hans? Hverjar sem
þær eru, er ekki rétt að dylja þær.
Tilfinningar þínar skipta verulegu
máli og án þeirra er ekki víst að þér
takist að leysa vandann.
Um fram allt vertu heiðarlegur
og hreinskilinn. Tilfinningar þínar
þurfa að vera á hreinu, án þess
geturðu hvorki notað þær á virkan
hátt við lausn vandans né haft
hemil á þeim og þá er leikurinn
tapaður.
Þú átt að ákveða „tóninn".
Stjórnunarvísindin hafa sannreynt
að það er meira en helmingi meiri
líkur á því að fólk skilji þann boð-
skap sem því er fluttur í jákvæöum
búningi heldur en í neikvæðum.
Sé vandamálið sem við er að etja
fólgið í hegðun starfsmannsins,
gæti hér verið um neikvæða bún-
inginn: ,,Þú missir taumhald á
skapi þínu allt of oft og það bitnar
á starfi þínu“. Miklu vænlegra til
árangurs væri að beita jákvæða
NESKJÖR
Feróamenn athugið!
Gott vöruúrval.
Lágt vöruveró.
Opió til kl. 10 föstudaga
og frá 9-12 laugardaga.
ÞAÐ ER KJÖRIÐ AÐ VERSLA
í NESKJÖR.
Nesbæ Borgarnesi
Sími 93-7277
63