Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1981, Side 62

Frjáls verslun - 01.04.1981, Side 62
Magnús L. Sveinsson, formaður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur: „Mikilsverðasta verkefnið að vekja verzlunar- og skrifstofufólk til stéttarvitundar“___________________________________ Skömmu eftir ad Verzlunarmannafélag Reykjavíkur varö hreinræktaö launþegafélag réðst Magnús L. Sveinsson til starfa hjá því sem framkvæmdastjóri. Á síöasta aöalfundi var Magnús kjörinn formaöur félagsins. Á starfstíma Magnúsar hjá V. R. hafa oröiö stórfelldar breytingar á högum félagsins og kjörum verzlunarmannastéttarinnar, sem nánar er fjallaö um í eftirfarandi samtali. — Fram til 1955 var Verzlunar- mannafélag Reykjavíkur blandað félag, ef svo mætti segja, þ. e. að í félaginu voru bæði vinnuveitendur og launþegar, sagði Magnús. Að vísu hafði orðið hreyfing í þá átt á árunum næstu á undan, að laun- þegar gerðu sig meira gildandi og fóru að huga meira að beinum kjaramálum sínum. Fram að því hafði alls kyns tómstundastarf- semi og skemmtanir verið efst á dagskrá hjá félaginu. Þegar ég réðst hingað til starfa 1960 var ég einn á skrifstofunni en skrifstofu- stúlka vann með mér hálfan dag- inn. Og þetta var afskaplega rólegt líf. Það var næstum viðburður ef síminn hringdi. Núna erum við átta starfsmenn félagsins og allar símalínur meira og minna rauð- glóandi allan guðslangan daginn. Manni verður oft hugsað þá til þessara gömlu daga, þegar ég sat hér í rólegheitum og hafði drjúgan tíma til að vinna að alls kyns verk- efnum í góðu næði. Það var mest knýjandi, þegar fé- lagið varð hreint launþegafélag 1955 að vekja fólk til stéttar- vitundar. Aðalatriðið var að ná fólki í félagið. Það voru ekki nema þúsund manns í Verzlunarmanna- félagi Reykjavíkur á þeim tíma en félagsmenn eru nú um tíu þúsund. Að vísu hefur fjölgað í greininni. En á miðjum sjötta áratugnum var ekki nema hluti af fólki í verzlun og þjónustu í félaginu. Menn töldu ekki neina ástæðu til að vera í fé- laginu. Það hafði ekki gert kjara- samninga nema að takmörkuðu leyti og stéttarleg tilfinning fólksins var ekki fyrir hendi. Meg- inverkefnið var því að sameina launþegana í einu félagi og gera það öflugt með þátttöku fólksins sjálfs. Þetta tók býsna langan tíma. Fyrstu árin eftir 1955 var háð hörð barátta fyrir því að fá félagið viðurkennt af vinnuveitendum sem stéttarfélag. Það tók félagið fjögur ár og þurfti að leita til annarra félaga eins og t. d. Dags- brúnar til að fá suma af viðsemj- endum okkar til að viðurkenna V. R. sem hreint stéttarfélag og lög- formlegan samningsaðila vinnu- veitenda. - Hverja telurþú hafa veriö mik- ilsveröustu áfangana I kjarabar- áttu V. R. eftir aö félagiö varö hreint launþegafélag? - Það er hægt að nefna fjöl- mörg atriði, sem V. R. hefur fengið fram með sérsamningum sínum við vinnuveitendur og í samvinnu við heildarsamtök verkalýðshreyf- ingarinnar eða með löggjöf, sem hún hefur lagt áherzlu á. Ég vil sérstaklega nefna eftirtalin atriði: • Vinnuvika hefur stytzt úr 48 stundum í 38—40 stundir og er nú unnin á fimm dögum vik- unnar í stað sex áður. • Flokkaskipanin hefur verið al- gjörlega umsköpuð. Nú ergetið yfir 70 starfsheita í stað 19, sem voru í fyrstu samningum eftirað félagið varð hreint launþega- félag. • Sumarleyfi hefur lengzt úr 18 virkum dögum í allt að 47. • Greidd veikindaforföll hafa lengzt úr þremur mánuðum í sex mánuði. Þá höfum við eign- ast sjúkrasjóð, sem tekur við af greiðslum frá vinnuveitendum, þegar um lengri veikindi er að ræða. • Ég vil geta ákvæða um að- búnað á vinnustað, sem ekki voru sérstaklega tilgreind í fyrstu samningunum. • Orlofssjóðurinn hefur tryggt það að félagið á núna 16 orlofs- hús, í Húsafelli, Vatnsfirði, III- 62

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.