Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1983, Side 22

Frjáls verslun - 01.04.1983, Side 22
Kreppa — peningaleysi — vanskil Auglýsingar um nauö- ungaruppboð á fasteign- um eru daglegt brauð, í þess orðs fyllstu merk- ingu, en um þessar mundir og undanfarna mánuði hafa þær fyllt síðu eftir síðu í Lögbirt- ingarblaðinu og dagblöð- um. Ástæðan er peninga- leysi almennings og van- skil einkum vegna þess að verðtrygging er að leggjast með fullum þunga á lántakendur á sama tíma og kaupmáttur launa hefur minnkað. Nú eru þessi mál aö komast á alvarlegra stig en áður hefur þekkst þar sem í mörgum til- vikum verður ekki um frekari frest að ræöa og selja verður ofan af fólki. Spurningin er hvort það verða bankar og líf- eyrissjóöir sem munu sitja uppi með fasteignir í stórum stíl eóa að fjármálamenn muni komast yfir fjölda íbúða fyrir lítió, en sú hætta er alltaf fyrir hendi aó fólk fái einungis hálfvirði fyrir Nauðungaruppboð — ef til vill fer nú a Vanskil einstaklinga og fyrirtí íbúðir og hús sem seld eru við hamarshögg. Ekkert virðist benda til aö um neinar aðgeröir verði að ræða af hálfu hins opinbera enda er erfitt aó koma slíku viö þannig að eitthvert réttlæti sé í, yfirleitt hafa slíkar aðgerðir beinst að því að hegna því fólki sem hingað til hefur kallast bjarg- álna. Lögfræðingar sem annast innheimtu eru ekki öfunds- verðir þessa stundina frekar en yfirleitt, þó eru innan um og samanvið lögmenn sem þekktir eru fyrir aðgangshörku og stífni, en engir þessara inn- heimtumanna ná miklu upp í kröfur þessa dagana. Margir þeirra sem nú þurfa að búa vió það álag sem yfirvofandi nauöungaruppboöi fylgir eiga í erfiðleikum vegna tauga- spennu og víóa kemur þetta niður á fjölskyldulífi. Þótt viðurkennt sé aó nauð- ungaruppboð sé og eigi aó vera síðasti kosturinn og reyndar skuli samningar aó eins miklu leyti og unnt er, eru því skiljanlega takmörk sett hvað oft síðasta uppboói verður frestað þegar greiðslur ná ekki dráttarvöxtum. Það virðist vera að koma í Ijós að sú húsnæðisstefna sem hérlendis hefur tíðkast, að sem flestir eigi sitt húsnæði í stað þess að leigja, geti orsakað algjört öngþveiti þegar slær í bak- seglið í efnahagslífi þjóðarinn- ar. Reynslusaga úratvinnulífinu: MÍSSt Við ræddum við mann sem hefur lent í því að missa eigur á uppboði, nafn hans skiptir ekki máli, en hvaö segir hann um sína reynslu? — Hvað kom til að þú lentir í þessum peninga- erfiðleikum? ,,Það var nú svona eins og gerist og gengur, við höfð- um unnið saman tveir viö húsbyggingar í langan tíma og maóur hafði gert það nokkuð gott með því aö vinna eins og brjálæðingur, — átti eigið hús og tvo bíla eins og gengur. En við vor- um farnir að þreytast á úti- vinnunni, enda endast engir í henni lengi án þess aö fara meó sig og einnig spilaði það inní að erfió veðrátta einn veturinn gerði þetta alltof stopult og ótryggt. Við ákváðum því að setja upp litla trésmiðju og framleiða ýmsa tréhluta til bygginga. Ég hugsa að þetta smáiðn- aðarkjaftæói í pólitíkus- unum hafi villt okkur sýn, við héldum aö þetta væri hægt, við áttum okkar hús og bíla en ekkert meir. Til þess að ,,starta“ fyrirtækinu fengum viö engin önnur lán en stutt vaxtaaukalán, en við þurft- um að kaupa vélar og koma þessu af stað. Strax á því stiginu áttum vió að hætta

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.