Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1988, Qupperneq 49

Frjáls verslun - 01.08.1988, Qupperneq 49
„Þess eru dæmi að fyrirtækin í heild nýti aðeins um eða innan við 25% af þeim tíma sem til ráðstöfunar gæti verið.“ skyndiskoðunum af þessu tagi má fylgjast með stöðu fyrirtækisins og þróun mála án þess að til komi mikil röskun eða umrót í fyrirtækinu sjálfu.“ SAMSTARF VIÐ AÐRfl RÁÐGJAFA Okkur er ljóst að við erum ekki sérf- ræðingar á öllum sviðum og því höfum við lagt áherslu á að nýta okkur sérhæfða þekkingu annarra aðila í samráði við við- skiptavini okkar. Þetta felst bæði í sam- starfi við erlenda og innlenda ráðgjafa. Það kemur fyrir að við leitum til starfsbræðra okkar hérlendis sem hafa sérhæft sig á tilteknum sviðum. Þetta hefði verið óhugsandi fyrir áratugi eða svo og er dæmi um jákvæða þróun í rekstrarráð- gjöfinni. Það er jákvætt bæði fyrir fyrir- tækin og ráðgjöfina í heild að nýtt sé sú þekking sem til er, en ekki að hver sé í sínu homi sífellt að finna upp hjólið. Reyndar kæmi sér enn betur fyrir ís- lenskt atvinnulíf ef hugað væri að þessum þætti þegar opinberir aðilar og aðrir leita sér ráðgjafar til erlendra aðila. I þeim til- fellum ætti tvímælalaust að hafa íslenska rekstrarráðgjafa í aðalhlutverkinu og láta þá leita aðstoðar erlendra sérfræðinga við slík verkefni. Með þvi móti kæmu nýir straumar inn í ráðgjöfina hér og eftir yrði þekking sem nýttist íslenskum fyrirtækj- um. Því miður hefur þekkingin oft runnið út úr landinu aftur þegar verki erlendu ráðgjafanna er lokið. Þetta hefur að sumu leyti veikt íslenska rekstrarráðgjöf og þar með þá þjónustu sem íslenskum fyrirtækj- um býðst.“ HÁLFUR VANDINN LEYSTUR — Kunna stjómendur fyrirtækja að notfæra sér þjónustu rekstrarráðgjafa? „Stjórnendur nýta sér ráðgjöfina betur nú en áður. Þeir taka meira tillit til tillagna ráðgjafans, kannski ekki síst vegna þess að samstarfið er oft nánara en áður var. Þannig fá fyrirtækin enn meira út úr verk- efnum sem ráðgjafarnir vinna fyrir þau. Á undanfömum ámm hafa margir stjómendur beint sjónum sínum meira að stefnumörkun, skipulagi og stjómun. Stefnumörkun er oft óljós, þ.e. hvað eig- endur fyrirtækis ætla sér með það, sem gjama tengist aftur markaðs- og sölumál- um í því skyni að ákveða hvaða viðskipta- mannahóp fyrirtækinu er ætlað að þjóna. ímynd fyrirtækisins gagnvart almenningi skiptir einnig sífellt meira máli og fyrirtæki leggja mikið á sig til að halda uppi jákvæðri ímynd og fylgjast með því hvernig hún hugsanlega breytist. Til þess nota þau í auknum mæli spumingavagn Hagvangs." ÓSTÖÐUGT UMHVERFI — Hvemig birtist ykkur margumtalað- ur vandi atvinnulífsins á síðustu misser- um? „Einn stærsti vandi íslenskra fyrirtækja felst í því óstöðuga starfsumhverfi sem þeim er búið,“ segir Gunnar. „Hér hefur verið landlæg óðaverðbólga og allt efiia- hagslífið einkennist af miklum sveiflum. Það gefur augaleið að þegar t.d. vextir tvöfaldast á rúmu ári getur ákvarðanataka í atvinnurekstri ekki orðið markviss. Áætlanir em því síður líklegar til að stand- ast þegar forsendur þeirra breytast frá einum degi til annars. Það vantar trúnaðartraust á milli stjóm- valda og atvinnulífsins. Þeir sem standa að áætlanagerð verða að geta treyst orðum stjómmálamanna og vitað hvaða umhverfi og starfsaðstæður bíða þeirra. Stjórnvöld hafa heldur ekki verið í stakk búin til að taka þátt í að leysa vandann sem skapast við sveiflur eins og þær sem nú ganga yfir. Þvert á móti hefur verið aukið á hann með hallarekstri á ríkissjóði og erlendum lán- tökum. Stjórnendur hafa oft orðið að taka tillit til annarra sjónarmiða en beinna rekstrar- sjónarmiða í sambandi við stjómun og ákv- arðanatöku í fyrirtækjum. Fyrirgreiðslur banka og annarra lánastofnana hafa oft byggst á óraunhæfu mati, sem aftur hefur leitt til óhagkvæmra fjárfestinga og lélegr- ar nýtingar á fjámiagni. Afkastagetan er í mörgum tilvikum í litlu samræmi við þarfir markaðarins og þarf ekki annað en benda á sjávarútveg og landbúnað því til staðfest- ingar. Þess eru dæmi að fyrirtækin í heild nýti aðeins um eða innan við 25% af þeim tíma sem til ráðstöfunar gæti verið. Fyrirtæki sem hafa flárfest óskynsam- lega lenda oft í rekstrarerfiðleikum, sem reynt er að leysa með enn frekari lánafyr- irgreiðslum. Þetta leiðir til þess að hlutfall Iánsfjár verður of hátt í rekstrinum og fjár- magnskostnaður magnast og fyrirtækin komast að lokum í greiðsluþrot. Kunn- ingjaþjóðfélagið gerir það að verkum að fyrirtækjum, sem í raun em gjaldþrota, er haldið gangandi með lánsfé, í stað þess að horfst sé í augu við vandann og gripið til viðeigandi ráðstafana." — Átt þú við að fyrirtæki séu tekin til gjaldþrotaskipta fyrr? „Það er vitanlega eðlilegt að stjórnend- 49
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.