Frjáls verslun - 01.11.1981, Síða 44
Þessar niðurstöður eru byggðar
á rannsóknum sem prófessor í
félagssálarfræði við Stanfordhá-
skóla í Bandaríkjunum, Philips G.
Zimbardo, og samverkamenn
hans hafa stundað undanfarin sex
ár og ná til rúmlega 7000 manns.
Zimbardo hefur skrifað nokkrar
bækur um þessi mál, m.a. bókina
..Shyness: What It Is, What to Do
About lt,“ og fjölda greina. Hér eru
nokkur atriði sem fram komu í við-
tali við hann í bandaríska tímarit-
inu U.S. News and World Report:
Er feimni meðfædd
eða áunnin?
Allt bendir til þess að feimni
megi rekja til samneytis okkar við
annað fólk. Rannsóknir okkar
leiddu í Ijós að fjórðungur þess
fólks sem var feimið á fullorðins-
árum hafði ekki fundið til feimni á
barnsaldri. En það var líka stór
hópur manna sem var feiminn í
bernsku en feimnin fór af þeim
með aldrinum. Ályktun okkar er sú
að feimni eigi rætur að rekja til
mats á verðmætum í þjóðfélaginu
og skiptingu þeirra, og einnig til
atburða í bernsku — á heimilinu, í
skólanum eða meðal félaga.
Grundvallareinkenni feimni eru
óeðlilega mikil öryggisþörf og ótti
við að taka áhættu sem boðið gæti
kerfinu byrginn. í þessu felst að
feiminn maður sættir sig við eða
kýs jafnvel frekar óbreytt ástand.
Hann vill heldur búa við það sem
hann þekkir en taka áhættuna af
því að reyna eitthvað nýtt og
óþekkt.
Feimið fólk fer margs á mis með
því að taka ekki áhættur í lífinu.
Það lætur stjórna gerðum sínum
eða þær stjórnast af aðstæðum.
Feimnu fólki er svo mikið í mun að
það falli öðrum í geð og sé vinsælt
að það gerir sig ánægt með margt
það sem það mundi ekki fella sig
við meö sjálfu sér.
Feimni hefur fáa
kosti en marga van-
kanta
Feimni er ekki ókostur í þeim fáu
tilfellum þar sem hún kemur
þannig fram í fari manns að hann
er hæglátur og rólyndur, skiln-
ingsríkur og góður hlustandi.
Suma gerir hún jafnvel meira að-
laðandi. Feimið fólk er yfirleitt ekki
ágengt. Það treður sér ekki fram í
sviðsljósið heldur lætur það öðr-
um það eftir.
En í hópi þeirra sem við rann-
sökuðum voru þeir fáir sem tíndu
til þessa jákvæðu eiginleika
feimninnar. Langflestir — eða
rúmlega 75% manna á öllum aldri
— álitu að feimni væri þeim fjötur
um fót, og jafnvel persónulegt
vandamál. Kemur þar margt til,
m.a. eftirfarandi:
Feiminn maður á erfitt með að
kynnast ókunnugum, eignast vini
eða njóta þess sem aðrir hafa að
gefa.
Feiminn maður veigrar sér viö
að tala máli sínu, láta í Ijós skoð-
anir sínar og álit á málefnum.
Feiminn maður nýtur ekki rétt-
metis meðal annarra. Feimnin
aftrar því að hann geti komið fram í
sínu rétta Ijósi.
Feiminn maður finnur til van-
metakenndar. Hann er óhóflega
upptekinn af sjálfum sérog kemur
það þannig út að hann hirðir
minna um aðra og nær ekki sam-
bandi við þá.
Við höfum ennfremur komist að
raun um að feimni veldur því að
maður á erfitt með að hugsa skýrt
og tala áheyrilega. Feimni getur
jafnvel gengið það langt að hún
valdi neikvæðum tilfinningum eins
og bölsýni, kvíða og einmanaleika.
Feiminn maður á í erfiðleikum í
samskiptum sínum við sér æðri
menn eins og t.d. yfirmann í starfi
eða kennara. Það eru minni líkur á
því að hann standi á rétti sínum
eða láti í Ijós réttmæta gagnrýni,
heldur tekur hann því möglunar-
laust sem að höndum ber.
j einkalífi á feimið fólk líka oft í
miklum erfiðleikum. Reynsla þess í
kynferðismálum er yfirleitt minni
en hinna sem ekki eru feimnir og
árangurinn er oft neikvæðari.
Einnig höfum við oröið varir við
erfiðleika í kynlífi hjóna þar sem
annar aðili þjáist af feimni — eða
báðir. Og það er ekki óraunsætt að
álykta að feimni hafi áhrif á kyn-
getu manna.
Að komast yfir feimni
Það er nauðsynlegt að þeir sem
eru feimnir komist yfir það — ekki
aðeins vegna þeirra sjálfra heldur
og vegna þjóðfélagsins. Ef fólk
nær ekki sambandi við aðra, verð-
urþað undirílífinu — íviðskiptum,
í ást, í daglegu lífi.
Sumir eru jafnvel svo feimnir að
þeir veigra sér við að leita sér-
fræðilegrar aðstoðar þegar með
þarf. Þeir hafa ekki hugrekki til
þess að taka upp símtóliö og
hringja, né geta þeir mætt á
stefnumót eða fundi. Margir nýta
ekki þá þjónustu sem þjóðfélagið
býður, t.d. á sviði félags- og heil-
brigðismála, af því að þeir hafa
ekki hug til að bera sig eftir henni.
Og það undarlega er að margt
feimið fólk setur sér svo há mark-
mið að óhugsandi er að ná þeim.
Því hættir til að ofmeta sjálft sig og
afleiðingin er vonbrigði þegar það
nær ekki settu marki. Það er
nauðsynlegt að sannfæra það um
að settu marki verði ekki náð nema
í áföngum, og ef það á erfitt með
að tjá sig er sviðsvanur skemmti-
kraftur ekki rétta fyrirmyndin,
heldur einfaldlega sá sem hefur
hug til að nota símann til að leita
upplýsinga, svo dæmi sé nefnt.
Þegar feimni gengur út í slíkar
öfgar að fólk forðast samneyti við
aðra og einangrast, þá er hún
orðin alvarlegt vandamál. Fjöl-
margar rannsóknir sem gerðar
hafa verið benda eindregið til þess
að einstaklingar sem búa við slíka
einangrun verði frekar fyrir ýmiss
konar sálrænum truflunum sem
leiði til bölsýni, ofdrykkju, sálsýki,
viðkvæmni gagnvart sjúkdómum,
sjálfsmorða og jafnvel ótímabærs
dauða.
Það er margt sem foreldrar,
kennarar og atvinnurekendur geta
gert til aó minnka líkurnar á því að
fólk finni til feimni.
Feimið fólk hefur mikla van-
metakennd og óttast neikvæöan
dóm ef aðrir kynnast þeim eins og
þeir í raun og veru eru. Þess vegna
er þaö aö feimið fólk gerir allt eins
44