Frjáls verslun - 01.04.1981, Síða 14
J
Hafskip og Eimskip hafa nú sótt
um heimild til hækkunar á farm-
gjöldum stykkjavöru. Eimskip sótti
um 16% hækkun en Hafskip sóttu
ekki um ákveðna tölu en í greina-
gerð félagsins til Verðlagsráðs má
lesa á milli línanna að félagið er að
slægjast eftir svipaðri hækkun og
Eimskip fara fram á. Þar segir að
ekki sé sótt um þá hækkun sem
nauðsynleg sé, þar sem verðlags-
ráð hafi ætíð tilhneigingu til að
skera slíkar beiðnir niður. Því sé
vænlegra að senda ráðinu greinar-
gerð um stöðuna í von um að það
meti hækkunarþörfina út frá
henni. Skipadeild Sambandsins
heldur að sér höndum og hyggst
sennilega sjá hvernig hinum fé-
lögunum reiðir af og hækka gjöld
sín til samræmis við það.
Uppboðsmarkaður
En um leið og þessu fer fram, á
sér stað hörð barátta á milli félag-
anna innbyrðis um flutninga. Sú
barátta hefur leitt af sér undirboð á
undirboð ofan svo inn- og útflytj-
endur líkja ástandinu fremur við
opinn uppboðsmarkað, þar sem
tilviljanir ráða fremur en markað
með ákveðnu veröi þar sem þjón-
usta, tími eða önnur atriði ráða
hvaða flutningsaðili er valinn
hverju sinni. Viröist því bæði sem
þakið sígi og gólfið hrynji í þessum
rekstri eins og á stendur. Á þetta
einkum við á áætlanaleiðunum.
Dugmiklir sölumenn félaganna
freistast til að bjóða mönnum vild-
arkjör með ferð og ferð þegar svo
háttar að laust rými er í skipinu.
Stærri viðskiptavinir frétta svo af
þessu og bregöast ókvæða við
enda álíta þeir að þeim beri bestu
kjörin sem mest flytja.
Er því allt í háalofti manna og
skipafélaga á meðal, sáttir, sértil-
boð og vildarsamningar eru orðin
daglegt brauð. Útkoman er sú að
innflytjendur segja að farmgjöld til
og frá landinu hafi aldrei verið jafn
lág og nú. Þetta á sér stað um leið
og félögin telja sig hafa orðið að
þola 9 til 10% bótalausar kostn-
aðarhækkanir bæði í fyrra og árið
þar áður.
,,Ég sé ekki að félögin hafi bol-
magn í þetta nema í tvö til þrjú ár
enn, í mesta lagi, þá verða þau
farin að rífa alvarlega innanúr
sér‘‘, segir Ragnar Kjartansson,
framkvæmdastjóri Hafskipa.
Hörður Sigurgestsson, forstjóri
Eimskipa og Axel Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Skipadeildar Sam-
bandsins, taka í svipaðan streng,
en tímasetja þó ekkert.
Haldi svo áfram sem horfir er
hætt við að slíkur kyrkingur hlaupi
í félögin að við (slendingar glötum
þeirri sérstöðu að sjá nær ein-
göngu sjálfir um okkar flutninga.
Muni þá leiguskip sjá um þá í
auknum mæli. Kunni það að verða
14