Frjáls verslun - 01.04.1983, Blaðsíða 49
En Þorvaldur í Síld og
fisk gafst ekki upp þó
hann hitti ekki í mark í
fyrsta skoti. Hann fór að
framleiða það í Síld og
fisk sem fólk vildi fá,
veislurétti og kjötmat.
Hann söðlaði um, hóf
kjötvinnslu og fram-
leiðslu svínakjöts á eigin
búi og opnaði síðar hvern
skyndibitastaðinn og
matbarinn af öðrum.
Hann átti um tíma fjórar
kjötverslanir í Reykjavík.
Úr framleiðslu veislu-
rétta fyrir heimahús fór
hann í veitingarekstur í
Þjóðleikhúskjallaranum
og ruddi þar nýjar brautir.
Hann þótti framsýnn og
vel kunna að ryðja nýj-
ungum braut. Sá kostur
hans leiddi til þess að
hann var fenginn til ráð-
gjafar við uppsetningu
Hótel Sögu, og síðar
einnig Hótel Loftleiða.
Sjálfur fór hann í hótel-
rekstur og stækkaði
hótelið sitt eftir því sem
glæsilegt málverkasafn
hans stækkaði, því hann
Ungunum braut
á undan tímanum, því ís-
lendingar lærðu ekki að
meta síldar- og fiskrétti
fyrr en löngu síðar.
vildi hafa veggpláss fyrir
listaverkin. Nú hefur
hann hætt afskiptum af
rekstri Hótel Holts en
Skúli sonur hans tekið
við og farnast vel.
Þorvald Guðmundsson
er nú að finna að Dals-
hrauni 5 í Hafnarfirði.
Þangað er fyrirtækið Síld
og fiskur komið. Þar
ræður Þorvaldur ríkjum
og stjórnar rúmlega þrjá-
tíu manna kjötvinnsluliði
og sölusvæðið er flestar
verslanir á Suðvestur-
horninu og margar úti á
landi. Uppspretta hráefn-
isins er svínabúið á
Minni-Vatnsleysu. Þar er
Þorvaldur líka á hverjum
degi og hugar að gyltun-
um sínum sem eru 300
talsins.
Þorvaldur er maður sem alla
ævi sína hefur verið að vinna
og hann var að vinna er Frjálsa
verslun bar að garði í Dals-
hrauninu. Þorvaldur var í hvít-
um sloppi með bláum brydd-
ingum, alveg eins og hitt
starfsfólkið í fyrirtækinu —
nema skrifstofumennirnir.
— Hérna eru herbergi skrif-
stofumannanna tveggja, sagói
Þorvaldur er við gengum til
skrifstofu hans.
Þó skrifstofumennirnir séu
ekki nema tveir gengur þetta
ágætlega. Og hér er enginn
einkaritari. Hér eru aldrei
haldnir stjórnarfundir. Hér fer
enginn tími í fundahöld. Við
ræðumst bara við á hverjum
degi allir og ég fer suður á búið
á hverjum degi. Þetta er sam-
stillt átak allra sem hér vinna.
Svona er nú Síld og fiskur og
það er eiginlega ekkert um það
að segja meira.
— Þetta gengur þá allt hjá
þér, þó enginn sé fiskurinn,
k.
41