Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1981, Side 85

Frjáls verslun - 01.04.1981, Side 85
^jyggó Stykkishólmur: ÞAR ER AÐ FINNA SKEMMTILEGA BLÖNDU GAMALS TÍMA OG NÝS „Þeir eru farnir að byggja stórt í Hólminum", er sagt að hrotið hafi af vörum fyrrverandi héraðslækn- is þeirra, þegar hann kom til New York, fjörgamall orðinn, og leit upp eftir skýjakljúfunum. Sem betur fer byggja þeir ekki svo stórt vestra í höfuðstað snæfellskra byggða. En þar er mikið byggt og lagiega, og heimamenn annast þann hluta sjálfir. í Stykkishólmi má segja að iðnaður sé í hávegum hafður, en fiskverkun e.t.v. að sama skapi minna en víða í byggðum þessa rúmlega 100 kílómetra langa skaga. Það vekur athygli aðkomu- manna í Hólminum hversu hrein- legur og snyrtilegur bærinn er, auk þess sem náttúrufegurðin er ein- stök. Bærinn er líka lifandi og blanda gamals tíma og nýs virðist heppnast vel í hvívetna. Ferðafólk, erlent og innlent, er fjölmennt í Stykkishólmi og raunar víðar um Snæfellsnesið yfir há- sumarið. Heimamenn hafa sýnt mikla fyrirhyggju með því að reisa stórt og gott hótel, Hótel Stykkis- hólm, en herbergi þar og allar vistarverur standa raunar fínu hótelunum í höfuöborginni ekkert að baki. Hótelstjórinn heitir Guð- rún Þorsteinsdóttir og hefur hún 25 manna starfslið með sér, þegar mest er um aö vera á sumrin. Ferðamöguleikar eru miklir frá Stykkishólmi. Menn geta rennt fyrir fisk úti á firðinum, farið í gönguferðir, — eða skroppið yfir í Flatey eða yfir á Barðaströnd með flóabátnum Baldri. Hann er í förum Jón Pétursson yfirmatsveinn og Guðrún Þorsteinsdóttir hótelstjórl huga að matseld dagsins. 4—5 sinnum í viku á sumrin en sjaldnar að vetrarlagi. Fram- kvæmdastjóri útgerðar Baldurs er Guömundur Lárusson. Mjög hefur það verið vinsælt að sigla með bíl yfir á Brjánslæk á Barðaströnd, eða þaðan til Stykkishólms og vissara að panta fyrirfram. Burðarásinn í viðskiptalífi Stykkishólms um áratuga skeið hefur verið og er enn fyrirtækið Sigurður Ágústsson h.f. sem nú er stjórnað af Ágústi Sigurðssyni, syni upphafsmannsins sjálfs. Auk þess að stjórna daglegum rekstri umsvifamikilla fyrirtækja hefur Ágúst mikinn áhuga á verndun gömlu húsanna í miðbæ Stykkis- hólms. Sjálfur hefur hann aðal- bækistöðvar í gamla Tang & Riis- húsinu, sem er sérkennilegt í útliti. Ágúst situr á kjötloftinu og stjórn- ar, en uppi á ullarloftinu gamla er verið að innrétta skemmtilega að- stöðu fyrir starfsfólkið. „Húsin sem ég tel að vernda beri helst eru Clausenshús sem faðir minn átti og verið er að gera við eftir því sem föng eru á, og Hjaltanes þar sem Sæmundur Halldórsson verslaði í eina tíð. Annars má ég varla sjá pening, þá er hann horfinn í gömlu húsin", sagði Ágúst Sigurðsson. í kringum fyrirtækin í Hólminum hefur skapast sú aðstaða að mannskap vantar, — og húsnæði fyrir þá sem vilja flytja til bæjarins. Tvær trésmiöjur, mikil fyrirtæki á Gunnar Haraldsson framkvæmdastjórl Aspar, en það fyrlrtæki hyggur nú á frek- ari útfærslu. 85 L

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.