Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1981, Page 81

Frjáls verslun - 01.04.1981, Page 81
fslenzki hópurinn í einni verksmiðja Seiko í Japan Ómar Kristjánsson, framkvæmdastjóri þýzk-islenzka verzlunartélagsins lengst t.v. tveimurárum. Það tók þá um tvö ár að taka ákvörðun um hvort þeir vildu selja hingað. Þeir taka ekki ákvörðun fyrr en að vandlega at- huguðu máli,“ sagói Ómar. ,,Á þessum tíma frá því fyrsta Seiko-úrið kom hingað til lands hefur okkur tekist bærilega upp. Markaðshlutdeildin er um 20% séu öll úr talin saman, en séu aðeins tekið svokölluð „alvöruúr", þá eru til dæmis „skólaúr" ekki talin með, þá er markaðshlutdeild Seiko í námunda vió 40%. Ástæð- una fyrir þessari miklu velgengni tel ég fyrst og fremst vera þá, að Seiko eru úr í hæsta gæðaflokki, en í meðalháum verðflokki. Þú kannt því eflaust að spyrja hvernig þeim tekst að framleiða fyrsta flokks úr á meðalveröi. Ástæðan er einföld með því að framleiða gífurlegt magn er þetta hægt. Sem dæmi um fjölbreytnina hjá Seiko get ég nefnt, að yfir 4000 tegundir armbandsúra eru nú í framleiðslu hjá fyrirtækinu. Við flytjum hins vegar ekki hingað til lands nema í kringum 3000 tegundir. Ofan á það, að Seiko er almennt á hagstæðu verði, teljum við okkur hér á íslandi hafa náð óvenju hag- stæðum samningum um verð, sem kemur íslenskum viðskiptavinum auðvitað til góða," sagði Ómar. Hvernig dreifið þið og seljið Seiko hér á landi. — ,,( upphafi sendum við öllum úrsmióum á landinu bréf og buðum þeim að selja Seiko. í Reykjavík eru liðlega 20 úrsmiðir, en um helmingur þeirra falaðist eftir því að selja Seiko. Þegar Ijóst var hverjir vildu selja fórum við af staö og í dag seljum við ekki öðrum, þótt margir hafi komió síðar meir og viljað selja. Þá seljum við í verslanir úti á landi," sagði Ómar. Á síðasta ári seldust um 4 þús- und úr frá Seiko, en að sögn Ómars gera þeir hjá Þýsk-íslenska verslunarfélaginu ráð fyrir að selja liðlega 6 þúsund úr á yfirstandandi ári, sem yrði rúmlega helmingur allra úra, sem talið er að seljast muni í landinu. Um varahlutaþjón- ustuna sagði Ómar, að þeir reyndu að hafa sem allra mest á lager, en það gerði nokkuð erfitt fyrir hversu breytingar væru miklar milli ára. Hvernig standa íslendingar gagnvart öörum þjóöum hvað varöar endurnýjun á úrum — „Þeir eru vægast sagt aftarlega á merinni. íslendingar eru mjög íhaldssamir í þessum efnum. í öðrum löndum telja menn úr vera einn hluta af klæðnaöinum, en hér eru menn alltaf með sama gamla úrið, hvort þeir eru að verka fisk eða í veislu. Sem dæmi um íhalds- semina má ennfremur geta þess, að hingað eru enn flutt handtrekkt úr, en í bréfi, sem ég fékk nýverið frá verksmiðjunum, sagði aö þetta yrði síðasta árið, sem hægt yrði að fá þessi úr frá þeirn," sagði Ómar. Að síðustu kom það fram hjá Ómari, að Seiko er fjölskyldufyrir- tæki, sem gengið hefur í gegnum þrjá ættliði, en nú er sonarsonur gamla Seiko við stjórnvölinn. Sá býr í fjögurra herbergja íbúð í stórri blokk ÍTokyo og á hæðunum bæði fyrir ofan hann og neðan búa aðrir almennir starfsmenn verk- smiðjanna, svo ekki er hægt að segja, að hann berist mikið á maðurinn sá. 81

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.