Frjáls verslun - 01.04.1981, Qupperneq 24
Gerhard Prlnz, hinn nýl forstjóri Dalml-
er-Benz (t.v.) ásamt Joachim Zahn, sem
hann tók við af.
Á sama tíma og aðrir
bílaframleiðendur verða
að draga saman seglin
leggja framleiðendur
Mercedes Benz út í gífur-
legar fjárfestingar, með
nýjan forstjóra við stýrið
Sigurganga
Daimler-Benz
er rétt að byrja
Bifreiöaframleiðendur eru flestir
nokkuð uggandi um framtíðina.
Orkukreppa og almennur sam-
dráttur hefur orðið til þess að
margir hafa þurft að draga saman
seglin. Undantekning frá þessu
eru Daimler-Benz verksmiðjurnar.
Þær hafa aldrei staðið betur og
ætla sér stóra hluti á þessum ára-
tug, undir handleiðslu nýs for-
stjóra.
Meö Gerhard Prinz, nýja for-
stjórann, við stýrið er ráðgerö aö
fjárfesta sem svarar rúmum þrjátíu
milljörðum króna (3000 gamlir
milljarðar) á næstu árum til að
styrkja enn fyrirtækið og auka
markaðshlutfall þess. Hluti af því
fé fer í að hanna og koma á mark-
að ,,litlum“ Mercedes Benz.
Síðustu þrettán ár hafa verið
mikill uppgangstími hjá Mercedez
Benz. Forstjóri þetta tímabil var
Joachim Zahn, ákafur maöur og
vinnusamur sem oft hélt starfs-
mönnum sínum langtfram á nætur
við allskonar áætlanagerð og
hugmyndasmíði.
Þessi næturvinna viröist hafa
boriö góðan árangur því í þrettán
ára forstjóratíð Zahns tvöfaldaðist
fjöldi starfsmanna, upp í 183.000,
hlutafé þrefaldaðist og veltan sex-
faldaðist. Veltan fór upp í 98 mill-
jarða króna. Þaö eru níuþúsund
og áttahundruð milljarðar gamalla
króna, sem lætur nærri að séu
tuttuguföld fjárlög lýðveldisins (s-
lands fyrir árið 1981.
Sveltu markaðinn
Ein ástæðan fyrir velgengni
Mercedes Benz er hversu rólega
hefur verið farið í að byggja fyrir-
tækið upp. Á ,,góðu árum“ sjö-
unda áratugarins fjárfestu margir
bifreiðaframleiðendur gríðarlega.
Verksmiðjur voru byggðar eða
stækkaðar og menn framleiddu
eins marga bíla og þeir mögulega
gátu.
24