Frjáls verslun - 01.04.1981, Side 37
staö fjölþættri starfsemi á vegum
félagsins.
Með nýjum mönnum
skapast nýtt líf
Árið 1920 hefst nýtt uppgangs-
tímabil í sögu félagsins. Það ár
ganga inn í félagið í einum hóp 70
manns, flestir ungir verzlunar-
menn. Hafði þessi hópur orðið
ósáttur við félaga sína í Verzlunar-
mannafélaginu Merkúr út af kosn-
ingu í niðurjöfnunarnefnd, sem fé-
lagið tók þátt í með Alþýðuflokkn-
um, og sagt sig úr því. í þessum
fjölmenna hópi var margt áhuga-
samra manna, er síðar komu mikið
við sögu félagsins. Hér verður þó
sérstaklega að geta eins þeirra, en
það er Erlendur Ó. Pétursson.
VERZLUNARMANNAFJELAG REYKJAVÍKUR.
Fundur var haldinn 4. þ. m. í Hótel Reykjavík til að kjósa stjórn. Þessir
hlutu kosningu: formaður Th. Thorsteinsson, skrifari Olafur Rosinkranz,
gjaldkeri Matth. Johannesson, meðstjórnendur Diti. Thomsen og Ludvig
Hansen.
Fjeiagsstofnun þessi er eitt af því, sem það á heima um, að furða sje að
hún skuli ekki hafa verið byrjuð iöngu fyr; þörfin og nytsemin er svo áþreif-
anleg. Ekki sízt hlýtur það að liggja hverjum manni í augum uppi, hve
mikilsvert getur verið fyrir verzlunarstjettarmenn að eiga þar athvarf, sem
fjelag þetta er og stjórn þess, til að komast að atvinnu, eptir þvi sem hver
hefir verðleika til og honum er hentast. Má og gjöra ráð fyrir hins vegar, að
verzlunaratvinnuveitendum, kaupmönnum, þyki sjer hagræði í því, að geta
leitað til fjelagsstjórnarinnar, ef þeir þarfnast manns, með vissri von um
áreiðanlega leiðbeiningu og milligöngu. Samkomur fjelagsmanna ættu og
að geta orðið þeim til mikils góðs á ýmsan hátt samkvæmt tilgangi laganna
(sjá ísaf. 28. f. m.), og má þar til nefna fyrst og fremst fræðandi og örvandi
fyrirlestra; er vonandi, að þeir, sem til þess eru færir, liggi eigi á liði sínu
með þann mikilsverða stuðning við fjelagið, einkanlega meðan það er i
bernsku og þarnast mest alls þess, er orðið getur til að veita því vöxt og
viðgang.
ÍSAFOLD - 7. febrúar 1891.
Heildverzlun I Reykjavfk 1909.
37