Frjáls verslun - 01.08.1988, Blaðsíða 33
Athafnasvæði Nesjavallaveitu. Fjarst má sjá stöðvarhúsið en myndin er tekin
ofan affjallinu þar sem aflmestu borholurnar eru og liggja gufuleiðslurnar
þaðan eins og sjá má.
áfanga veitunnar. Þrátt fyrir þann
langa tíma kólnar vatnið aðeins um 2
gráður á þeirri leið. Þegar virkjunin
verður öll komin í notkun er búist við
kólnun undir 1 gráðu enda mun hraði
vatnsins þá þrefaldast.
Mjög hefur verið vandað til stöðv-
arhússins á Nesjavöllum. Allt skipu-
lag versins miðast við að auðvelt og
hagkvæmt sé að stækka og auka af-
köst þess eftir því sem ráðist verður í
fleiri áfanga. Rafstöð, varmaskiptum,
aflofturum og höfuðdælum verður
komið fyrir í þremur samliggjandi
vélasölum, sem eru stálgrindarhús,
klædd stálklæðningu. Við norður-
enda vélasala er sameiginleg tengi-
bygging og verður þar allur rafbúnað-
ur, loftræstikerfi o.fl. Út úr tengi-
byggingunni til norðurs ganga tvö
hringlaga hús, annars vegar stjórn-
stöð og hins vegar gestahús. Þar
verður starfsemi virkjunarinnar
skýrð í máli og myndum fyrir gestum
auk þess sem innangengt verður á
efri hæðir tengibyggingar hvaðan
gestir geta horft yfir sjálfa vélarsali
orkuversins.
Vestan stöðvarhúss er þegar risin
um 450 m2 birgðaskemma sem nýtist
meðan á uppbyggingu stendur auk
þess sem hún mun síðar hýsa hluta
tilraunastöðvar á Nesjavallasvæði.
Með stækkun virkjunarinnar um-
fram 200 MW er gert ráð fyrir að
ffamlengja tengibyggingu og byggja
nýja vélasali eftir þörfum. Allt orku-
verið er hannað með slíka stækkunar-
möguleika fyrir augum.
Og hvað kostar svo þetta mikla
orkuver? Erfitt er að nefna tölur í
þessu sambandi en að sögn Gunnars
Kristinssonar, hitaveitustjóra, er
ekki fjarri lagi að tala um 3.5 miljarða
króna þegar allt er talið til að hægt
verði að taka 1. áfanga Nesjavalla-
veitu í notkun. Inni í þeirri tölu er um
1.000 miljónir króna vegna borana á
árunum 1983-’86, um 1.300 miljónir
vegna sjáfrar virkjunarinnar og 1.200
miljónir vegna aðalæðar til Reykjavík-
ur. Stór hluti þessara kostnaðarliða
nýtist því öllu orkuverinu þegar það
verður fullbyggt.
- Með og án glugga
-10 litir
- Ókeypis kostnaðaráætlun
ER HAGSTÆTT
GARÐASMIÐJAN GALAX SF.
LYNGASI 15 210 GARÐABÆ
SÍMI 91-53511
GÆÐI TJR STÁLI
VERÐIÐ
33