Frjáls verslun - 01.04.1981, Side 56
Húsbyggingarsjóður og
félagsheimili V. R.
Úrdráttur úr grein Frímanns Ólafssonar
í afmælisblaði V. R. 1941
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur hefir ekki verið
nema 12 ára gamalt, þegar fyrst var byrjað að ræða
um það í alvöru að koma upp samkomuhúsi fyrir
verzlunarstéttina. Reyndar var það „Framfarafélag
Reykjavíkur“, sem virðist eiga fyrstu uppástungu um
byggingu slíks húss, en forráðamenn þess félags
virðast þá vera þeir sömu og í V.R., því á félagsfundi í
V.R. 21. febr. 1903 er lagt fram bréf frá Framfarafélagi
Reykjavíkur, sem undirritað var af þeim Sighvati
Bjarnasyni og Halldóri Jónssyni, þar sem segir, ,,að
æskilegt væri, ef félög hér í bænum gætu komið sér
saman um að byggja í félagsskap samkomuhús hér í
bænum, þar sem þau gætu haft fundi sína og sam-
komu, geymt húsgögn sín, bækur, blöð og aðra
muni“. Var á þessum fundi kosin þriggja manna
nefnd til þess að athuga þetta mál, og voru kosnir í
nefndina Sighvatur Bjarnason, Halldór Jónsson og
GuðmundurOlsen.
Úr þessari fyrirhuguðu samvinnu um byggingu
samkomuhúss hefir þó ekki orðið, því á fundi í V.R.
14. janúar 1905 er ennþá rætt um húsbyggingarmál-
ið, og skýrði Sighvatur Bjarnason þá frá því, að nefnd
sú, sem áður getur, hefði fengið loforð fyrir áætlun um
kostnað á húsi handa félaginu einsömlu, og skýrði þá
um leið frá fyrirhugaðri stærð hússins og herbergja-
skipun þar með talin eldfæri. Hvar þetta hús átti að
standa kemurekki fram í fundabókum.
Eftir þetta virðist hafa verið hljótt um húsbygging-
armál félagsins þartil árið 1921.
Stofnun húsbyggingarsjóös.
Eitt af stærstu og áhrifaríkustu málum félagsins hefir
án efa verið stofnun Húsbyggingarsjóðsins. Eftir
nokkra kyrrstöðu í starfsemi V.R. varð á árunum
1919-1920 mikil breyting.Áeinum fundi, miðvikudag-
inn 10. nóv. 1920 gengu t. d. inn í félagið 70 menn. Ári
síðar, 8. des. 1921, hélt Jón heitinn Þorláksson alþm.
fyrirlestur á félagsfundi um húsbyggingar almennt,
og á þeim sama fundi skýrði þáverandi formaður,
Erlendur Ó. Pétursson, frá því, að það hefði komið til
tals á meðal nokkurra félagsmanna, að stofnaður yrði
,,húsbyggingarsjóður“ fyrir félagið. Sagði hann þá,
að ,,ef þessháttar sjóður hefði verið stofnaður fyrir 30
árum, myndi félagið hafa átt veglegt hús núna“. Eng-
ar umræður urðu um málið á þeim fundi, en samþykkt
tillaga um að kjósa 3 manna nefnd ,,til þess að gang-
ast fyrir stofnun Húsbyggingarsjóðs fyrir félagið".
Á næsta aðalfundi félagsins, sem haldinn var að
Hótel Skjaldbreið þ. 27. janúar 1922, var svo sjóður-
inn formlega stofnaður með 700 krónum, sem safnazt
höfðu með frjálsum samskotum innan V.R. Var þá
samþykkt skipulagsskrá fyrir sjóðinn. Samkvæmt 3.
gr. skipulagsskrárinnar er ákveðið, að „sjóðnum
megi einungis verja til þess, að koma upp húsi til
afnota fyrir félagið, annað hvort eitt út af fyrir sig, eða í
samlögum við aðra“.
Eftir að mörg hús höfðu verið athuguð og skoðuð,
var samþykkt að kaupa Vonarstræti 4 fyrir 148 þús-
und krónur, og verja til þess handbærum eignum
Húsbyggingarsjóðsins. - Voru nokkuð skiptarskoð-
anir um þessi húskaup í byrjun.
Nokkru eftir að húsið var keypt, í marz 1940, var
byrjað á því að breyta efstu hæðinni, og gera hana
nothæfa fyrir „Félagsheimili". Fór líka gagngerð við-
gerð fram á hinum tveim hæðunum, svo og utanhúss.
56