Frjáls verslun - 01.08.1988, Blaðsíða 10
FORSÍÐUGREIN
BRUNNINN GRODI
EFTIR Ein MESTA BLÓMASKEIÐ ATVINNUSÖGUNNAR
SITJA FYRIRTÆKIN EFTIR MEÐ SÁRT ENNIÐ. HVER ER
SKÝRINGIN?
Vart hefur það farið fram hjá
nokkrum manni að samfellt
góðæri hefur verið hér á landi
undanfarin ár. Möguleikar
þjóðarinnar hafa verið miklir
bæði til þess að treysta undir-
stöður atvinnulífsins og bæta
lífskjörin en tækifærin hafa
því miður ekki verið notuð
sem skyldi. Eftir þetta upp-
gangstímabil standa mörg
fyrirtæki á brauðfótum,
gjaldþrotum fjölgar og heilu
atvinnugreinarnar eiga erfitt
uppdráttar. Menn spyrja sig
að vonum hvernig geti á því
staðið að allt virðist nánast
vera í rjúkandi rúst eftir ein
mestu uppgrip í sögu þjóðar-
innar og svörin eru af ýmsum
toga. Sumir benda á versn-
andi ytri skilyrði eins og
verðlækkun á sjávarafurðum
á erlendum mörkuðum, aðrir
nefna háa raunvexti og enn
aðrir tala um ranga stjórnun
efnahagsmála. Allar eru
þessar skýringar réttar svo
langt sem þær ná. En þegar
málin eru skoðuð í samhengi
kemur nærtæk skýring í ljós:
Við höfum eytt um efni fram.
Þótt tekjurnar hafi verið
miklar höfum við slegið öll
met í eyðslu og þess vegna
þolum við ekki hinn minnsta
mótbyr. Góðærið hefur runn-
ið okkur úr greipum.
TEXTI: KJARTAN STEFÁNSSON MYNDIR: KRIS
í þessari grein verður reynt að lýsa
því í máli og myndum hvað hefur verið
að gerast og hvers vegna. Flestar
þær staðreyndir sem hér birtast eru
kunnar og hafa margoft komið fram.
Hins vegar eru efnahagsmálin fjöl-
þætt og flókin og mikil hætta á að
menn tapi yfirsýn þegar aðeins er
fjaUað um einstaka þætti þeirra hverju
sinni. Þess vegna hefur verið brugðið
á það ráð hér að setja þróun efnahags-
mála fram í röð skýringamynda þar
sem bæði er sýnd staða þeirra og
líklegt innbyrðis samhengi. Eflaust
hefði mátt taka inn í myndina fleiri
þætti sem skipta máli en markmiðið
er að sýna heildarlínumar svo menn
fái yfirsýn yfir efiiahagsmálin og því
var ákveðið að velja fremur fáar
myndir en láta þær segja eins mikið
hverja fyrir sig eins og kostur er á.
NÆR SAMFELLD AUKNING
Það væri synd að segja að vanda-
mál íslensks efnahagslífs væru til-
komin vegna skorts á tækifærum.
Þvert á móti hefur hvert árið af öðru
fært okkur tækifæri til þess að búa
mjög vel í haginn fyrir framtíðina.
Fyrsta myndin í myndasyrpu okkar
sýnir einmitt að frá árinu 1965-1986
hefur landsframleiðslan meira en
tvöfaldast. Þar á eftir sjáum við
hvernig landsframleiðslan hefur vaxið
hlutfallslega á milli ára. Öll síðustu 24
árin hefur verið aukning ef frá eru
talin þrjú ár. Þjóðartekjur íslendinga
eru nú meðal hinna hæstu í heiminum
og nema þær nú rétt rúmri milljón á
hvert mannsbam í landinu. Það ætti
N E. EINARSSON O.FL.
því ekki að væsa um okkur á þessu
landi ef rétt væri að málum staðið.
Þar sem við íslendingar erum háðir
viðskiptum við útlönd hafa viðskipta-
kjör mikla þýðingu fyrir efnahagslega
afkomu okkar. Viðskiptakjörin mæla
breytingu á verðlagi þess varnings og
þeirrar þjónustu sem við flytjum inn
eða út. Viðskiptakjörin eru miklum
breytingum háð til dæmis vegna þess
að olíuverð getur sveiflast á heims-
mörkuðum eða verð á frystum fiski
hækkar eða lækkar á Bandaríkja-
markaði. Viðskiptakjörin hafa verið
okkur hagstæð og farið batnandi hin
síðari ár þótt slegið hafi í bakseglin á
þessu ári. Samt eru viðskiptakjörin
ekki óhagstæðari nú en þau voru árið
1986 en þá voru þau með því besta
sem þekkst hafði í langan tíma.
Loks má nefna í þessari upptaln-
ingu okkar um hagstæð skilyrði að
framleiðni í sjávarútvegi hefur verið
gífurlega mikil. Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri V erslunarráðsins,
benti á það nýlega á fundi ráðsins um
vanda atvinnulífsins að verðmæta-
aukning í framleiðslu sjávarafurða
1976-1986 hefði verið 76.8%. á föstu
verðlagi. Á sama tíma var aukning
vinnuafls í sjávarútvegi 22.1% og
aukning fjármuna 44.8%. Þessar töl-
ur færa okkur enn heim sanninn um
það að við höfum haft úr miklu að
spila.
STAÐA FYRIRTÆKJANNA
Næst skulum við skoða hvemig
fyrirtækjum í landinu hefur reitt af
eftir vöxt síðustu ára. Hvað hefur
10