Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1981, Qupperneq 23

Frjáls verslun - 01.04.1981, Qupperneq 23
þaö eingöngu viö stærö þeirra og verö, en ekki afkastagetu. Grundvöllurinn sem Digitaltölv- ur byggjast á hefur reynst gífur- lega sterkur. Undirstaðan er sveigjanleiki í uppbyggingu tölv- anna þar sem eitt helsta atriöiö er góö hönnun á tengingu sjálfrar stjórneiningar tölvunnar og ann- arra hluta tölvukerfisins, svo sem minnis, diska og útstöðva. Þannig getur t.d. tölvukerfi sem kostar kr. 2000 verið í grundvallaratriöum eins byggt og tölvukerfi sem kost- ar kr. 20.000. Margir hlutar vél- búnaðarins geta verið hinir sömu í báðum kerfunum, og hefur það augljósa kosti. Öllu mikilvægara er samt aö unnt er aö nota sama hugbúnað til að stýra vinnslu tölva af mörgum mismunandi stæröum, en slíkt er til mikils hagræöis fyrir notendur, sem byrja smátt en hyggja stórt. Stórt þarf ekki aö þýða risa tölvu- miðstöð þar sem margir notendur með mismunandi þarfir nota einu og sömu tölvuna, heldur hefur Digital lagt mikla áherslu á sam- tengingu tölva, þannig aö einstakir notendur hafi tölvu af heppilegri stærð fyrir sínar þarfir og geti jafnframt haft aðgang að öðrum tölvukerfum vegna sérhæfðra verkefna, til að ná í eða skila gögnum o.s.frv. 60 Digitaltölvukerfi í gangi Fjölbreytnin er mikil íframleiðslu Digital, og má nefna sem dæmi að hér á landi eru nú í gangi rúmlega 60 Digitaltölvukerfi í mismunandi stærðum. Allar þær Digitaltölvur sem hér eru seldar byggjast á „on-line" vinnslu, þ.e. fjölvinnslu, þar sem margir aðilar geta unnið samtímis, mismunandi verkefni, og alltaf í beinu sambandi við tölvu á skjá. Að þessu leyti er Digital brautryðjandi hér á landi. Útbreiddust af þeim Digitaltölv- um sem í notkun eru í dag er „tölvufjölskylda" sem nefnist PDP-11 og kom fyrst á markaðinn árið 1967. Þessar tölvur eru af meöalstærð og koma geysilega víða við — í mælikerfum og fram- leiðslustýringu, bókhaldskerfum, spítalakerfum — svo eitthvað sé nefnt. En stærsta kerfið er Vax-’1 780, sem reiknistofnun Háskóla íslands keypti af okkur og var sett upp í maí 1980. Þegar þessi vél var sett upp voru ekki aðrar tölvur hér á landi sem höfðu meiri reiknings- getu. í dag hefur hún 40 útstöðvar, og er gert ráð fyrir að þeim verði fjölgað í 70 í haust. Meðal notenda minni Digital- kerfa má nefna Mjólkursamsöl- una. Þar er nú orðin tölvustýring á mælingu á mjólk í tankbíla og síð- an í hreinsun þeirra. Á tæknimarkaðnum höfum við átt mikil viðskipti við aðila eins og rafmagnsveitur ríkisins, Orku- stofnun, Landsvirkjun, o.fl. Þá eru Digitaltölvur að ryðja sér braut inn á viðskiptamarkaðinn. Má í því sambandi nefna Framkvæmda- sjóð, Fiskveiðasjóð, Verzlunar- banka íslands og Lífeyrissjóð verzlunarmanna, og í Fálkanum hf. er það nýjung hér á landi að búðarkassar verða tengdir beint við tölvu. Starfsemi í öðrum vexti Um starfsemi tölvudeildar Krist- jáns Ó. Skagfjörð upplýstu þeir Júlíus Sæberg og Frosti að hún skiptist í megindráttum í þrennt, þ.e. sölu, þróun hugbúnaðarkerfa (fjárhagsbókhald, viöskiptabók- hald, o.s.frv.) og þjónustu. Árangurinn af sölustarfseminni er mikill eins og augljóst er af hinum mikla fjölda Digitaltölva hér á landi og hinum öra vexti tölvu- deildarinnar. Fyrir u.þ.b. fimm ár- um voru starfsmenn hennar að- einstveir, en nú eru þeir 10. Þessi mikla sala hefur kallað á mjög aukna þjónustu þar sem einn mikilvægasti þátturinn er fyrir- byggjandi viðhald á vélbúnaði. Keþpikefli tölvudeildar er að rekstraröryggi Digitaltölva sé sem mest, þannig að starfsemi notenda þurfi ekkert að raskast vegna bil- ana. Fleiri umboð En Kristján Ó. Skagfjörð hefur umboð fyrir fleiri tölvufyrirtæki en Digital, þótt það sé stærst. Þau eru sænska fyrirtækið Datasaab og bandaríska fyrirtækið Tektronix. Datasaab framleiðir m.a. tölvu- búnað sem tengja má t.d. við IBM tölvur. Það er gert gegnum síma- línur, og hefur slíkur búnaður verið seldur Skýrsluvélum ríkisins, Bif- reiöaeftirlitinu, og fleiri aöilum. En stærsti viðskiptavinur Datasaab- tengibúnaðar hér á landi er Sam- band íslenskra samvinnufélaga. Þar eru nú 20 skjáir tengdir á þennan hátt IBM tölvu Sambands- ins. Þáttur Tektronix í viðskiptunum er ekki stór en mjög merkilegur. Þeir framleiða mjög vönduð mæli- tæki sem notuð eru í rafeindaiön- að, svo og grafíska skjái og teikn- ara — svo eitthvað sé nefnt. Ótúlega margbreytilegt þjónustuhlutverk En svo talinu sé aftur vikið að Digitaltölvum, þá er þjónustuhlut- verk þeirra ótrúlega margbreyti- legt. Má þar nefna að þær eru notaðar við flugumferðarstjórn og stjórn skeytamóttöku í Gufunesi. Þá er símaskráin komin í Digital- tölvu, og margir blaðamenn skrifa greinar sínar beinl inn á Digital- tölvu. Á Akureyri eru tvær Digital- tölvur notaðar við stjórnun raf- magnsálags, og Digitaltölva tekur við myndum til úrvinnslu frá Gamma myndavél Landspítalans. Og möguleikarnir á frekari fjöl- breytni virðast óendalegir. Því hljótum við að taka undir orð Júlíusar Sæbergs er hann sagði í lok samtals okkar: „íslenskt at- vinnulíf hlýtur að taka upp tölvur í vaxandi mæli ef vonir manna um framleiðsluaukningu og bættan hag eiga að rætast." , , 23
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.