Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1983, Síða 53

Frjáls verslun - 01.04.1983, Síða 53
KKKING ER GOD FJARFESTING SÍMENNTUN í ÞÁGU ATVINNULÍFSINS Stjórnunarfélag íslands hefur í rúma tvo áratugi verið brautryðjandi í stjórnunar- fræðslumálum á íslandi. Á hverjum vetri býður félagið fjölda námskeiða, inn- lendra sem erlendra, auk þess að skipu- leggja námsstefnur, ráðstefnur og sýn- ingar. Öll er þessi starfsemi miðuð við það að gera þátttakendum atvinnulífsins það kleift að viðhalda þekkingu sinni og kynna sér nýjar hugmyndir um stjórnun og rekstur. Um þessar mundir er að hcfj- ast starfsemi Stjórnunarfélagsins á þess- um vetri. Boðið er upp á fjölbreytt úrval fræðsluefnis, eins og greint er frá hér að neðan. ERLEND NÁMSKEID Erlendu námskeiðin liafa notið sívaxandi vinsælda, og verða um 15 slík námskeið á dagskránni í vetur. Námskeið þessi verða fjölbreytt að efninu til, og munu taka fyrir málefni eins og tímastjórnun, streitu, gjald- eyrismál, erlend markaðsmál, samninga- tækni, tölvumál, og stefnumótun. Reynt er að vanda val á námskeiðum þessum og nýtur Stjómunarfélagið |rar góðs af |rví trausti sem það nýtur á er- lendum vettvangi. ALMENN NÁMSKEIÐ: Almenn innlend námskeið liafa í gegnum árin verið kjarninn í starfsemi Stjórnunar- félags íslands. I lér er boðið upp á alliliða fræðsiu fyrir almenna starfsmenn jafnt sem stjórnendur og lögð er áliersla á að nýta þekkingu íslenskra kennara og miðla henni til þátttakenda. Undir þennan mála- flokk falla meðal annars námskeið sem fjalla um fjármál og fjármögnun, áætlana- gerð, arðsemismat, skipulag verkáætlana, sölumennsku og markaðsmál, almenn stjórnunarnámskeið, námskeið um inn- kaupa- og skrifstofustjórn, flutningaskipu- lagningu, bókfærslu, gerð tollskjala, gerð enskra viðskiptabréfa og fleira. TÖLVUNÁMSKEID Stjórnunarfélagið hefur nú um eins og liálfs árs skeið iroðið upp á tölvunámskeið sem hluta af námskeiðaframboði félags- ins. Þessi námskeið hafa notið mikilla vin- sa'lda og hefur framboð |x-irra nú verið stóraukið. Að þessu sinni verður boðið upp á byrjenda- og framhaldsnámskeið í almennum tölvufræðum og ennfremur verður boðið upp á notendanámskeið í Basic, almennri forritun. Visicalc og Multi- plan, þámskeið um liókltald tnt'ð smátölv- um, notkun gagnabanka, námskeið um rekstr aröryggi tölvukerfa, um skipulagn- ingu tölvuvæðingar, ritvinnslu og DBASE II. NÁMSTEFNUR OG ÖNNUR STARFSEMI A dagskrá félagsins hefur að jafnaði verið auk námskeiða, ráðstefnur. i ár verður boðið upp á námstefnu um Skrifstofu fram- tíðarinnar auk tölvusýningar undir sama heili í samvinnu við Skýrslutæknifélag ís- lands, spástefna félagsins verður haldin í desember og í undirbúningi er námstefna um gerð ársreikninga. Jafnframt þessu er á dagskrá félagsins veiting ársskýrsluverð- launa fyrir lrestu ársskýrslu ársins 1982. NÁMSEININGAR í fyrsta skipti verða nú veittar námsein- ingar á öllum námskeiðum Stjórnunarfé- lags íslands. Markmiðið með námsein- ingunr er að þátttakendur geti nú safnað .punktunr og |xtr með liaft betri yfirsýn yfir þau námskeið og þá menntun sem það hefur lilotið á námskeiðum félagsins. Námseiningarnar auðvelda einnig mjög allt mat á hæfni og magni þeirrar mennt- unar sem hlotist hefur. ENDURMENNTUN Stjórnunarfélagið hefur gert samkomulag bæði við Verslunarmannafélag Reykja- víkur og Starfsmannafélag ríkisstofnana þess eðlis að félagsmenn þessara félaga geta sótt um styrk til setu á námskeiðum félagsins.Nánari upplýsingarumfjárhæð og þau námskeið sem styrkt eru, eru veittar á skrifstofum viðkomandi félaga. Allar nánari upplýsingar um tegundir og dagsetningu námskeiða eru veittar á skrifstofu félagsins í síma 82930. Vakning á sér nú stað um að huga betur að endurhæfingu og endurmenntun. Örar jrjóöfélagsbreytingar og ný atvinnutæki- færi sem skapast við þær veita ný tæki- færi, sem ekki er hægt að horfa fram hjá. Jk STJÚRNUNARFÉIAG ÍSIANDS

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.