Frjáls verslun - 01.12.1978, Side 8
áfangar
Helgi Ágústsson, sem verið hefur deildar-
stjóri í upplýsinga- og menntadeild utanríkis-
ráöuneytisins tekur frá 1. janúar 1979 við for-
stöðu varnarmáladeildar og formennsku í
varnarmálanefnd utanríkisráðuneytisins, sam-
kvæmt ákvörðun utanríkisráðherra.
Helgi Ágústsson er fæddur í Reykjavík þann
16. október 1941. Hann lauk stúdentsprófi frá
Verslunarskóla islands árið 1963, og prófi frá
lagadeild Háskóla (slands 1970.
Réðist hann til starfa í utanríkisþjónustunni
strax aö laganámi loknu 1970, fyrst í utanríkis-
ráðuneytinu hér heima um þriggja og hálfs árs
skeið, en frá 1973 og fram í mars 1977 starfaði
hann í sendiráði islands í Lundúnum sem fyrsti
sendiráðsritari, m.a. meðan á síðasta þorska-
stríðinu milli Breta og (slendinga stóð.
Að loknum störfum í sendiráöinu erlendis,
tók hann á ný til starfa í upplýsinga- og
menntadeild utanríkisráðuneytisins, sem
deildarstjóri.
Utanríkisráðuneytið fer með yfirstjórn mála á
Keflavíkurflugvelli, og sér um framkvæmd
varnarsamningsins.
— Þau mál er varnarmáladeild fjallar um,
sagði Helgi, eru í fyrsta lagi mál er snerta fram-
kvæmd varnarsamningsins milli íslands og
Bandaríkjanna, og í öðru lagi lagaframkvæmd
á varnarsvæðinu, þar á meðal lögreglu- og
dómsmál, tollamál, póst- og símamál, flugmál,
radarstöövamál, heilbrigöis- og félagsmál.
Varnarmáladeild hefur skrifstofur sínar í ut-
anríkisráðuneytinu, en fyrirhugað er að brydda
upp á nýjungum í starfi varnarmáladeildar.
Hildur Haraldsdóttir, skrifstofustjóri Spari-
sjóðs Hafnarfjarðar, hefur verið ráðin for-
stöðumaður nýs útibús sparisjóðsins.
Verður þetta útibú frá Sparisjóði Hafnar-
fjaröar opnað seinni hluta janúarmánaðar í
nýju húsnæði við Reykjavíkurveginn. Annast
Hildur allan daglegan rekstur útibúsins og
móttöku, og sagði hún, að með því að opna
útiþú frá sparisjóðnum mundi þjónusta gagn-
vart íbúum í noröurbæ Hafnarfjarðar og þeim
iðnfyrirtækjum sem þar eru vera mjög bætt.
Hildur Haraldsdóttir er fædd 18. júní 1952 í
Hafnarfirði. Hún lauk prófi frá verslunardeild
Flensborgarskóla, en réöist til starfa í Sparisjóð
Hafnarfjarðar í ágúst 1969, fyrst við almenn af-
greiðslustörf í sparisjóðnum, en 1975 var hún
ráðin skrifstofustjóri og gegnir þeim störfum
uns hún tekur við starfi forstööumanns hins
nýja útibús.
Sparisjóður Hafnarfjarðar er með eldri starf-
ræktu sparisjóðum á landinu, stofnaöur 1902,
og er þetta fyrsta útibúið, sem opnað verður frá
sparisjóðnum.
Hildur sagði að til að byrja með yrðu starfs-
menn útibúsins þrír til fjórir, og það yrði opið á
sama tíma og veriö hefur hjá Sparisjóði Hafn-
arfjarðar, eða frá kl. 9.15 að morgni og fram til
kl. 16.00 að degi, en einnig á föstudögum frá kl.
17.00—18.00
Sparisjóður Hafnarfjarðar er stærsti spari-
sjóðurinn á landinu, einn þriggja í Reykjanes-
kjördæmi, en alls eru sparisjóðirnir á öllu lan-
dinu 43. Um áramótin 1977—78 voru sparifjár-
innstæður í Sparisjóði Hafnarfjarðar rúmir tveir
milljarðar.
8