Frjáls verslun - 01.08.1988, Blaðsíða 55
Oft skemma innbrotsþjófar meira en þeir ná að hafa með sér.
„Það er auðvitað nauðsynlegt að
koma fyrir öflugu þjófavamarkerfi.
En þjófavarnarkerfi kemur að engum
notum nema að það sé í gangi. Það er
alveg furðulegt hversu oft vill gleym-
ast að kveikja á kerfmu. Og við slíkar
aðstæður hafa þjófar góðan tíma til að
athafna sig.
Öflugt þjófavarnarkerfi dugir þó
ekki að öllu leyti, jafnvel þótt kveikt
sé á því. Til þess að hindra hugsanleg-
ar skemmdir og skaða vegna tilrauna
til innbrota er nauðsynlegt að ganga
vel frá öllum bakgluggum og bakdyr-
um. Járngrindur eru yfirleitt besta
vörnin. Góð lýsing er einnig mikil-
vægt atriði — mikið ljós styggir þjófa.
Sýningargluggar geta verið mjög
freistandi sérstaklega þegar um mikil
verðmæti er að ræða í gluggunum.
Það er í raun ótækt að skilja verð-
mæti eftir í sýningargluggum yfir nótt
en sé það gert er algjört skilyrði að
járngrindur skýli gluggunum eða að
þeir séu með óbijótandi eða vír-
bundnu gleri. Hér á landi er sjaldgæft
að sjá vel varða sýningarglugga og
þess vegna er næsta auðvelt að brjóta
þá og stela verðmætum. Sumum
finnst járngrindur ljótar og vilja ekki
nota þær en það má benda á að nú fást
fagurlega hannaðar járngrindur með
ýmiskonar mynstrum. Og athygli skal
vakin á því að í septembermánuði ein-
um saman barst lögreglunni 61 til-
kynning um rúðubort og oftar en ekki
var um fleira en eitt rúðubrot að ræða
á hverjum stað.
Til þess að komast hjá því að útidyr
séu spenntar upp er hægt að láta læsa
saman hurð og dyrakarmi. Einnig er
þýðingarmikið að læsing á hurðum sé
þannig að opna verði með lykli báðu-
megin frá. Ef ekki er um slíka hurð að
ræða í fyrirtækjum er hægt að setja
ÖRYGGISGÆSLA
ER OKKAR FAG
|
mi
ORYQGISVERÐIR
Staðbundin gæsla eða farandgæsla til lengri eða skemmri tíma
Peningaflutningar og önnur sérverkefni.
ÖRYGGISKERFI
Qera aðvart um innbrot, eld, flæðandi vatn, vélabilanir,
afbrigðilegt hitastig o.fl.
ÖRYGGISWIÐSTÖÐ
Tekur við boðum frá aðvörunarkerfum um hvað sem er
hvaðan sem er af landinu, hvenær sem er
sólarhringsins og gerir strax
viðeigandi ráðstafanir.
ORYGGISÞJONUSTA
Ódýr, vönduð og viðurkennd af tryggingarfélögum og
dómsmálaráðuneytinu.
VARI ÖRYGGISÞJÓNUSTA S: 91-29399
55