Frjáls verslun - 01.04.1981, Síða 80
Llreinum verksmiðjusalnum.
SEIKO
1100 ÁR
Eitt hundrað ár eru liðin frá
því að japanska fyrirtækið
Seiko var stofnsett, en í dag er
það langstærsti úraframleið-
andi í heimi. í tilefni afmælis-
ins buðu verksmiðjurnar til sín
helstu umboðsmönnum sínum
víðs vegar um heiminn og
helstu viðskiptavinum í við-
komandi löndum. Frá fslandi
var boðið Ómari Kristjánssyni,
framkvæmdastjóra Þýsk-fs-
ienska verslunarfélagsins,
sem hefur umboð fyrir Seiko
hér, auk þriggja úrsmiða og
eiginkvenna þeirra. Frjáls
verzlun hitti Ómar að máli fyrir
skömmu og innti hann frétta af
heimsókninni til Japan og
framgangi Seiko hér á landi.
„Móttökurnar, sem við fengum í
Japan, voru í einu orði sagt frá-
bærar, enda er hér um að ræða
geysilega öflugt fyrirtæki, stærsta
framleiðanda úra í heiminum í dag.
Hjá fyrirtækinu starfa í Japan lið-
lega 46 þúsund manns.
Það má segja, að framleiðslan
hafi í gegnum árin aðallega skipst í
tvennt. Fyrstu hálfa öldina fram-
leiddi Seiko aðallega klukkur og
hluti þeim tengda, en síðan fóru
þeir að snúa sér meira að úra-
smíði, en þó aðallega í fyrstu á
heimamarkað. Seiko fór ekki að
leggja verulega áherslu á Evrópu-
markað fyrr en um 1970, en það
var einmitt á þeim tíma, sem þeir
fyrstir framleiðenda kynntu
Quartz-úrið. Quartz-úrið hefur
síðan farið sigurför um heiminn
eins og flestum er eflaust kunnugt
um.
Eins og ég sagði fór Seiko ekki
að leggja áherslu á Evrópumarkað
fyrr en eftir 1970, en á þeim liðlega
tíu árum sem liðin eru síðan hefur
fyrirtækið náð undraverðum ár-
angri. Hingað til lands var ekki
farið að flytja Seiko fyrr en fyrir um
80