Frjáls verslun - 01.04.1981, Blaðsíða 47
Æskilegt er að sendandi í við-
komandi landi hafi samband við
bókunardeild þar. Hann þarf að
gefa upp fylgibréfsnúmer,
þyngd og rúmmál vörunnar og
nafn sendanda og móttakanda.
Að þessu er augljós hagræð-
ing; þetta hjálpar mönnum við að
skipuleggja sín vörukaup og
heimflutning og á að tryggja að
varan komi heim á réttum tíma.
„Hvaða flug hentar best?”
„Við erum auðvitað þeirrar
skoðunar hérna að það borgi sig
yfirleitt alltaf að flytja vörur með
sveigjanleiki í fraktfluginu
leiki í fraktfluginu. Ef við tökum
flekaflug sem dæmi (þ.e. tveir
vöruflekar og 79 farþegar í Boe-
ing 727-100) þá er hægt að setja
allt að 3,5 tonnum af frakt á
hvorn fleka.
Og svo við nefnum dæmi um
umfang, er hægt að flytja stykki
sem eru 558X 190X112 senti-
metrar. Eða þá 447X241X91
sentimetri. í hreinu fraktflugi
eiga auðvitað við aðrar stærðir.
Þá er hægt að flytja samtals 18
tonn og stykkin mega vera allt að
sextán metra löng.
flugvélum, en það getur skipt
töluverðu máli með hvaða flugi
þær eru fluttar", sagði Gunnar
Olsen, einn af farmsölumönnum
Fraktflugs.
„Þar getur spilað inní hvenær
sérstök fraktflug eru, hvenær
vöruflekar eru í boði eða hvort
nokkuð þarf að taka tillit til slíkra
aðstæðna.
Iðulega má spara verulegar
fjárhæðir við flutning á vöru frá
framleiðanda til flugvallarins
þar sem íslensk vél tekur við
henni. Við bjóðurn sérstaka ráð-
gjafaþjónustu á þessu sviði.
Viðskiptavinirnir geta hringt
til okkar og ráðfært sig við ein-
hvern farmsölumanninn. Það er
líka hægt að fá farmsölumann í
heimsókn í fyrirtækið, lil að ræða
flutningsþörf þess. í sumum til-
fellum er hægt að spara þannig
töluverðar fjárhæðir“.
Pantaðu
fraktpláss
Sú nýbreytni hefur verið tek-
in upp í flugfraktinni að hægt er
að bóka vörur á ákveðin flug, rétt
eins og farþegar panta sér sæti á
ákveðnum degi. Þetta er nú hægt
að gera frá Bandaríkjunum,
London, Kaupmannahöfn og
Luxemborg og svo auðvitað frá
íslandi til útlanda.
~v~nr
47