Frjáls verslun - 01.05.1978, Blaðsíða 77
Maðurinn
í gervi Kojaks
Telly Savalas er löngu orð-
inn frægur um allar álfur fyrir
leik sinn í sjónvarpsþáttasyrp-
unni „Kojak“, sem íslenzka
sjónvarpið hóf nýlega sýningar
á.
Þetta er einn vinsælasti lög-
regluþáttur, sem gerður hefur
verið fyrir sjónvarp og eru þeir
þó ófáir slíkir, sem birzt hafa á
skjánum vestan hafs og síðar í
öðrum löndum á undanförnum
árum.
Að sjálfsögðu hefur Telly
Savalas hlotið margs konar
viðurkenningu í heimalandi
sínu fyrir „Kojak" og fékk t. d.
Emmy-verðlaunin þegar á
sama ári og sýningar á ,,Kojak“
hófust veturinn 1973—1974.
Og Savalas er reyndar fleira til
lista lagt en aö leika í kvik-
myndum. Þannig hefur hann
sungið inn á plötur og hlotið
vinsældir sem söngvari.
En hver er hann, þessi
kraftalegi, krúnurakaði náungi,
sem birtist okkur í gervi lög-
reglumannsins snjalla í sjón-
varpinu?
• Grískur að uppruna
Fullu nafni heitir hann
Aristotle Savalas og er fæddur í
New York en eins og nafnið
bendir til er hann af grískum
uppruna. Foreldrarnir voru
fæddir í Grikklandi og fluttust til
Bandaríkjanna. Fjölskyldulífið
var líflegt að hætti þeirra
Grikkjanna, — það voru ótal
frændur á heimilinu, amma,
sem varð 108 ára gömul og
fjórir bræöur og systir. Móðir
Tellys, Christina að nafni, var
kunn listakona í New York.
Telly Savalas í hlutverkl
súperstjörnunnar
• Sálfræðingur að mennt
Foreldrarnir hvöttu Telly til
að afla sér framhaldsmennt-
unar, hvað hann og gerði. Hlé
varð þó á skólagöngunni
meðan Telly gegndi her-
þjónustu í seinni heims-
styrjöldinni. Þegar henni lauk
tók Telly aftur upp þráðinn þar
sem frá var horfiö og hóf há-
skólanám við Columbia Uni-
versity í New York, þar sem
hann tók B. S.-gráðu í sálar-
fræði.
Telly Savalas gekk skömmu
síöar í þjónustu upplýsinga-
deildar bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins og eftir tveggja
ára starf var hann kominn í
framkvæmdastjórastöðu þar.
Þegar upplýsingadeild ráðu-
neytisins flutti frá New York til
Washington réðst Savalas til
starfa fyrir ABC-sjónvarpsfyrir-
tækið og varð einn af yfir-
mönnum fréttadeildar þess.
Hann vann þar meðal annars
að gerö þátta er nefndust
,,Your Voice of America" og
hlaut margháttaða viður-
kenningu fyrir.
• Afdrifarík tilviljun
En hvenær byrjaði Telly
Savalas að leika? Það at-
vikaðist þannig, aö kunningi
hans í leikhúsinu var að reyna
að hafa uppi á leikara til að taka
að sér hlutverk, sem krafðist
kunnáttu í evrópskum mál-
hreim. Einhvern veginn fannst
Telly að hann yrði að koma
leikhúsmönnum til hjálpar og
fyrir rælni lét hann prófa sig í
hlutverkið. Honum til mikillar
furðu var honum boðið að taka
það að sér og þar með urðu
þáttaskil í lífi hans. Um var að
ræða sjónvarpsuppfærslu í
leikhúsi á leikritinu „Bring
Home a Baby".
Þegar Savalas hafði komið
fram í þremur sjónvarpsleikrit-
um kom leikarinn Burt
Lancaster til skjalanna og fékk
Savalas til að taka að sér hlut-
verk Feto Gomez í kvikmynd-
inni „Birdman of Alcatraz". Sú
mynd hefur m. a. verið sýnd í
sjónvarpi hér og fjallar um lífs-
tíðarfanga í Alcatraz-fang-
elsinu á San Fransisco-flóa,
sem gerðist mikill kunnáttu-
maður í fuglafræði. Fyrir leik
sinn í þeirri mynd hlaut Savalas
tilnefningu til Oscarverðlauna
1962.
Telly Savalas hefur komið
fram í fjöldanum öllum af kvik-
myndum en milli þess sem
hann leikur í þeim spilar hann
gjarnan golf eða feröast um
heiminn og flytur fyrirlestra á
vegum bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins.
77