Frjáls verslun - 01.04.1981, Side 79
Veggfóðrarinn var fyrst tll húsa í Kolasundl 1.
ur Þorbergsson, Hallgrímur Finns-
son, Jóhann Á. Guðlaugsson, Jó-
hannes Björnsson, Sveinbjörn Kr.
Stefánsson, Victor Kr. Helgason
og Þorgrímur Jónsson.
Hlutafé var ákveðið 500 krónur á
mann og Victor Kr. Helgason var
ráðinn fyrsti framkvæmdastjórinn.
Hann stýrði fyrirtækinu allt fram til
ársins 1940, að Karl Schram tók
við og stýrði því til dauðadags
1963. Þá tók við stjórninni Unnur
Schram, en hún stjórnaöi Vegg-
fóðraranum fram til ársins 1975,
að ég tók við, „sagði Einar Þor-
varðarson.
Aðspurður sagði Einar, að alla
tíð hefði Veggfóðrarinn sérhæft
sig í vörum fyrir veggfóðrara og
dúklagningamenn. — „Reyndar
má segja, að þetta sé eina sér-
verslunin fyrir þessar iðngreinar.
Við seljum hér veggfóður, gólf-
dúka, gólfflísar, veggdúka, máln-
ingu og ýmis konar handverkfæri,
sem tengjast þessu svo eitthvað sé
nefnt,“ sagði Einar.
Veggfóðrarinn var fyrst til húsa í
Kolasundi 1, eða frá stofnun hans
fram til ársins 1955, að flutt var í
núverandi húsnæði að Hverfis-
götu 34. — „Starfsemin hafði al-
gerlega sprengt utan af sér hús-
næðið í Kolasundi, þegar ákveöið
var að flytja í núverandi húsnæði,
sem í dag er bæði orðið alltof lítið
og staðurinn er ekki nægilega
heppilegur. Við erum því um
þessar mundir að leita að heppi-
legu framtíðarhúsnæði fyrir okk-
ur,“ sagði Einar.
Nú er þetta tiltölulega dýr vara,
sem þið verslið með. Hvernig
gengur að halda lager? — ,,Við
reynum auðvitað að hafa sem best
úrval á hverjum tíma, en auk þess
erum við mjög vel settir, því við er-
um með pláss í Tollvörugeymsl-
unni fyrir alla vöru frá DLV í Vest-
ur-Þýskalandi, en frá þeim fáum
við stóran hluta af okkar vörum.
Við höfum aðeins söluumboð fyrir
DLV, eins og reyndar flestar þær
vörur, sem við erum með. Vegg-
fóðrarinn hefur engin umboð,"
sagði Einar.
Hvern telur þú vera helsta styrk
Veggfóðrarans í dag? — ,,Það er
ótvírætt sú staðreynd, að við erum
með fagverslun. Hér eru ætíð til
staðar fagmenn, sem aðstoða við-
skiptavini, sé ráðlegginga óskað,“
sagði Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri Veggfóðrarans að
síðustu.
Það má ennfremur geta þess, að
Veggfóðrarinn stofnaði á árinu
1941 systurfyrirtæki, sem fram-
leiddi gólfdúkalím. Mest allt gólf-
dúkalím, sem notað var hér á landi
í langa tíð var framleitt þar. Eftir að
innflutningur var gefinn frjáls fó;
síðan að halla undan fæti hjá lítn-
gerðinni, og hún var síöar iögð
niöur árið 1963.
Fyrstu stjórn Veggfóðrarans
skipuðu þeir Björn Björnsson,
Hallgrímur Finnsson og Victor Kr.
Helgason, en í núverandi stjórn
sitja Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, Svein-
þjörn Kr. Stefánsson, sem var einn
af stofnfélögum og Þorbergur
Guðlaugsson. (ýg
79