Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1981, Side 70

Frjáls verslun - 01.04.1981, Side 70
Flugleiöa til þessa dags. Minni — eða svo til enginn — gaumur hefur veriö aö því gefinn aö viöræöur um samvinnu og/eöa sameiningu Flugfélags íslands og Loftleiða, þeirra í milli og meö þátttöku stjórnvalda, ganga eins og rauður þráður gegnum sögu þeirra. Þetta skulum við nú athuga nánar. Áöur var vikiö aö viðleitni ungu flugmannanna þriggja til að ganga í lið Flugfélags íslands við heim- komuna, og höfum viö þaö eftir núverandi flugmálastjóra, Agnari Kofoed-Hansen, sem var aðal- hvatamaöur aö stofnun Flugfélags Akureyrar og fyrsti framkvæmda- stjóri þess og eini flugmaður fyrstu tvö árin, en átti sæti um árabil í stjórn Flugfélags íslands eftir að það fluttist til Reykjavíkur, aö litlu heföi munaö aö stjórnin samþykkti að ráða til sín þá þremenninga Alfreó Elíasson, E. Kristin Olsen og Sigurö Ólafsson og kaupa vél- ina þeirra. Kvaöst hann hafa taliö að meirihluti stjórnarinnar væri því hlynnturog úrslitin hefðu þvíorðið sér „afskaplega mikil vonbrigöi." Frumvarp Vilhjálms Þór Þá var það í september 1944 aö frumvarp til laga var borið fram á Alþingi íslendinga þess efnis aö flugsamgöngur innanlands yröu í höndum eins aðila. Flytjandi frum- varpsins var Vilhjálmur Þór, sem þá var ráðherra í utanþingsstjórn Björns Þóröarsonar og gegndi embætti utanríkis- og atvinnu- málaráöherra sem flugmál heyrðu undir, en segja má aö Vilhjálmur hafi ásamt Agnari Kofoed-Hansen skapað grundvöll að stofnun Flugfélags Akureyrar sumarið 1937 er hann var kaupfélagsstjóri á Akureyri, og var hann stjórnar- formaður félagsins þau ár sem það starfaði nyrðra. f frumvarpinu er gert ráð fyrir að lagt verði ,,fé úr ríkissjóði til aukningar á hlutafé Flugfélags íslands h/f, þannig að ríkissjóður eigi 50% af öllu hluta- fénu,“ og atvinnumálaráðuneytið veiti „Flugfélagi íslands h/f einka- rétt til flugferða hér á landi og til útlanda með farþega, póst og far- angur." Sá hængur var þó á þessu frumvarpi að engu orði var vikið að hinu flugfélaginu sem stofnað hafði verið sex mánuðum áður og hafði annast síldarleit það sumar og hafið farþegaflug þá um vorið m.a. til ísafjarðar og Vestmanna- eyja, og fest kaup á Grumman Goose farþegavél vestur í Banda- ríkjunum sem afhent var í októ- ber 1944. I umræðum var „þessi ein- ræðisandi í frumvarpinu" gagn- rýndur og það talið „allróttækt" hvað varðar þátttöku ríkisvaldsins, þótt flytjandi drægi síðar í land og teldi að allt að 25% ríkiseign myndi nægja og ætlunin væri „aö sjálf- sögöu,aðflugfélaginuh/f Loftleið- um sé gefin kostur á að koma inn í Flugfélag (slands, bæði með sitt fé og sínar flugvélar, sem það kann að eiga, og með þá menn og orku; sem þaö hefur til þess að byggja upp flugmálin í landinu." Umræður um frumvarpið urðu að- eins á þremur fundum neðri deild- ar. Þaðan var því vísað til 2. um- ræðu og til samgöngumálanefnd- ar, en skv. Þingskjali 339—340 kom nefndarálit ekki, „og frum- varpið var ekki á dagskrá tekið framar." „Samkeppnissamgöngur" heima og erlendis Þegar komið var fram á mitt ár 1948 fóru að birtast greinar og leiðarar í dagblöðum um nauðsyn á betri skipan á rekstri flugsam- gangna því íslenski markaöurinn væri svo lítill að hann skapaði ekki möguleika til sæmilegrar afkomu nema fyrir eitt fyrirtæki. í leiðara 7. júní færir Tíminn rök aö því út í hvaða öfgar samkeppnin í flug- málum sé komin og nefnir sem dæmi að það ár verði sennilega keyptar til landsins sín hvor DC-4 Skymastervélin til millilandaflugs fyrir félögin tvö og kosti hvor þeirra „margar milljónir." Væri þetta önnur vél Loftleiða af þessari gerð og þess að vænta að Flugfé- lagiö kæmi á eftir með beiðni um aðra Skymastervélina, því „þegar annað flugfjelagið hefur fengið nýja vjel, gerir hitt fjelagið vitan- lega kröfu til þess sama svo að jafnvægi haldist milli fjelaganna" og ekki ósennilegt að gjaldeyris- yfirvöld láti undan, „enda gerðu þau að öðrum kosti óeðlilegan mun á fjelögunum." „Þannig leiðir þessi samkeppni í flugmálum út í ógöngur," segir leiðarahöfundur og bendir á þróun flugmála á Norðurlöndum (þar sem SAS hafði verið stofnað tveimur árum áður við samruna flugfélaga Danmerk- ur, Noregs og Svíþjóðar) til stuðn- ings þeirri skoðun sinni að „Eina heilbrigöa lausnin er að koma öll- um flugsamgöngum sem íslend- ingar reka, í hendur eins aðila." Um þessar mundir var sam- keppnin í millilandafluginu þó að- eins að hefjast, enda félögin bæði byrjendur á þeim vettvangi. Flug- félag (slands reið á vaöið sumarið 1945 með fyrsta fluginu til Skot- lands í Katalínubát félagsins og tveimur öðrum ferðum það sumar til Skotlands og áfram til Kaup- mannahafnar — og samtals 56 farþega í öllum þremur ferðum. Loftleiðir hófu millilandaflug sitt 17. júní 1947 með DC-4 Sky- mastervél til Kaupmannahafnar, og ári síðar var fyrsta flug félagsins vestur yfir haf til New York. Og eftir að Flugfélagið fékk sína fyrstu Skymastervél sumarið 1948 hóf félagið flug til Osló og ári síðar til London. Einnig var hægar af stað farið í' samkeppninni á flugleiðum milli landa en innanlands. Veturinn 1948 til ‘49 höfðu félögin t.d. sam- vinnu um áætlunarflugið til Kaup- mannahafnar og Prestvíkur þannig aö þau flugu til skiptis sitt hvora vikuna á þriðjudögum og miðvikudögum, og voru farseðlar hvors félags gildir hjá hinu og far- pantanir mátti gera hjá hvoru fé- laginu sem var. Afgreiðsla í Kaup- mannahöfn var sameiginleg og sömuleiðis í Prestvík. Fögnuðu blöð hér heima mjög þessari þróun og vænti leiðarahöf- undur Morgunblaðsins 26. nóv. 1948 þess „að samvinna sú, sem tekist hefur milli flugfjelaganna, sje vísir að vítækari samvinnu þeirra í framtíðinni", enda væru „samkeppnissamgöngur" þar sem vélar hvors félags flygu hálf tómar „óþörf eyösla á eldsneyti og fjármunum." Honum varð þó ekki að þessari ósk því samvinnan stóð aöeins þennan eina vetur. ( kjölfar hennar kom óheft samkeppni, og 70 J

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.