Frjáls verslun - 01.04.1983, Blaðsíða 75
VR: Námskeið í heilsuvernd
Þaö eru fleiri námskeiö sem
bjóöast verslunar- og skrif-
stofufólki en þau sem bæta viö
hina huglægu þekkingu.
Verslunarmannafélag Reykja-
víkur varð fyrst verkalýðsfélaga
til að gera könnun meðal fé-
lagsmanna sinna á heilsufari
þeirra. f framhaldi af því býöur
félagið nú upp á námskeió í
heilsurækt og heilsuvernd.
Námskeiöum þessum er
eiginlega skipt í fernt. í fyrsta
lagi kemur leikfimikennari og
kennir þátttakendum létta
slökun og liðkandi æfingar.
Lögö er áhersla á að hreyfa þá
vööva sem ekki eru í notkun
dags daglega. Æfingarnar eru
hægar og látlausar ýmist fram-
kvæmdar standandi eöa sitj-
andi, en hafa gefið mjög góðan
árangur.
Sjúkraþjálfari mætir á nám-
skeiöin til aó kenna fólki réttar
stöður og setur við störf sín.
Það getur skipt miklu máli
hvaða hreyfingum er beitt vió
hin ýmsu störf, til dæmis vió aö
taka upp kassa, raða upp í hill-
ur nú eða bara sitja við ritvél-
ina. Fólki er kennt hvernig nýta
má hvern fermetra í kringum
sig til líkamsæfinga á vinnu-
stað. Næringarfræöingur fjall-
ar um gildi fæðunnar í daglegu
lífi, hvað þarf til aö líkaminn fái
næga orku og hverju má alls
ekki slepþa úrfæóuflokkunum.
Lögð er áhersla á að borða
ekki of mikið og dregnar línur
sem sýna hversu mikil næring-
arþörfin er í hverju tilfelli.
Að lokum mætir svo sál-
fræðingur og fjallar í máli og
myndum um streitu í starfi.
Hvernig draga má úr henni og
koma í veg fyrir alls konar
óþægilega kvilla sem vilja
fylgja streitu. Þá er rætt um
alkóhólisma, áfengisneyslu
heima og á vinnustað, afleið-
ingar drykkju og hvað hægt sé
að gera til lagfæringar.
VR er meó tvö slík námskeið í
gangi í einu. Hvert námskeið
stendur í tíu vikur og er mætt
ýmist einu sinni eða tvisvar
vikulega, tvær klukkustundir í
senn. Bæði hefur veriö boðiö
upþ á opin almenn námskeið
en einnig hefur starfsfólki
ákveðinna fyrirtækja verið
boðið aó koma í sérhópum,
hafa til dæmis starfsmenn
Flugleióa, Hagkaupa og fleiri
notfært sér þetta og reynslan
verið mjög góð. Gagnstætt því
Framhald á bls. 68
>ar af 17 alveg
skjala og eyðublaða við tollaf-
greiðslu, raktir meginþættir
laga og reglugerða og fjallað
um grundvallaratriði tollflokk-
unar. Ennfremur er farið í
helstu reglur við verðútreikn-
ing.
Bókfærsla: Á námskeiðinu
er farið yfir meginreglur tví-
hliða bókhalds sem færslum í
sjóðabók, dagbók, viðskipta-
mannabækur og aðalbækur.
Farið verður yfir gerö rekstrar-
yfirlita og uppgjörs smárra
fyrirtækja.
Sölumennska: Námskeiö
þetta er einkum ætlað sölu-
mönnum í heildsölum og iðn-
fyrirtækjum. Fjallað verður um
þann markað og það starfsum-
ný afnálinni
hverfi sem sölumenn á Islandi
starfa í. Rædd verða helstu
vandamál sem sölumenn mæta
og hvaða tækni má beita við
lausn þeirra. Gerö verður grein
fyrir vinnubrögðum sem sölu-
menn geta tamið sér í því skyni
að auka eigin afköst.
Tölvunámskeiöin sem
Stjórnunarfélagið býöur upp á
eru margvísleg. Markmið
þeirra er að fræöa þátttakend-
ur um undirstöðuatriði er varða
tölvur og ritvinnslu. Á sér-
hæfðari námskeiðum er svo
farið út í hvernig nota má tölv-
una við flóknar áætlanagerðir
og bókhald. Kennd erforritun í
smátölvur og á öllum nám-
skeiðum er mikil verkleg ken-
nsla. Námskeiðin heita annars:
Ritvinnsla I, Grunnnámskeið
um tölvur I og II. Forritun á
smátölvur, Bókhald með smá-
tölvum, Aætlanagerð meö
smátölvum og Basic námskeið.
Námskeið Stjórnunarfélags-
ins standa yfirleitt 3—4 klst. á
dag, í þrjá til fjóra daga. Sam-
tals nást því allt frá 9 klukku-
stundum uþp í 20 við kennslu.
Kaffihlé er tekið á hverju nám-
skeiði daglega og eru veitingar
innifaldar í námskeiðsgjaldi.
Annars eru námskeið þessi
alltaf auglýst mjög greinilega
viku til tíu dögum áóur en þau
hefjast. Má þá hringja á skrif-
stofur Stjórnunarfélagsins við
Síðumúla og fá þar allar nánari
upplýsingar.
67