Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1988, Side 6

Frjáls verslun - 01.08.1988, Side 6
FRETTIR Jónína Kristjánsdóttir. RAÐIN TIL SPRON Jónína Kristjánsdóttir hagfræðingur hefur verið ráðin forstöðumaður nýstofnaðs verðbréfa- markaðar Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrenn- is. Jónína er 25 ára að aldri og lauk hún stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Kópavogi árið 1983. Eftir það starfaði hún hjá Björgvin Schram heildverslun en hóf nám árið 1985 í Glasgow við University of Strathclyde og lauk nýlega BA prófi þaðan í hagfræði og fjár- málastjórn. Sambýlismaður hennar er Magnús E. Kristjáns- son markaðsfræðingur. Hann starfar sem mark- aðsráðgjafi hjá íslensku auglýsingastofunni hf. Jónína segir að verð- bréfamarkaður Spari- sjóðs Reykjavíkur og ná- grennis sé aðili að Verð- bréfaþingi íslands og þar fari fram öll venjuleg starfsemi verðbréfa- markaðar. Hún segir að of fljótt sé að tjá sig um nýjungar en hennar verk- efni á næstunni muni einkum vera að móta stefnu og starf verðbréfa- markaðarins. YFIR 300 KROFURI ÞROTABÚ VÍÐIS VALUR ARNÞÓRSSON: ÓHRESS MEÐ STJÓRN KEA Verslunin Víðir í Mjódd. Á skrá yfir lýstar kröfur í þrotabú Verslunarinnar Víðis kemur fram að stærstu kröfuhafar eru þessir: Búnaðarbankinn með um 55 millj. króna sem saman standa af 10,5 millj. kr. vegna víxla og tékka með ábyrgð ann- Heimildarmenn Frjáls- ar verslunar á Akureyri fullyrða að mjög þungt hljóð sé í Val Arnþórssyni fráfarandi kaupfélags- stjóra KE A vegna ákvörð- unar stjórnarinnar uin eftirmann hans. Valur mun alltaf hafa ætlað sér að ákveða eftir- manninn sjálfur og átti ekki von á að stjórn KEA kæmi í veg fyrir það. Val- ur studdi Axel Gíslason til þessa valdamikla Valur Arnþórsson. starfs og varð jafn undr- andi og aðrir þegar Axel afþakkaði boðið. Þá lagði Valur áherslu á að Jón Sigurðarson forstjóri Ála- foss yrði ráðinn. En stjórn KEA gerði sér lítið fyrir og réði Magnús Gauta Gautason til starfans eins og al- kunna er. Þessari niður- stöðu mun Valur una afar illa og hefur ekki fyrirgef- ið stjórn KEA þessa ákvörðun. arra og 44,5 millj.kr. vegna tryggingarvíxla á bak við hlaupareikning. Þeirri kröfu hefur verið hafnað að svo stöddu. Gjaldheimtan í Reykja- vík kemur næst með 47,5 millj.kr. og þá Eiríkur Ketilsson með rúmar 16 millj. króna. Tollstjórinn í Reykjavík gerir kröfu um 11,2 millj. króna vegna sölu- og launa- skatts. Nokkrir aðrir bankar lýsa háum kröfum í búið, svo og fjöldi heildversl- ana og iðnfyrirtækja. Margir þeirra sem selt höfðu fyrirtækinu vörur eiga þarna milljónir króna útistandandi. Má þar nefna Smjörlíki með 4,2 millj. kr„ SÍS 2,7 millj. kr„ Búrfell 5,5 millj. kr„ Bananasalan 5,0 millj.kr., Holtabúið 4,8 millj. kr„ Mjólkur- samsalan 2,8 millj. kr„ og Kjötmiðstöðin 3,7 millj. króna svo nokkrir séu nefndir en fjöldi ann- arra fyrirtækja gera kröf- ur í þrotabú Verslunar- innar Víðis og margar þeirra eru hærri kröfu en ein milljón króna. 6

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.