Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1981, Qupperneq 63

Frjáls verslun - 01.04.1981, Qupperneq 63
ugastöðum í Fnjóskadal og Ölfusborgum. • Verkalýðshreyfingin lagði á- herzlu á löggjöf um atvinnu- leysistryggingasjóð, sem trygg- ir að menn missi ekki laun þó þeir verði atvinnulausir um stundarsakir. Á þessu afmælisári höfum við á- kveðið að leggja megináherzluna á aukið fræðslu- og útbreiðslustarf. Við viljum vekja félagsmenn til aukinnar stéttarvitundar, m. a. með því að nota fjölmiðla í vaxandi mæli. Félagið þarf að taka tækninýjungar í sína þágu, annars drögumst við aftur úr. Við höfum þess vegna birt auglýsingar í sjón- varpi og blöðum, þar sem sýndar eru myndir af félagsmönnum í starfi og hvaða þýðingu þessi störf hafa fyrir þjóðina og hve marg- breytilegu hlutverki félagar (Verzl- unarmannafélaginu gegna. Við höfum gefið út sérstakan upplýsingabækling um félagið, ,,Hvað gerir V. R. fyrir þig?“ Þarna er rakið það sem áunnizt hefur með starfsemi félagsins þannig að félegsmenn getið áttað sig á því hvaða þýðingu félagið hefur haft. Það verða haldin námskeið í einstökum starfsgreinum og við gefum út afmælisrit með sögu fé- lagsins. Haldnir hafa verið borg- arafundir um málefni efst á baugi svo sem tölvumál og málefni aldr- aðra. Á afmælisárinu er líka stefnt að því að koma upp sýningu á mynd- verkum sem félagsmenn í V. R. hafa unnið að í frístundum sínum. - Hefur kjarabarátta verzlunar- manna boriö eitthvaö annaö svip- mót en barátta annarra launþega- samtaka á isienzkum vinnumark- aöi? - Nei. Þetta hefur verið ósköp svipað. Það sem upp úr stendur eru launin sjálf og vinnutíminn, en þetta er hvort tveggja samtengt. Lengi framan af hugaði fólkið, sem vann við afgreiðslustörf t. d. alls ekki að yfirvinnu. Vinna þess var ekki endurseld á sama hátt og t. d. vinna iðnaðarmanna. Hver vinnustund hjá bifvélavirkja er sett á reikning neytandans. Allt öðru máli gilti um verzlunarfólkið, þar sem vinnan var endurseld í vöru- verðinu. Verzlunar- og skrifstofu- fólk hafði nokkuð rúm tækifæri til að skreppa úr vinnu, hvort sem það var á hárgreiðslustofu eða til rakarans án þess að það væri dregið frá kaupi, af því að hver eining í starfi þessa fólks var ekki seld út aftur. Þetta olli því líka að menn voru ekki að gera kröfur um greiðslur fyrir yfirvinnu. Að þessu leyti var annar blær á starfi verzl- unar- og skrifstofufólks en hjá flestum öðrum stéttum. í fyrstu kjarasamningum okkar var beinlínis gert ráð fyrir að fyrstu 10 mínúturnar eftir að dagvinnu lauk væru ókeypis en síðar var al- gjörlega skorið á þetta og hver mínúta reiknuð að fullu. Það var auðvitað mikið mál fyrir félagið að fólkið hugaði vel að vinnutíma sín- um og skörp skil mynduðust milli dagvinnu og yfirvinnunnar, sem reiknast nú strax að lokinni dag- vinnu. - Hver hefur afstaða annarra launþega verið til verzlunarfólks? Fékk verzlunarfólkið viðurkenn- ingu annarra stétta strax sem full- gildur launþegahópur? - Af sumum forystumönnum annarra launþega hefur verið haldið uppi áróðri gegn verzlun- inni og verzlunarfólki með slag- orðum um að verzlunin sé afæta á þjóðfélaginu. Það er rétt, að neyt- andinn verður að greiða fyrir dreif- ingu vörunnar en á sama hátt leggst ýmis kostnaður á fram- leiðslustarfsemina, sem neytend- ur verða líka að borga fyrir. Þarna erþvíenginn munurá. Afturá móti virðist sem menn líti öðrum augum þann kostnað sem kemur á vör- una, eftir að hún hefur verið fram- leidd og stendur innpökkuð uppi í hillu. Varan er hins vegar einskis nýt ef hún er ekki fyrir hendi, þar sem neytendurnir þurfa á henni að halda. Afgreiðslufólkið I verzlun- um hefur óneitanlega verið litið hornauga af sumum í öðrum stétt- um fyrirbragðið. 63
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.