Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1981, Page 45

Frjáls verslun - 01.04.1981, Page 45
FLUOLEIDIR 2- fróðleikur um fcgjfrakt „Flugfrakt er yörn gegn yeröbólgu” — segir Siguröur Matthíasson, forstööumaöur Flugfraktar „í verðbólguþjóðfélagi eins og okkar, þar sem verslunin býr að auki við afar háa vexti, er mjög mikilvægt að vara sem pöntuð er erlendis frá berist sem fyrst til landsins“, segir Sigurður Matth- íasson, forstöðumaður Flug- fraktar. „Því lengur sem varan er á leiðinni, þeim mun meira étur verðbólgan og vaxtakostnaður- inn af verðmæti hennar. Það er því gífurlegur sparnaður í fjár- magnskostnaði að flytja vöruna flugleiðis. Raunar má segja að flugfrakt sé vörn gegn verðbólgu, fyrir verslunina. Það fer auðvitað eftir eðli vöru og verðmæti hvort borgar sig að flytja hana flugleiðis. (Verðlitla og rúmfreka vöru er til dæmis betra að flytja á sjó). En þar sem tími og/eða veltuhraði skiptir máli, eins og t.d. við flutninga á matvælum, tískufatnaði og vara- hlutum, slær ekkert flugvélina út“. Fyrst þú nefnir matvæli; þið gerðuð nýlega samning um fisk- flutninga til Luxemborgar, er þetta nýr áfangi? „Það er ekkert nýtt að við flytjum ferskan fisk. Við flytjunt iðulega fisk í áætlunarferðum til Bandaríkjanna, Luxemborgar og Bretlands. Á síðast ári fluttum við alls um 650 lestir. En það hefur auðvitað ekki verið nema það sem hefur komist í fraktlestar vélanna. í Luxemborg gerðum við samning um sérstök leiguflug, með fisk eingöngu. Samningur- inn gilti fram að páskum og sam- kvæmt honum fór Boeing 727-100 vél vikulega til Luxem- borgar, með fulfermi af fiski, þ.e. um 18 lestir. Fyrirtækið sem keypti fiskinn heitir La Provencal. Þetta er stórt fyrirtæki sem kaupir fisk víðar en hérna. Við höfum til dæmis flutt fyrir þá talsvert af lifandi humar, frá Bandaríkjunum. Á heimleiðinni frá Luxemborg tókþessileiguflugvélsvoallskonar varning og kom við í London eða Kaupmannahöfn eftir því sem þörf var á. Þetta er eina sér- I staka fraktflugið til Luxemborgar en við flytjum þangað töluvert í áætlunarfluginu, enda er Lux- emborg miðsvæðis i Vestur- Evrópu og kjörin dreifingarmið- stöð fyrir það svæði. Til Danmerkur og Englands erum við með fraktflug eftir þörfum og allar okkar ferðir til Englands eru „combi-flug“ þ.e. með tvo vörufleka og 79 far- þega“.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.