Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1981, Síða 3

Frjáls verslun - 01.11.1981, Síða 3
Stærri og efnismeiri blöö 1982. Útgáfuáætlun Frjáls framtaks fyrir árið 1982 er nú birt í blaðinu og þá sérstaklega fyrir auglýsendur sem margir hverjir eru að undirbúa auglýsingaáætlanir sínar fyrir næsta ár. Gert er ráó fyrir 46 útgáfum sérritanna auk annarrar útgáfu- starfsemi á vegum fyrirtækisins en Frjálst framtak er meðal fimm stærstu fyrirtækja á sviði útgáfu- og prentiðnaðar hér á landi. Aöalbreytingin á næsta ári verður sú aö blöðin verða stærri, efni þeirra fjölbreytilegra og verða þar sérstakir efnis- kaflar sem ekki hafa verið áður gerð regluleg skil en verður nú gert. Með þessu móti verður hægt aö gera hvert sérrit ítarlegra þannig að það þjóni lesendum sínum betur en áður. Þróunin á sviði sérritanna er einfaldlega sú að þau verða sér- hæfari með hverju árinu og þjóna þá betur hlutverki sínu sem almennir fjölmiðlar geta ekki gert. Um leið verða þau verö- mætari fyrir auglýsendur ef efni þeirrar skapar þeim þann markað sem ætlast er til. Dæmi um áhrifamátt blaða eru mis- munandi en sérstaklega ber aó benda á aó aðeins ein auglýs- ingabirting í tízkublaóinu Líf hefur t.d. markaðssett nýja tegund snyrtivöru sem áöur var óþekkt hér á landi. Birtist þessi aug- lýsing sl. vor í blaðinu og hefur verið stöðug eftirspurn eftir vörunni síöan. Sams konar vörur eru auglýstar í sjónvarpi fyrir tífalda upphæð viókomandi auglýsingar eða miklu meira. í næsta blaði Frjálsar verzlunar verður fjallað um 100 stærstu fyrirtækin á íslandi en Frjáls verzlun birtir árlega fróðlegt yfirlit yfir starfsemi fyrirtækjanna þar sem þeim er raðað eftir stæró og veltu ásamt öðrum upplýsingum.

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.