Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1983, Qupperneq 58

Frjáls verslun - 01.04.1983, Qupperneq 58
gekk Ijómandi vel en við áttum ekki húsnæðió.Húsið var selt og aðrir vildu hefja þar annan rekstur svo viö uróum aö hætta. Þarna byrjuðum við með ýmsar nýjungar hérlendis. Þarna var t.d. kjúklingagrill úti í glugga. Fólki fannst gaman að horfa á þetta, en tími kjúkling- anna var ekki kominn. Fáir vildu kaupa. Öðru sinni var ég víst of fljótur á mér og á undan tímanum. Þarna var líka fyrsti vísirinn að kjörbúð í kjötvörum eins og algengast er orðió í dag. Margt af þessu varð vin- sæltog búóin gekk vel. En með annaó var ég á undan tím- anum. „Aðrir ekki með tærnar, þar sem hann hefur hælana“ í veitinga- og hótelrekstri hefur Þorvaldur í Síld og fisk unnið fleiri afreksverk en nokkur annar íslendingur og spor hans á þeim sviðum liggja ótrúlega víóa. Hann setti upp og rak fjölda smástaða eða skyndibitastaði, hóf alhliða veitingarekstur í Þjóðleikhús- kjallaranum og rak þann veit- ingastaó í rúm 20 ár. Hann skipulagði og stjórnaöi upp- setningu búnaðar á Hótel Sögu og síðar á Hótel Loftleiðum auk þess sem hann hóf veitinga- og hótelrekstur í eigin nafni aó Hótel Holti einu virtasta og mest metna hóteli og veitinga- húsi borgarinnar. Alls staðar ruddi hann braut nýjungum, sem ekki höfðu áður þekkst hér á landi. Við beindum talinu að veit- ingarekstrinum. — Það leiddi eitt af öðru þegar þarna var komið. Atvik eöa örlög réðu því, aö Síld og fiskur varö ekki sá staður eða sú verslun sem í upphafi var ráðgert. Þegar ég var kominn út í kjötvinnslu og kjötfram- leiðslu og sívaxandi fram- leiðslu veislurétta blasti við að hefja veitingarekstur. ,,Við“ (Þorvaldur segir sjald- an ,,ég“) settum upp lítinn matbar, skyndibitastað á Berg- staðastígnum. Hann var vin- sæll og gekk vel á meóan hann var, en verslunin varð síðar aó fá þaó pláss. Svo kom þessi frægi pylsubar í Austurstræti 22, þar sem BSR var áður til húsa. Ég opnaði líka Ríó-bar í Austurbæjarbíói 1952 og mat- bar í kjallaranum aó Lækjagötu 6 að ógleymdum Þjóðleikhús- kjallaranum. — Þú sagðir „þennan fræga pylsubar í Austurstræti 22“. Hvað áttu við? — Ja það ætlaði allt vitlaust að verða í bæjarstjórn Reykja- víkur út af þessum pylsubar. Þarna losnaði lítið húsnæði er vissi að Lækjartorgi, þegar BSR varð aö flytja af Torginu. Þarna er núna úrsmiður til húsa. Mér fannst vanta ný- tískulegan pylsustaó þar sem snæöa mætti inni og fá mjólk eða annaó aö drekka með. Leyfisumsóknin olli írafári í bæjarstjórninni og einu sinni var frestaö afgreiöslu fjárhags- áætlunar borgarinnar út af umræóum um pylsubarinn. Ég kom ekkert nálægt þessu utan að senda inn saklausa um- sókn. En það var mjög hart deilt um þetta þá. Þorvaldur tók fram gamalt albúm með aragrúa blaðaúr- klippa. I þeirri úrklippubók fylltu blaðagreinar um pylsu- barsmálið í Austurstræti marg- ar síður. Þar má sjá aó heil- brigöisnefnd með lögreglu- stjóra og borgarlækni í broddi fylkingar höföu mælt með leyf- inu. Meðal hörðustu andmæl- enda var Þórður Björnsson núverandi ríkissaksóknari, Ingi R. Helgason og Steinþór Guð- mundsson, en meö voru m.a. Benedikt Gröndal, Jóhann Hafstein og Bjarni Benedikts- son þáverandi borgarstjóri. Umræðurnar tóku tvo fundi bæjarstjórnar. Helstu mótrök voru að af þessu leiddi óþrifn- aö og umferðatruflanir. Loks var leyfið veitt. Fjórum árum áóur deildu borgarfulltrúar hart um þaö, hvort veita ætti Þorvaldi veit- ingaleyfi, sem hann sótti um til reksturs matbars og skyndi- bitasaðar með fullkomnu eld- húsi í sambandi við Síld og fisk á Bergstaðastræti. ( hörðum umræðum um leyfisumsóknina var m.a. lagt fram bréf frá Mat- sveina- og veitingaþjónafélagi íslands um aö ekki yröi veitt veitingaleyfi, „nema umsækj- andi hefði tilskilda þekkingu og réttindi" og það hefði Þorvald- ur í Síld og fisk ekki. Bjarni Benediktsson sagði ,,að þótt rétt væri að hafa hlið- sjón af tilmælum Matsveina og veitingaþjónafélagsins væri hér um aö ræóa svo stóran matvælaframleiðanda, að aðrir kæmust ekki með tærnar þar sem hann heföi hælana". Þetta urðu lokaorð þeirra umræöna og samþykkt var með 9 atkv. gegn 3 að veita Þorvaldi Guð- mundssyni veitingaleyfið. Þetta varö upphaf mikils veit- ingarekstrar Þorvaldar. Byltingin byrjaði í Þjóðleikhúskjallaranum — Og það var ekki löngu eftir þennan „pyisusöluslag“ sem þú tókst við rekstri Þjóð- leikhúskjallarans. Skipulagðir þú þann stað? — Nei, ekki til aó byrja meö. Ég tók við honum haustið 1951, en frá opnun Þjóóleik- hússins vorið 1950 hafði aðeins verið þar kaffisala. Ég setti þar upp alhlióa veitinga- staö. Þar var ég í rúmlega 20 ár 50
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.