Frjáls verslun - 01.08.1988, Page 41
IÐNAÐUR
ingar hafa þó verið undirritaðir ennþá
en ég tel að minnsta kosti helming
húsnæðisins vera genginn út. Von-
andi koma fleiri inn í myndina þegar
starfsemin þróast áfram og raunar
hefur vandi okkar hingað til verið fólg-
inn í því að vísa þeim frá sem við
teljum að uppfylli ekki þær kröfur
sem við gerum. Við erum fyrst og
fremst að leita eftir samstarfi við
fyrirtæki sem eru að vinna þróunar-
verkefni. Upplýsingaiðnaðurinn hefur
ugglaust þörf fyrir aðstoð af þessu
tagi og allmargir aðilar sem tengjast
sjávarútvegi og iðnaði eru í hópi
þeirra sem munu fyrstir flytja hingað
inn.“
Tæknigarður er myndarlegt hús,
teiknað af Ormari Þór Guðmundssyni
arkitekt. Byggingin er nokkuð stærri
en upphaflega var gert ráð fyrir, sam-
tals 2600 fermetrar á þremur hæð-
um. Þar af munu 1500 fermetrar
verða leigðir út til fyrirtækja og ein-
staklinga en eins og áður sagði munu
svo stofnanir Háskólans nýta afgang-
inn. Sameiginleg aðstaða í húsinu
verður góð, m.a. mötuneyti, síma-
varsla, fundarsalir o.s.frv. Þeir aðilar
sem koma sér upp rannsókna- og
vinnuaðstöðu í byggingunni geta
tengst tölvum Háskólans en auk þess
mun ýmislegt annað skapa grundvöll
fyrir nánari tengsl og samstarf við
kennara og vísindamenn í hinum
ýmsu deildum Háskólans.
Aðspurður um rekstrarfyrirkomu-
lag í Tæknigarði, sagði Jafet að um
þau mál myndi fyrirtækið Tækniþró-
un hf alfarið sjá. Leigugjald yrði í sam-
ræmi við markaðsverð hverju sinni
og væri ætlunin að reksturinn stæði
undir kostnaði. En hvað með fjár-
mögnun þessarar miklu byggingar?
„Sérstakt hlutafélag var stofnað
um bygginguna og er hlutafé þess 5
miljónir króna en hluthafar eru Há-
skóli Islands, Reykjavíkurborg, Þró-
unarfélag Islands hf, Félag íslenskra
iðnrekenda og Tækniþróun hf. Þess-
ar 5 miljónir dugðu þó skammt og það
sem réð úrslitum um framgang máls-
ins var 54 miljóna króna lán Reykja-
víkurborgar, sem félagið getur greitt
með hagstæðum kjörum á næstu 15
árum. Auk þess kom til 10 miljóna
króna lán úr Iðnþróunarsjóði og sama
upphæð úr Iðnlánasjóði. Rekstur
Tæknigarðarnir eru enn ekki fullbyggðir.
hússins á að geta staðið undir afborg-
unum og vöxtum af lánum en við höf-
um jafnframt baktryggingu frá Happ-
drætti Háskóla Islands ef dæmið
gengur ekki upp.“
Eins og fyrr sagði hefur Tækni-
garður risið með undrahraða. Fyrir-
tækið var stofnað 15. apríl 1987 og
hafist var handa við undirbúning
byggingarinnar í júní í fyrra. Hinn 30.
október var undirritaður samningur
við ístak hf um að fullhanna og byggja
húsið fyrir 1. nóvember 1988. Byrjað
var að reisa bygginguna, sem er úr
forsteyptum einingum, um mánaðar-
mótin febrúar-mars í ár og að sögn
Jafets hefur verkinu miðað sam-
kvæmt áætlun. Burðarþolshönnun
hefur verið á vegum Línuhönnunar
hf, rafmagnshönnun á vegum Raf-
teikningar hf, um lagnahönnun hefur
ístak hf séð og Tækniþjónustan hf sá
um loftræstikerfi hússins. Verk-
fræðistofa Stanleys Pálssonar hefur
svo haft eftirlit með byggingunni.
Stjórn Tæknigarðs hf. skipa þau
Ragnar Ingimarsson formaður, Há-
kon Björnsson, Jafet Ólafsson, Jóna
Gróa Sigurðardóttir og Rögnvaldur
Ólafsson. Þetta fólk gefur upplýsing-
ar um starfsemi hússins en eins og
fyrr var nefnt mun Tækniþróun lif.
hafa reksturinn með höndum eftir að
starfsemi hefst í nóvembermánuði.
41