Frjáls verslun - 01.08.1988, Page 22
MYNDLIST
verk og grafík. Hér eru haldnar 12
myndlistarsýningar á ári, en auk þess
hefur gaUeríið verið að styrkjast sem
helsti söluaðili eldri myndlistar og þá
ekki síst gömlu meistaranna. Uppboð
höldum við fjórum til funm sinnum á
ári. Einnig færist í aukana ýmiss kon-
ar ráðgjöf varðandi mat á listaverkum
og kaup á þeim. Reksturinn geng-
ur mjög vel. Veltuaukning hefur orðið
um 100% í rauntölum síðan ég hóf hér
störf fyrir rúmu ári, sem lýsir kannski
best velgengni gallerísins.“
— Hveiju þakkarðu það?
„Ég tel að einkum megi rekja það til
vaxandi trausts sem fyrirtækið nýtur.
Gallenið er ungt og hefur smám sam-
an verið að skapa sér fastari sess. Við
höfum verið ákaflega heppnir með
starfsfólk og auk þess erum við vel
staðsettir í borginni. Við höfum reynt
að reka fyrirtækið af víðsýni og vera
ekki mjög einstrengingslegir varð-
andi þá list sem við seljum. Við rekum
ekki trúboð eða áróður fyrir tiltekinni
stefnu, þótt við höfum vitanlega okk-
ar „standard" sem við fylgjum eftir.
Húsnæðið hefur reyndar sett okk-
ur nokkrar skorður. Listin er býsna
fyrirferðarmikil og hún þarf sérstak-
lega gott veggpláss ef vel á að vera.
Við erum hér með sýningarsali fyrir
málverkin bæði á jarðhæð og fyrir
neðan sjávarmál í Pósthússtræti 9 en
auk þess höfum við sett upp grafík-
deild í Austurstræti 10 þar sem Penn-
inn er einnig til húsa. Þar er hægt að
sinna grafíkinni betur en í þrengslun-
um hér.“
— A galleríið myndirnar sem það
selur?
„Nei, það heyrir til algerra undan-
tekninga ef galleríið eignast mynd.
Við seljum myndir í umboðssölu og
þær koma víða að. Sumar koma úr
dánarbúum aðrar frá gömlu fólki sem
ekki hefur aðstæður til að njóta þeirra
lengur; en t.d. að minka við sig hús-
næði. Sumir koma með myndir sínar
og kaupa aðrar í staðinn af því að
smekkur þeirra hefur breyst og aðrir
þurfa á reiðufé að halda. Þetta eru
myndir af öllum stærðum og gerðum
og í öllum verðflokkum."
FJÖLBREYTTUR KAUPENDAHÓPUR
— Og hveijir kaupa?
„Kaupendur eru margir og mis-
munandi, bæði einstaklingar og fyrir-
tæki. Margir einstaklingar eru í hópi
fastra viðskiptavina og algengt er að
hópur fólks taki sig saman og kaupi
myndir til gjafa. Fyrirtæki hafa sum
hver innan sinna vébanda menn sem
annast listaverkakaup fyrir þau og
margar stofnanir leggja mikið upp úr
því að hafa góða myndlist á veggjum
hjá sér. Þar er þó yfirleitt um að ræða
stærri og dýrari myndir en þær sem
einstaklingar festa kaup á.“
— Fer íslensk list úr landi?
,Já, það er töluvert um að útlend-
ingar kaupi hér íslenskar myndir. Það
geta verið ferðamenn sem kaupa
ódýrar myndir til minja eða fjársterkir
einstaklingar sem eiga hingað ættir
að rekja. Sumir eru í viðskiptum við
ísland og vilja þá gjama hafa íslenska
myndlist á veggjum hjá sér. Aðrir em
e.t.v. ræðismenn eða annars konar
fulltrúar landsins á erlendri gmnd.
Það fer töluvert af góðri list úr landi á
þennan hátt. Ég þekki að vísu ekki
dæmi þess að erlendir listaverkasalar
falist eftir verkum hér — það er miklu
fremur að við leitum utan ef við heyr-
um af fslenskum verkum til sölu þar.“
— Em það einhveijir listamenn
öðmm fremur sem útlendingar sækj-
ast eftir?
„Varla er hægt að taka svo til orða.
Þó er það staðreynd að sumir íslensk-
ir listamenn eru vel kynntir og virtir
víða erlendis. Þannig veit ég að
Gunnlaugur Blöndal er vel þekktur í
Mið- og Suður-Evrópu, Nína
Tryggvadóttir er eftirsótt vestanhafs
og vitanlega Louisa Matthíasdóttir
meðal Bandaríkjamanna og víðar. Þá
má ekki gleyma Erró, sem útlending-
ar virðast af einhverjum ástæðum
kunna betur að meta en fslendingar."
FJÖRUG UPPBOÐ
—Segðu mér nánar af tilhögun
uppboðanna.
„Fyrir hvert uppboð auglýsum við
eftir myndum en auk þeirra sem
þannig berast eru á uppboðunum
myndir sem galleríið er með í sölu.
Það er sjaldgæft að stór og dýr verk
fari á uppboð, enda sjaldgæft að slík
verk séu keypt þannig. Menn eru lík-
lega ekki fúsir til að auglýsa svo opin-
berlega að þeir séu að kaupa mjög dýr
málverk. Þessu er aftur öfugt farið
víða erlendis, þar sem oft er safnað
saman á uppboð myndum sem ekki
eru falar annars staðar.
Uppboðin hér eru líka ákveðin
skemmtun og gaman að vera við-
staddur þau fjörugustu. Gallerí Borg
heldur sín uppboð í samvinnu við List-
munauppboð Sigurðar Benediktsson-
ar hf., sem hefur annast uppboð í ára-
raðir. Það er skemmtilegt samstarf
og viðheldur ákveðinni hefð. Ég
minnist þess þegar ég sem unglingur
var starfsmaður á uppboðum hjá Sig-
urði.
Við höfum boðið upp á nýja þjón-
ustu varðandi uppboðin, svone&id
foruppboð. Þá geta menn gert tilboð í
ákveðnar myndir fýrirfram og falið
starfsmönnum gallerísins að annast
tilboðin fyrir sig. Þá er t.d. gefin upp
lágmarks- og hámarksupphæð sem
viðkomandi er reiðubúinn að bjóða í
verkið eða þá föst tala. Einnig er
hægt að gera boð í gegnum síma eins
og þekkist víða erlendis. Með þessu
móti losna menn við að vera á staðn-
um og geta sinnt öðru á þeim tíma
þegar uppboðið fer fram. Fólk hefur
lítið notfært sér þessa þjónustu enn
sem komið er, en þó fer það vax-
andi.“
— Er hægt að tala um tískusveiflur
á þessum markaði? Eru sumir lista-
menn vinsælli en aðrir á ákveðnum
tímabilum?
„Já, það má segja að menn rísi og
falli á þessum markaði sem öðrum.
Ástæðurnar geta verið margvíslegar.
Sumir málarar hafa breiða skírskotun
og höfða til fjölda fólks á meðan aðrir
ná aðeins til þröngs hóps án þess að í
því felist neinn dómur um list þeirra
að öðru leyti. Einnig er algengt að
listamönnum gangi vel að selja í
tengslum við tilteknar sýningar sem
hljóta mikla umfjöllun. Enn aðrir eru
litríkir karakterar og njóta þess orð-
spors sem af þeim fer.
Vinsældirnar geta þó dalað snögg-
lega, t.d. ef menn eru mjög röskir við
að framleiða og selja á afmörkuðum
stuttum tíma. Þá verður fólki kannski
að orði: „Ja, hann er bara alls staðar.“
Það getur orkað tvímælis varðandi
framhaldið."
' '/'■*■* s s a a , ,
SSS-s/At fffVtMSSsSfWttt'tW'/'j v.*. '// ‘v ■> 8SSSS V BWBWWSS '
22