Frjáls verslun - 01.04.1981, Page 6
STIKLAQ A STORU
Skipasmfði eða
Lengdarregla skipa, sem
stjórnvöld hafa ákveðið og
miða veiðiheimildir við hefur
nú ,,barnað“ vissa skipa-
stærð svo að hún túttnar öll
út á þverveginn. Nánar er
hér átt við skip við 26 metra
mörkin. Undir þeirri lengd
teljast fiskiskip vera togbát-
ar eða bara bátar og mega
nær óhindrað stunda tog-
línu- neta- og síldveiðar um
koppasmíði
allan sjó. Ofan við 26 metra
lengd kemur svo togskips-
heitið, með verulegum veiði
takmörkunum og við 39
metra mörkin kemur svo
skuttogaranafnið til, með
enn meiri veiði takmörkun-
um.
Þeir, sem byggt hafa fjöl-
veiðiskip að undanförnu
leggja ofurkapp á að þau nái
ekki alveg 26 metra mark-
inu. Þannig er Sigurbáran
VE, byggð í Vélsmiðju
Seyðisfjaröar og afburða
fiskiskip þegar hún er ekki
upp í landsteinum, ná-
kvæmlega 25 metrar og 95
sentímetrar. En til að auka
hæfni þessara skipa er
stöðugt verið að breikka
þau þannig að þau nálgast
óðfluga breidd skuttogara.
Jafnframt eru settar mjög
öflugar vélar i þau, svo þau
geta togað á við hvaða tog-
skip og hafa svo frítt spil
með að stunda hvaða veiði-
skap annan eftir því hvað
hentar best hverju sinni. Út-
gerðarmenn og skipahönn-
uðir eru á því máli að nú
þurfi að endurnýja þessa
reglu til þess að bátarnir
verði ekki eins og koppar í
laginu innan fárra ára, en
samlíking við það ílát hefur
hingað til þótt skipum frem-
ur til minnkunnar en mikl-
unnar.
Heimilað endurmat birgða —
en bara í smásölu
íslendingar heyrast
illa í gegnum Skyggni
Tómas Árnason mun nú
hafa fengið samþykki sam-
ráðherra sinna í ríkisstjórn-
inni fyrir heimild til verslun-
arinnar til að endurmeta
vörubirgðir í samræmi viö
breytingar á verðlagi. Mun
þessi heimild verða veitt upp
Ekki frá Kassa-
gerð komið
í síðasta blaði sögðum við
frá því að horfur væru á
samningum á milli Kassa-
gerðar Reykjavíkur og
Mjólkursamsölunnar um
framleiðslu á mjólkurum-
búðum. Forráðamenn
Kassagerðarinnar hafa ósk-
að eftir því að það komi fram
að þetta sé ekki frá þeim
komið né vilja þeir staðfesta
að góðar horfur séu á að
samningartakist.
úr miðjum maí en aðeins til
smásöluverslunar. Verð-
lagsráð gerði tillögu um
heimild til endurmats vöru-
birgða í allri verslun enda
var ekki vitað annað en að
Tómas væri fylgjandi slíku.
En þegar tillögurnar komu á
borð ráðherrans var þeim
breytt og heildverslunin
skilin eftir. Er Tómas því
grunaður um að ætla að
draga taum samvinnuversl-
unar með því aö bæta fyrst
og fremst úr vanda lands-
byggðarverslunarinnar,
sem að mestu er rekin af
kaupfélögunum. Annars er
það mál manna í viðskipta-
lífinu að ekki beri að fagna
þessu framfaraspori fyrr en
það er stigið því viðskipa-
ráðherrann hefur hingað til
átt erfitt með að koma sínum
málum og verslunarinnar í
gegnum ríkisstjórnina þótt
enginn efist um góðan vilja.
Margir sem notast við
sjálfvirka símsambandið við
Evrópu hafa þá sögu að
segja að mjög illa virðist
heyrast í þeim sem talar frá
islandi. Hins vegar heyrist
alltaf vel i þeim sem talar
ytra. Hafa menn kvartað yfir
þessu við rétt yfirvöld en
fengið loðin svör og jafnvel
verið bent á að hér muni
vera um misskilning að
ræöa. Viðmælandi blaðsins
sagði að símtöl þessi minntu
oft á gamla daga, þegar
menn þurftu að þenja rödd-
ina til hins ítrasta, þegar tal-
að var í landssímann. Er
gervihnattasambandið þá
skref aftur á bak? spurði
þessi viðmælandi blaðsins.
Væntanlega ekki, hélt hann
áfram, en er ekki eitthvað
athugavert við fjarskipta-
búnaðinn í Skyggisstöðinni í
Mosfellssveit?
6