Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1988, Qupperneq 44

Frjáls verslun - 01.08.1988, Qupperneq 44
lengri tíma er litið. Þetta er góð ávöxtun fyrir félagið. “ — Þið hafið sem sagt blásið nýjum anda í rekstur Sjóvá? ,Já, það má segja það. Ég vil þó taka það fram að staða félagsins var sterk þegar við tókum við rekstrin- um. En við breyttum bæði skipulagi og áherslum sem skilað hefur góðum árangri. Sem dæmi má nefna að markaðshlutdeild Sjóvá á vátrygging- armarkaðinum var 18% á síðasta ári en var í kringum 14% fyrir um 5 árum síðan. Þessi aukning náðist fram vegna þess að við fórum út á markað- inn og reyndum að afla viðskipta. Okkur varð ágengt vegna þess að við lögðum ekki upp tómhentir. Við buð- um upp á nýjar lausnir og nýja ímynd félagsins og vorum á réttum tíma.“ SJÁLFSTÆÐISBARÁTTA Sjóvátryggingarfélag íslands hf. var stofnað 20. október árið 1918 og er elsta vátryggingahlutafélag lands- ins. Að stofnuninni stóðu 24 þekktir athafnamenn á íslandi og voru margir þeirra hinir sömu og stóðu að stofnun Eimskipafélagsins en það félag var stofnað árið 1914. Stofnun Sjóvá var sprottin af sama meiði og stofnun Eimskipafélagsins; það var liður í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Markmiðið var að færa verslun og viðskipti inn í landið. Brunabótafélag íslands hafði að vísu verið stofnað þremur árum áður samkvæmt lögum frá Alþingi en tók eingöngu að sér brunatryggingar húseigna utan Reykjavíkur. Forystu um stofnun Sjóvá höfðu þeir Sveinn Bjömsson, yfirdómslög- maður og síðar forseti íslands og Ludvig Kaaber, bankastjóri Lands- banka íslands. Hinir sem tóku þátt í stofnuninni voru þeir; Axel V. Tulin- ius, yfirdómslögmaður, ræðismenn- irnir Ásgeir Sigurðsson og Jes Zim- sen, stórkaupmennimir Carl Olsen, Carl Proppé, Garðar Gíslason, Geo Copland, Hallgrímur Benediktsson, Hallgrímur A. Tulinius, John Fenger og Olgeir Friðgeirsson. Þá voru einn- ig mættir Sighvatur Bjarnason, bankastjóri, Jón Ólafsson, fram- kvæmdastjóri fiskveiðifélagsins Alli- ance, Pétur Thorsteinsson fyrir Hauk hf., Ólafur Thors og Richard Thors fyrir Kveldúlf hf., Þórarinn Böðvarsson fyrir Víði hf., útgerðar- mennirnir Haraldur Böðvarsson, Loftur Loftsson og Th. Thorsteins- son, Halldór Kr. Þorsteinsson skip- stjóri og Hallgrímur Kristinsson, for- stjóri, fyrir sína hönd og Sambands íslenskra samvinnufélaga. Fyrsti formaður félagsstjórnar var Ludvig Kaaber, bankastjóri og aðrir í stjóm voru, Sveinn Bjömsson, Jes Zimsen, Hallgrímur Kristinsson og Halldór Kr. Þorsteinsson, en hann hefur til þessa setið lengst allra í stjórn félagsins eða í 45 ár og þar af 25 ár sem stjómarformaður. Þegar Hall- dór lét af formennsku árið 1964 tók við af honum Sveinn Benediktsson, framkvæmdastjóri, en Sveinn var fyrst kjörinn í stjórn félagsins árið 1952 og gegndi því starfi þar til hann lést árið 1979. Þess má geta að Einar Sveinsson, núverandi framkvæmda- stjóri Sjóvá, er sonur Sveins og Helgu Ingimundardóttur, eftirlifandi eigin- konu hans. Eftir lát Sveins tók við starfi hans Ágúst Fjeldsted hæsta- réttarlögmaður og var hann stjómar- formaður þar til núverandi stjórnar- formaður, Benedikt Sveinsson hæstaréttarlögmaður, tók við árið 1979. í stjóm Sjóvá eru nú þeir, Benedikt Sveinsson, Ágúst Fjeldsted, Teitur Finnbogason, fulltrúi, Kristinn Björnsson, framkvæmdarstjóri og Kristján Loftsson, forstjóri. Áður en Einar Sveinsson tók við starfi fram- kvæmdastjóra höfðu fimm menn gegnt þeirri stöðu hjá félaginu; Axel V. Tulinius, yfirdómslögmaður, sem var fyrsti framkvæmdastjórinn, Brynjólfur Stefánsson, magister, Stefán G. Björnsson, sem áður var starfsmaður Sjóvá, Axel Kaaber og Sigurður Jónsson sem áður hafði verið forstjóri Síldarverksmiðja ríkis- ins. Á fyrstu starfsámm sínum hafði fé- lagið aðsetur í húsi Nathan & Olsen, þar sem nú er Reykjavíkur Apótek. Síðar fluttist starfsemin í hús Eimsk- ipafélagsins en árið 1957 komst félag- ið í eigið húsnæði og þá að Ingólfs- stræti 5. Árið 1974 flutti félagið með alla starfsemi sína á einn stað í núver- andi húsnæði að Suðurlandsbraut 4. Nú er verið að reisa Sjóvá-hús í Kringlunni við hliðina á Húsi verslun- arinnar. Einar sagði að gert væri ráð fyrir að starfsemin flyttist öll í nýja húsið í lok næsta árs. Sjóvá-húsið er í kringum 4000 femetrar að stærð en samkvæmt áætlunum mun Sjóvátr- yggingarfélagið nýta um 2.800 fer- metra undir eigin rekstur. í fyrstu annaðist Sjóvátryggingar- félagið eingöngu sjótryggingar, bæði skipa- og farmtryggingar, eins og nafnið gefur til kynna. En smátt og smátt færði félagið út kvíamar og varð snemma alhliða vátryggingarfé- lag. í dag býður félagið upp á allar tegundir vátrygginga. „Félagið fékk strax við stofnun mjög góðar undir- tektir meðal þjóðarinnar. íslendingar voru þá að berjast fyrir sjálfstæði sínu og í gömlum auglýsingum félagsins var mikil áhersla lögð á að þetta væri alíslenskt félag.“ METTAÐUR MARKAÐUR — Hefur aukin samkeppni á vá- tryggingamarkaðnum ekki reynst fé- laginu erfið? „Sjóvá hefur ætíð búið við sam- keppni. Hún var til staðar í upphafi þar sem erlendir umboðsmenn sátu að markaðinum þegar félagið var stofnað. En eftir því sem Sjóvá óx fiskur um hrygg týndu þessir um- boðsmenn smá saman tölunni. Auð- vitað hafa komið upp erfiðleikatíma- bil. Kreppan á millistríðsámnum kom mjög illa við félagið eins og annan at- vinnurekstur í landinu og á árunum eftir stríð urðu mörg og stór bruna- tjón sem urðu félaginu erfið. Á þeim tíma brunnu mörg sjávarútvegsfyrir- tæki eins og hraðfrystihús og neta- gerðir. Og á áttunda áratugnum olli þátttaka í erlendum endurtryggingum okkur þungum búsifjum en undir styrkri stjórn forvera míns, Sigurður Jónssonar, reif félagið sig upp úr þeim erfiðleikum. Um þessar mundir er samkeppnin innanlands mjög virk og mikil. Það er ljóst að tryggingamarkaðurinn sem slíkur vex ekki mikið úr þessu. Hann er mettaður ef svo má að orði komast og ef vöxtur verður hjá einu félaginu þá leiðir það til samdráttar hjá öðru. Nú er boðið fram fjölbreytt val trygg- 44
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.