Frjáls verslun - 01.11.1981, Blaðsíða 60
^yggö
tískusveiflurnar geri hinsvegar
þaö aö verkum að skóverslun sé
áhættusöm því álagningin sé svo
lág. eöa álíka og á niðursoðnum
ávöxtum. sem ekki geti talist
áhættuinnflutningur því þar komi
tískusveiflur ekki til. Alltaf þurfi aö
lækka eitthvað magn niðurfyrir
innkaupsverð og spurningin um líf
og dauða í þessari verslunargrein
sé einfaldlega hversu mikið hlutfall
innkeyptra vara fari þá leiðina.
..Jú, þá má eftilvill segja að við
íslendingar séum dálitlir trassar á
skófatnað okkar þótt það fari
batnandi, en við verðum líka að
taka tillit til veðurfarsins, sem eftil-
vill á sinn þátt í meðferð okkar á
skóm. Það er líka eftirtektarvert að
margir virðast eiga mjög lítið af
skóm, því það kemur fyrir að menn
koma hér inn á útgengnum skóm
og vilja kaupa aðra jafn góða því
þessir hafi dugað þeim upp á dag í
meira en ár". segir Ásgeir að
lokum. —
Pípulagnir sf:
Snjóbræðslu-
kerfin henta
sérstaklega á
íslandi
Miöi í happdrætti SÍBS gefur
góöa vinningsvon,nær 2/3 hlutar
veltunnar fara í vinninga, og
meira en fjóröi hver miöi hreppir
vinning. Þar aö auki á hver seldur
miöi þátt í því aö aðrar vonir
rætist. Vonir þeirra sem þurfa á
endurhæfingu aö halda -
endurheimta afl og heilsu með
þjálfun og störfum við hæfi.
Árlega fá nær 600 manns
þjálfun og vinnu aö Reykjalundi
og 40 öryrkjar starfa að jafnaði á
Múlalundi. Og enn er átak
framundan: ný þjálfunarstöð aö
Reykjalundi og nýtt húsnæöi fyrir
Múlalund.
Almennur stuðningur landsmanna
erlykillinn að árangursríku
starfi SÍBS_____________________
Happdrætti SÍBS
MIÐAVERÐ AÐEINS 30 KR.
Hæsti vinningur 150.000 kr.
Sigurður Grétar Guðmundsson
í Pípulögnum sf að Smiðjuvegi 28,
hefur aldrei þótt ragur við nýjung-
ar, enda er nú svo komið að ein
nýjung, sem hann ruddi braut hér,
hefur náð slíkum vinsældum, að
hann annar ekki eftirspurn. Það er
hitaiögn undir innkeyrslur, plön,
torg, íþróttavelli o.fl.
Kerfi þessi eru sænsk og þróuð-
ust þar í landi á áratugnum ’60 til
'70. en hvergi í Skandinavíu a.m.k.
hafa þau náð annarri eins út-
breiðslu á skömmum tíma og hér,
enda hvergi alla þá afgangsorku
aó fá sem hitaveitufrárennslið frá
húsum hér. Sem dæmi má nefna
að úr einu meðal einbýlishúsi hér
fæst nægilegur hiti til að halda 35
til 40 fermetrum snjófríum. Hefur
hann m.a. lagt slík kerfi í Iþrótta-
völlinn í Kópavogi, Lækjartorg, við
Sjálfsbjargarhúsin, í kirkjugólfið i
Njarðvíkurkirkju í stað hefóbund-
innar hitalagnar, svo eitthvað sé
nefnt.
Þótt í fljótu bragði kunni að sýn-
ast að kerfi þessi séu harla einföld
í uþpsetningu, bara að dreifa
slöngum á jörðina, eru þau út-
hugsuð með tilliti til óskaðrar
virkni. Þá spilar inn í lengd lagnar,
dýpt í jörðu, fjarlægð á milli röra
o.s.frv. Slöngurnar og tengin eru
mjög örugg og þegar t.d. er búið
að steypa ofan á þau á ekkert að
geta komið fyrir ef leiðslurnar hafa
ekki verið skemmdar við lagningu
steypunnar því nú eru rörin fáan-
leg með inndregnum frostvarnar-
þræói svo þau geta ekki sprungið
þótt svo slysalega vilji til að það
frjósi i þeim fyrir mistök.
Það er með þessa nýjung eins
og svo margar aðrar hérlendis, að
60