Frjáls verslun - 01.04.1981, Page 39
Hann var form. V. R. á árunum
1922—31, aö einu ári undanskildu.
Á þessum árum stóð félagslífið
með miklum blóma. Nú voru yngri
mennirnirteknirvið völdum.
Árið 1922 voru félagsmenn
orðnir 205, en 1931 um 300. Árlega
voru einhverjir strikaðir út fyrir
skuldir.
Á þessu tíu ára tímabili voru
haldnir um 280 fundir í félaginu.
Fyrirlestrar voru mikið fluttir á
þessu tímabili eða 56 alls, og fluttu
þá margir af þjóðkunnustu mönn-
um landsins.
Spilakvöld voru oft vel sótt þetta
tímabil og bókaútlán töluverð.
Húsbyggingarsjóður félagsins er
stofnaður á 31 árs afmælinu, og þá
skemmti í fyrsta sinn söngflokkur
úr félaginu. Einnig var haldið uppi
leikstarfsemi meðal félagsmanna
á þessu tímabili, og sýndir smá-
gamanleikir.
í reglugerð um lokun sölubúða
var sett ákvæði um 2. ágúst sem
frídag verzlunarmanna. Margt og
mikið er rætt á fundum félagsins
þetta tímabil.
Árið 1922 er Verzlunarlöggjöfin
fyrst til umræðu í félaginu og
einnig nokkrum árum síðar. Annað
merkilegt mál, sem nær allt þetta
tíu ára tímabil var rætt að meira
eða minna leyti í V. R., var, eins og
það var kallað, þegar það var kom-
iö í fast form, „Frumvarp til laga
um verzlunarnám og atvinnurétt-
indi verzlunarmanna".
Eitt merkasta málið, sem félagið
kom í framkvæmd á þessu tíma-
bili, má þó hiklaust telja stofnun
„Sambands verzlunarmannafé-
laga íslands". Var sambandið
stofnað sumarið 1928. Á sam-
bandsþingunum sem háð voru ár-
lega til 1935, voru rædd og teknar
ákvarðanir um öll mál, sem varð-
aði verzlunarstéttina í heild.
Fimmti tugurinn
Eftir 1930 fór að ýmsu leyti að
þrengjast hagur verzlunarmanna.
Höftunum var skellt á og fjöldi
verzlunarmanna missti atvinnu
sína.
í árslok 1931 voru aðeins297 fé-
lagar í V. R., en brátt verða þó
breytingar á þessu. Nýir félagar
bætast nú ört við og í árslok 1935
eru þeir orðnir 346, en í árslok
1940 komast þeir upp í 630.
Á þessum áratug ber mest á
framkvæmdum í húsnæðismálum
félagsins. Félagsheimilið tekur til
starfa í hinum nýju húsakynnum í
Vonarstræti 4. Einnig er unnið
mikið starf í sambandi við launa-
mál verzlunarmanna, og má rekja
innstreymi nýrra meðlima í félagið
til þessara framkvæmda.
Blað félagsins, „Frjáls verzlun",
byrjar að koma út í janúar 1939, og
ráðningarskrifstofu verzlunar-
manna er komið á laggirnar. Allt
krefst þetta mikils starfs og langs
undirbúnings. Lagfæring fæst á
lokunartíma sölubúða á þessu
tímabili. Umræðu- og skemmti-
fundum er haldið uppi frá ári til árs
fyrir félagsmenn. Jólatrésskemmt-
anir eru haldnar árlega, svo og
dansleikir. Sú breyting fæst á frí-
degi verzlunarmanna, að hann
skuli vera fyrsta mánudag í ágúst-
mánuði, en með því móti lengist
frítíminn. Frídagurinn er haldinn
hátíðlegur á hverju ári, en á mis-
munandi hátt og mismunandi
stöðum.
Á þessum árum opnar félagið
skrifstofu, því verkefnin eru æði
mörg. Þá ræður V. R. og fast
starfsfólk.
Verzlun O. Johnson & Kaaber í Hafnarstræti.
39