Frjáls verslun - 01.04.1983, Blaðsíða 74
A þriðja tug námskeiða
Tölvuskólinn
Framsýn:
Nú er nákvæmlega eitt ár
liðið síóan Tölvuskólinn Fram-
sýn var stofnaöur. Aðstand-
endum hans þótti þörfin fyrir
almenna tölvufræðslu orðin
veruleg hér í kjölfar örrar þró-
unar.
Skólinn býður upp á þriðja
tug mismunandi námskeiða og
skiptast þau í þrjá aóalflokka:
Almenn grunnnámskeið, forrit-
unarnámskeið og notenda-
námskeió. Vinsælust hafa al-
menn grunnnámskeiö,
BASIC-námskeió og ritvinnslu-
námskeió, þar sem kennd eru
vinnuþrögð í tölvuvæddum
fyrirtækjum.
Uppbygging hvers nám-
skeiðs fer eftir eðli þess, en al-
mennt standa námskeiðin yfir í
hálfan mánuó eöa 6 skipti. í
fyrri hluta hvers tíma er fyrir-
lestur, en síðari hlutinn fer í að
leysa sjálfstætt ýmis verkefni.
Kennsla fer fram á kvöldin í
húsakynnum Tölvuskólans
Framsýn við Síðumúla. Innifal-
ið í námskeiðsgjaldi er mappa
með öllu námsefni í, frjáls að-
gangur að tækjakosti fyrir utan
kennslutíma, veitingar, viður-
kenningarskjöl og fleira.
Á öllum námskeiöum er
aðaláhersla lögð á kennslu
skipulagðra vinnubragða sem
talin eru undirstaöa velgengni
hvers þess aðila sem við tölvur
vinnur. Að loknum námskeió-
um, eiga þátttakendur aó vera
færir um að ganga inn í hin
ýmsu svió innan tölvuvinnsl-
unnar. Árangur fer þó að sjálf-
sögöu eftir því á hvaða nám-
skeiðum viðkomandi hefur
setið, fyrri menntun, áhuga
o.s.frv.
Auk reglubundinna nám-
skeiða er boðið upp á sérnám-
skeiö fyrir félagasamtök, fyrir-
tæki og stofnanir. Á sérnám-
skeiðunum er námsefnið að-
lagað þörfum og óskum við-
komandi aðila, sem geta m.a.
haft áhrif á val námsefnis,
tímasetningu o.fl.
Tölvuskólinn Framsýn er vel
búinn tækjum og hefur verið
höfð samvinna við alla helstu
innflytjendur tölva og tölvu-
búnaóar við val á tækjum.
Fjórtán stundakennarar starfa
nú við skólann auk tveggja
fastra starfsmanna og hafa allir
leióbeinendur skólans víðtæka
reynslu og menntun á tölvu-
sviðinu.
1
J
Stjórnunarfélag íslands er
langstærsti aðilinn í nám-
skeióahaldi á sviði verslunar-,
skrifstofu- og stjórnunarstarfa.
Þar verður nú í vetur boðið upp
á 42 tegundir innlendra og er-
lendra námskeiða, en af þeim
eru 17 námskeið haldin nú í
fyrsta skipti.
Fræðsludeildir BSRB og VR
taka beinan þátt í kostnaði
sinna félagsmanna á nám-
skeiðum- Stjórnunarfélagsins.
BSRB greiðir þátttöku sinna
félagsmanna að fullu, enda
fræöslusjóður þeirra öflugur
mjög og fjármagnaður meö
beinum framlögum úr ríkis-
sjóði. Fræðslusjóður VR
stendur ögn veikari fótum enda
fjármagnaður eingöngu af fé-
lagsgjöldum. VR mun í vetur
greiða 75% af þátttökukostnaði
sinna félagsmanna á nám-
skeiðum Stjórnunarfélagsins.
Flefur þátttaka veriö mjög öflug
frá báóum þessum verkalýðs-
félögum undanfarin ár og fer
stöðugt vaxandi.
VR tekur þó ekki þátt í
kostnaði af öllum námskeiðum,
heldur einungis þeim sem talin
eru henta félagsmönnum
beint. Þessi námskeið verða 13
í vetur og skulum viö líta ögn
nánar á þau.
Ritaranámskeið: Tilgangur
námskeiðsins er aö auka hæfni
ritara viö skipulagningu, bréfa-
skriftir, skjalavörslu og önnur
almenn skrifstofustörf. Enn-
fremur aó kynna nýjustu tækni
við skrifstofustörf og bréfa-
skriftir.
Símanámskeið: Fjallaó er
um störf og skyldur símsvara,
símaháttvísi og frætt er um þau
símatæki sem almennt eru
notuð til aö auðvelda símsvör-
um að inna starf sitt betur af
hendi.
Ensk viðskiptabréf: Fjallað
er um tegundir viðskiptabréfa,
mikilvæg tæknileg atriði við
geró þeirra, uppsetningu og
útlit. Þá er komið inn á enska
málfræði og setningafræði og
ennfremur skýrður munur á
breskum og bandarískum við-
skiptabréfum.
Tollskjöl og verðútreikning-
ar: Farið er yfir notkun helstu
66